Bændablaðið - 26.01.2023, Page 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR AF
AJ RAFSTÖÐVUM
Stöðvar í gám
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Áreiðanlegir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir
flestar gerðir dráttarvéla. Veldu þaulreynda
vöru frá gæðaframleiðanda.
Ráðgjafar Olís veita allar nánari upplýsingar
í síma 515 1100 eða pontun@olis.is.
Betra start
með Exide rafgeymum
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
Allir litir komnir
Vetrardekk fylgja öllum
nýjum bílum á meðan
birgðir endast!
Verð 5.350.000,-
Við auglýsum svo
sannarlega ekki “verð frá”.
VIÐ AUGLÝSUM
ALDREI
„VERÐ FRÁ“
SERES 3
Luxury Rafmagnsbíllinn
býður upp á ríkulegan
staðalbúnað og frágang
í hæsta gæðaflokki!
af tekjum fyrir nokkrum árum. Nú
erum við að nota mest af þessari
ull í annað, til dæmis sængurull,
Lopaloft og fleira. Þannig að í dag
er þetta aðeins um 6,5 prósent af
sölu og vöxtur ólíklegur. Magn af
íslenskri ull hefur minnkað og við
þurfum að fá sem mest fyrir hvert
kíló. Þannig fá ullarinnleggjendur
mest fyrir sitt. Í dag skiptir meira
máli hversu áhugasamir prjónarar
eru,“ segir Sigurður.
Talsverðar fjárfestingar
Að sögn Sigurðar hefur Ístex á
undanförnum misserum ráðist í
talsverðar fjárfestingar í tæknibúnaði
til að reyna að mæta hluta þeirrar
eftirspurnar sem hefur verið umfram
afkastagetu þess.
„Við settum upp dokkuvél og
mötunarkerfi fyrir kembivélar í
Mosfellsbæ. Ný spunavél er nú í
smíðum á Ítalíu. Það er áætlað að hún
verði tilbúin í haust. Næsta verkefni
er svo ný kembilína sem gæfi þann
möguleika að auka framleiðslu um
þriðjung. Þá er handprjónabandið að
fá OEKOTEX 100-viðurkenningu,
sem þýðir að það inniheldur engin
hættuleg efni.
Umhverfismál og sjálfbærni eru
að verða sífellt mikilvægari. Allt
kostar þetta sitt, en tækifærin eru til
staðar til að sækja á.“
Á Blönduósi er líklega stærsti
örbylgjuofn landsins
Ístex er að langmestu leyti í eigu
íslenskra sauðfjárbænda. Það tekur
við um 98–99 prósentum af allri
íslenskri ull, frá bændum um allt
land til að standa straum af sinni
vöruframleiðslu og -þróun.
Í Ullarþvottastöðinni á Blöndu ósi,
sem er í eigu Ístex, hefur einnig verið
ráðist í fjárfestingar.
„Þar var skipt um þurrkkerfi
í haust, þegar við skiptum út olíuofni
fyrir þeytivindu og líklega stærsta
örbylgjuofni á Íslandi. Orkusjóður
styrkti þetta verkefni upp á 15
milljónir. Við þessa breytingu á
Blönduósi sparast bæði rafmagn
og tæplega 100 tonn af olíu á ári.
Því miður tapaðist mikilvægur tími
við uppsetningu á örbylgjuofninum
vegna Covid-19 – bæði í vor og síðan
aftur í haust.
Við erum með góðan hóp á
Blönduósi og bjartsýn á framhaldið
þegar allt verður komið á sinn stað,“
segir Sigurður.
Engin ull seldist
í byrjun Covid-19
„Fyrir þremur árum, þegar
faraldurinn byrjaði, seldist nánast
engin ull og suma ull hefðum við
ekki getað gefið. Þess vegna var verð
lækkað til bænda á þeirri ull sem seld
var beint erlendis. Hins vegar héldum
við verði á þeirri ull sem notuð var
í handprjónabandi óbreyttu, líkt
og lambsull, hvítum fyrsta flokks
og sauðalitum.
Í Noregi voru til dæmis öll þessi
verð sett í núll krónu flokkinn. Verðið
hefur hækkað síðan þá sem betur fer.
Við reynum alltaf að greiða eins hátt
verð til bænda og hægt er,“ segir
Sigurður. Hann segir að sem fyrr sé
langmest greitt fyrir hvíta ull, þar
sem hún hafi mun meira notagildi.
„Það er auðveldara að lita hana, en
mislitu ullina. Ef þú færð of mikið
af einhverju hráefni sem þú hefur
ekki not fyrir þá lækkar afurðaverðið
fyrir það.“
Að sögn Sunnu Jökulsdóttur,
þróunar- og gæðastjóra Ístex,
þá hefur stór hluti af vöruþróun
undanfarin ár snúist um að auka
notagildi og verðmæti á annars
flokks ull. „Hér hefur margt áunnist
en aðallega höfum við einbeitt okkur
að mislitum öðrum flokki. Nýlega
bættum við við flokkum fyrir annars
flokks sauðaliti. Þannig geta bændur
flokkað frá sauðaliti sem standast
ekki fyrsta flokks kröfur frá, en áður
fór þessi ull í mislitan annan flokk.
Bændur fá betur greitt fyrir og við
fáum meira af því hráefni sem við
þurfum í okkar framleiðslu. Þetta þarf
allt að haldast í hendur.“
Eignarhald Ístex að stærstum
hluta hjá LS
Fyrir um einu ári síðan varð ákveðin
breyting á eignarhaldi Ístex. „Boðið
var upp á að bændur gætu keypt
hluti í gegnum ullarkaup. Þá hefur
félagið haft hlutabréf til sölu til
áhugasamra. Það er margt fram
undan hjá félaginu sem mikilvægt
er að styðja og því ekki ólíklegt að
frekari eignarhaldsbreytingar muni
eiga sér stað til að tryggja fjármagn í
frekari fjárfestingar,“ segir Sigurður
spurður um eigendahópinn.
Sigurður segir að eignarhlutir
í félaginu séu mjög dreifðir. Í dag
séu alls 2.473 hluthafar skráðir í
félaginu, þar af eru Landssamtök
sauðfjárbænda með stærsta einstaka
hlutann, en síðan einstaklingar eða
félög tengd einstaklingum.
Afkoma Ístex
og vörusala
Árið 2021 var hagnaður Ístex eftir
skatta rúmlega 93 milljónir. Fyrir
síðasta ár stefnir í að hagnaðurinn
verði í kringum 60 milljónir.
Sala á hráull, sem er þvegin ull
en ekkert unnin, nam alls um
80 milljónum króna, sem að
langmestu leyti fer til útlanda.
Áður var hlutdeild hráullar um
25 prósent í vörulínu Ístex.
Söluandvirði handprjónabands á
síðasta ári var rúmar 800 milljónir,
þar af eru um 500 milljónir vegna
sölu út fyrir landsteinana.