Bændablaðið - 26.01.2023, Page 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
STERKI VAGNINN
Kynningarverð: 189.000 kr.
400 lítra
750 kg burðargeta
Löggilt hífingaraugu
Auðveldur í notkun
Þessi er algjör nauðsyn á öllum
vinnusvæðum. Hentar fyrir
nánast hvað sem er!
SPARAÐU ORKUNA
NOTAÐU TÆKNINA
www.diapro.is | diapro@diapro.is | S: 6937700 | Stapahraun 7, 220 Hafnarfjörður
LESENDARÝNI
Lokaþáttur
Verbúðarinnar?
Strandveiðifélag Íslands er uggandi
yfir þeim bráðabirgðaniðurstöðum
sem starfshópar í verkefninu
Auðlindin okkar hafa skilað af
sér til matvælaráðuneytisins.
Skýrslan er
stór og mikil,
en breytingarnar
á fiskveiði-
stjórnunarkerfinu
virðast vera
þeim mun minni.
Okkur virðist
sem hugmyndin
sé einfaldlega
sú að leggja
auknar kvaðir á smábáta, á meðan
kvótakóngarnir sleppa stikkfrí –
eða standa styrkari fæti, ef eitthvað
er. Kvótakerfið er sett á stall, en
strandveiðiflotinn fær holskeflu af
rógburði í andlitið.
Það er augljóst á lista viðmælenda
að stærstu og frekustu aðilarnir
hafi fengið greiðari aðgang að
starfshópunum en litla fólkið, enda
vekur það furðu að fjölmargar
hugmyndir um strandveiðar séu
nánast orðrétt apaðar upp eftir
áróðursmaskínu LÍÚ. Hvers vegna
eru smábátar, sem framleiða
verðmætustu og eftirsóttustu
sjávarafurðirnar, gagnrýndir
varðandi meðferð á afla? Hvers
vegna þarf að skerpa og endurskoða
markmið strandveiða frekar en
kvótakerfisins? Og af hverju eru
grænustu og umhverfisvænstu
veiðarnar teknar út fyrir sviga
þegar rætt er um kolefnisspor? Ef
trúverðugleiki starfshópanna á að
vera nokkur förum við fram á fullt
gagnsæi og að allur vitnisburður sem
starfshópunum barst verði gerður
opinber. Við verðum að fá botn í
það hvernig komist var að þessum
niðurstöðum.
Að sama skapi á Strand-
veiðifélagið erfitt með að treysta
því að slaufun 5,3% kerfisins
muni gagnast strandveiðimönnum.
Skýrslan er mjög óljós hvað
þetta varðar. Ekki liggur fyrir
rökstuðningur fyrir afnám kerfisins
og lítið er gefið í skyn varðandi
hvert þær heimildir ættu að fara,
annað en „í sértæka byggðakvóta
og/eða strandveiðar“. Skýrasta
hugmyndin sem sett er fram er að
leggja eigi almennan byggðakvóta
niður og færa hann yfir á sértækan
byggðakvóta sem Byggðastofnun
sér um að úthluta. Er það þá
Byggðastofnun sem fær að ráða
hvaða byggðarlög fái að lifa eða
deyja? Þrátt fyrir að Byggðastofnun
hafi úthlutað félögum tengdum
starfsmönnum sínum 5.400 tonna
aflamarki?
Strandveiðifélag Íslands gerir
sér grein fyrir því að þetta eru
bráðabirgðatillögur. Við gerum ráð
fyrir því að viðbrögð smábáta-
sjómanna við tillögunum geri
það að verkum að starfshóparnir
breyti snarlega um stefnu.
Ráðherra hefur enn tækifæri til
að breyta rétt. Þó að LÍÚ hafi
efni á dýrustu lögfræðingunum,
almannatenglunum og áróðurs-
pésunum, þá telur strandveiðiflotinn
um 700 báta. Langþreyta og reiði
trillukarla og kvenna þýðir að
þolinmæði okkar er að þrotum
komin. Verði tillögurnar í þessari
mynd að frumvörpum og svo lögum,
þá hefur lokaþáttur Verbúðarinnar
verið skrifaður. Trillukarlar og
-konur munu berjast með kjafti og
klóm til að það verði aldrei.
Kjartan Sveinsson,
f.h. Strandveiðifélags Íslands.
Kjartan
Sveinsson.
„Hvers vegna eru smábátar, sem framleiða verðmætustu og eftirsóttustu
sjávarafurðirnar, gagnrýndir varðandi meðferð á afla? Hvers vegna þarf að
skerpa og endurskoða markmið strandveiða frekar en kvótakerfisins? Og
af hverju eru grænustu og umhverfisvænstu veiðarnar teknar út fyrir sviga
þegar rætt er um kolefnisspor?“ spyr Kjartan m.a. í grein sinni.
Mynd / VH
VARAHLUTIR OG BÍLAVÖRUR
Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
BÆJARHRAUNI 12
220 HAFNARFIRÐI
S. 555 4800
Hafnargata 52
260 Reykjanesbæ
S. 421 7510
Hrísmýri 7
800 Selfossi
S. 482 4200
Furuvöllum 15
600 Akureyri
S. 535 9085
Sólvangi 5
700 Egilsstöðum
S. 471 1244
STÓRVERSLUN STÓRVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA 12
110 REYKJAVÍK
S. 535 9000
Skoðaðu vöruúrvalið á
www.bilanaust.is
Bændablaðið
kemur næst út
9. febrúar
bbl.is
Veiðifélag Eystri Rangár
óskar eftir að ráða stöðvarstjóra
Upplýsingar gefur Birkir Tómasson í síma 897-8082.
Veiðifélag Eystri Rangár á og rekur seiðaeldisstöðina Eyjarland
sem er staðsett við Laugarvatn. Þar eru framleidd gönguseiði
til sleppinga í Eystri Rangá. Stöðin er nú að
ganga í gegn um umbreytingar til hagræðingar
og betri framleiðslu.
Menntun á sviði fiskræktar er kostur.
Reynsla á sviði fiskræktar er skilyrði.
Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði,
metnað í starfi og lipurð í mannlegum samskiptum.
Laun skv. samkomulagi.
Bændablaðið á
Instagram & Facebook