Bændablaðið - 26.01.2023, Page 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
Í öðrum pistli um vernduð afurða-
heiti er aðallega horft til reynslu
notenda kerfisins og merkjanna
í ESB. Vernduð afurðaheiti skila
fjölda kosta til hagaðila sem þau
nýta, m.a. sanngjörnu endurgjaldi
og viðskiptaumhverfi fyrir bændur
og framleiðendur.
Hafa skal í
huga að vernduð
a f u r ð a h e i t i
hafa ekki verið
innleidd á
kerfisbundinn
hátt í öllum
meðlimalöndum
E S B , a f
þeim sökum
er þekking
og áhrif þeirra á neysluhegðun
mismikil eftir löndum. Hins vegar
er stóra myndin mjög skýr, að á
sameiginlegum Evrópumarkaði
hefur verndun afurðaheita aukið
virði landbúnaðarafurða verulega,
tryggt gagnsæi í viðskiptum með
merktar vörur innan ESB og um leið
samfelld vinnubrögð í viðskiptum
með verndaðar vörur til landa utan
Evrópu. Megnið af tölulegum
upplýsingum koma úr ríflega
ársgamalli samantekt um innleiðingu
verndarinnar á um 3.200 verndaðra
evrópskra afurðaheita í „evalutaion of
GIs and TSGs protected in the EU“.
Samvinnufélög verndaðra
afurðaheita
Samvinnufélög um vernduð
afurðaheiti nefnast „Consortium“
og eiga við um félög hagaðila
viðkomandi verndaðs heitis,
frumframleiðenda s.s. bænda
og afurðastöðva um rekstur og
markaðssetningu sameiginlegs
merkis sem einnig verndar sín
afurðaheiti. Sala afurðanna er ekki
hlutverk samvinnufélaganna, heldur
keppa þau sín í milli á markaði. Gott
dæmi er Parma Ham á Ítalíu sem
má finna í öllum helstu verslunum
á Íslandi.
Sameiginlegt merki samvinnu-
félagsins er gyllt kóróna sem
undantekningalaust er mest áberandi
á umbúðum í efra vinstra horni.
Að auki ber Parma Ham ávallt
„Protected Designation of Origin“
merkið til marks um upprunavernd,
ofan kórónunnar efst í vinstra horni.
Samvinnufélagið sinnir
sameiginlegri markaðssetningu,
setur staðal og gæðaeftirlit
um framleiðsluna, stýrir
framleiðslumagni og berst gegn
matvælasvindli og fölsuðum
útgáfum. En sjálf salan fer fram í
hverju fyrirtæki fyrir sig, í samkeppni
við hin fyrirtækin. Í samvinnufélagi
Parma Ham eru nú 150 framleiðendur,
um 3.600 svínabændur og 80
sláturhús, sem árið 2021 framleiddu
8 milljónir af heilum Parma Ham
lærum, hvar 36% eru flutt út úr
Evrópu. Samvinnufélögin tileinka
sér hugarfarið „sameinaðir stöndum
vér, sundraðir föllum vér“.
Helstu þættir
Samkvæmt skýrslunni hafa vernduð
afurðaheiti virkað vel, og jákvæð
merki um notkun kerfisins komu
fram í könnunum hjá hagaðilum
sem það nýta.
Helstu ókostir við notkun
merkjanna er mismikil þekking
neytenda á þeim milli landa.
Kostnaður hins opinbera, þ.e. ESB
og meðlimalanda, af rekstri kerfisins
er metinn á eingöngu 0,12% af virði
heildarsölu merktrar vöru.
En meðaltal aukins virðis í sölu
er margfaldur sá kostnaður fyrir
merktar vörur í ESB. Kerfi verndunar
var sett á fót til að skipta máli í
viðskiptalegu tilliti fyrir einstaka
hagaðila, frumframleiðendur
og matvælaframleiðendur, auk
opinberra aðila.
Áhrif kerfisins á sjálfbærni
og dýravelferð hafa einnig farið
vaxandi og munu þróast áfram
innan kerfisins. Á árabilinu 2010-
2020 fjölgaði skráningum í kerfið
um 27%.
Sanngjarnt samkeppnisumhverfi
fyrir bændur og framleiðendur
Jákvæð áhrif eru á viðskiptaumhverfi
og verðmyndun á markaði. Laga-
umhverfið tryggir sanngjarnt
samkeppnisumhverfi fyrir bændur
og matvælaframleiðendur sem nýta
vernduð afurðaheiti. Samningsstaða
notenda verndunarinnar er sterkari
og virði afurða í kerfinu eykst.
Helstu þættir sem skýra þessa
niðurstaða eru: Sama meðferð
umsókna, sama hvaðan þær
koma, og eftirlit á öllum stigum
virðiskeðjunnar er það sama
alls staðar.
Vernd hugverkaréttar
Innleiðing eftirlits með hug-
verka rétti í kerfi verndaðra
afurðaheita hefur gengið að
óskum, hugverkaréttur er algjört
lykilatriði í vernd einstakra hefða
og þekkingar.
Notendur kerfisins eru með
þátttöku sinni tryggðir gegn svikum
þeirra sem reyna að misnota
vernduð afurðaheiti, með fölsuðum
útgáfum og blekkingum gagnvart
neytendum. Reglulegt aðhald á
markaði er árangursríkasta vopnið
í baráttu við svindl.
Viðskiptasiðferði og
markaðshlutdeild
Samantektin sýnir að vernduð
afurðaheiti hafa jákvæð áhrif á
viðskiptasiðferði, bæði innan
sameiginlegs Evrópumarkaðar, þar
sem sameiginleg áhrif kerfisins
nýtast öllum sem það nota, en líka í
útflutningi verndaðra afurðaheita frá
Evrópu sem er um 20% af heildarsölu
merktra vara. Vernduninni eru þar
þökkuð veruleg áhrif til aukinnar
eftirspurnar frá löndum utan ESB.
Þegar sjö lönd innan ESB og
vernduð afurðaheiti þeirra voru
skoðuð m.t.t. heildarsöluandvirðis
verndaðra afurðaheita þessara landa
innan Evrópu árin 2019-2020 var
samanlagt virði sambærilegt en öll
samanlögð sala mat- og drykkjarvöru
fimm ESB landa: Frakklands, Ítalíu,
Portúgal, Spánar og Bretlands (sem
endanlega gekk úr ESB um áramót
20-21). Markaðskannanir sýna
einnig að mörg vernduð afurðaheiti
njóta mikillar þekkingar neytenda
utan framleiðslulandanna.
T.d. Champagne, Gouda
Holland, Parmigiano Reggiano og
Scotch Whisky, sem 50% neytenda
fjölmargra landa í ESB segjast
þekkja.
Skýr og áreiðanleg
upplýsingagjöf til neytenda
Gagnsæi er lykilatriði í kerfinu,
upplýsingar um vernduð afurðaheiti
eru öllum aðgengileg á vefslóðum
ESB. Síðan „GI View“ er einföldust
til notkunar við leit að einstökum
vernduðum afurðaheitum, héruðum
og löndum sem nýta verndina. Til
að nálgast upplýsingar í dýptina má
nálgast uppfærðan lista yfir vernduð
heiti í „EU geographical indications
register“, auk þess sem útdráttur úr
umsókn um hvert skráð heiti og þau
sem eru í umsóknarferli má sjá á
„eAmbrosia public module“. Öryggi
upplýsinga er tryggt með aðhaldi
í öllum stigum virðiskeðjunnar og
á vernduðum heitum á markaði.
Markaðsrannsóknir um þekkingu
Hafliði
Halldórsson.
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA
Vernduð afurðaheiti – áhrif á
bændur og framleiðendur
Franskir alifuglar, vernduð afurðaheiti. Upprunaverndað Echíré smjör.
Ágangspeningur og uslagjald
Á dögunum birti dóms-
málaráðuneytið úrskurð þar
sem kærð var sú ákvörðun
lögreglustjórans á Vesturlandi að
synja beiðni um smölun ágangsfjár
úr afgirtu landi tiltekinnar jarðar.
Í s tu t tu
máli var það
n i ð u r s t a ð a
ráðuneytisins að
það hefði verið
röng ákvörðun
hjá lögreglu-
stjóranum að
vísa málinu frá
sem gert hafði
verið með vísan
til lagatæknilegra atriða. Þannig séu
lög nr. 21/1986 um afréttarmálefni,
fjallskil o.fl. í fullu gildi og
lögreglustjóranum hafi því borið að
taka beiðni viðkomandi um smölun
ágangsfjár til formlegrar meðferðar.
Í úrskurðinum er hins vegar ekki
vikið að því, né tekin afstaða til þess
hvort grípa hefði átt til aðgerða.
Úrskurðurinn hefur vakið
talsvert umtal og jafnvel kátínu hjá
einhverjum sem hafa séð fyrir sér
þá Geir og Grana úr Spaugstofunni
að smala fé. Þó efalítið væri það hin
besta skemmtun fyrir lögreglumenn
landsins að fá tækifæri til að smala
fé endrum og eins þá gera lögin ekki
ráð fyrir að lögreglan sjái um slíkt,
þótt henni sé gert að skipuleggja
smölun verði ágangur búfjár með
slíkum endemum að þess gerist þörf.
Í fjórða kafla laga um
afréttarmálefni, fjallskil o.fl. eru
nokkuð ítarleg ákvæði um hvernig
eigi að bregðast við þegar vart
verður ágangs búfjár. Í 31. og 32.
gr. laganna er fjallað um ágang
búfjár úr afrétti í heimahaga og í
33. gr. er fjallað um ágang búfjár úr
einu heimlandi í annað. Sammerkt
er í báðum þessum tilfellum að
sveitarstjórn eða öðru yfirvaldi ber
að hlutast til um smölun á kostnað
eiganda búfjár. Í 2. mgr. 33. gr.
sem bættist við lögin árið 1997
kemur síðan skýrt fram að sinni
sveitarstjórn ekki skyldum sínum
að mati lögreglustjóra skuli hann
láta smala ágangsfénaði á kostnað
eiganda.
Í 34. gr. laganna er fjallað um það
þegar búfé gengur ítrekað óboðið
í afgirt lönd, veldur þar tjóni og
eigandi búfjárins sinnir ekki boði um
að afstýra frekara tjóni. Við slíkar
aðstæður getur komið til greiðslu
uslagjalds samkvæmt lögunum.
Margar ástæður geta verið
fyrir því að búfénaður gengur
inn í afgirt land og líklega er það
sjaldnast ætlan búfjáreigandans að
fénaðurinn leiti þangað. Girðingar
sem hafa orðið fyrir skemmdum
af völdum veðurs eða snjóa eru
Hilmar Vilberg
Gylfason.
Það fylgja því skyldur bæði að eiga búfé og eiga land og á það bæði við þegar land er í landbúnaðarnotkun og nýtt
til frístunda. Mynd / Myndasafn Bbl.