Bændablaðið - 09.03.2023, Side 23

Bændablaðið - 09.03.2023, Side 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023 LANDSINS MESTA ÚRVAL AF SÁÐVÖRU Sáðvara fyrir íslenskar aðstæður! HERMANNI sexraða bygg Hefur komið vel út í íslenskum tilraunum og prófunum meðal bænda. Þolir lægra sýrustig en mörg önnur yrki. SMYRILL sexraða bygg Íslenskt yrki sem gefur öruggari og betur þroskaða uppskeru í meðalárferði. Vetrarrepja UNICORN Fljótsprottið blendingsyrki með mikla vaxtargetu. Getur gefið góðan endurvöxt. Kynntu þér sáðvöruúrvalið í nýjum sáðvörulista Líflands og leitaðu til sölufólks okkar með þínar fræþarfir www.lifland.is/sadvara Skannaðu QR kóðann með myndavélinni í símanum og skoðaðu sáðvörulistann sem er fullur af áhugaverðum valkostum! Rauðsmári SAIJA Endingargóður og uppskerumikill frá Finnlandi Rauðsmári PEGGY Uppskerumikið, ferlitna yrki – forsmitað fræ Smáratún SPRETTA Kröftugir vallarfoxgrasstofnar ásamt forsmituðum rauð- og hvítsmára í auknu hlutfalli Finnlandsblanda Blanda með endingargóðum og uppskeru- miklum vallarfoxgrasstofnum og RIIKKA rýgresi GRASFRÆBLÖNDUR SMÁRAR GRÆNFÓÐURBYGG NITURBINDANDI NITURBINDANDI NÝTT NÝTT NÝTT Sala og ráðgjöf Sími 540 1100 www.lifland.is lifland@lifland.is Reykjavík Lyngháls 3 Akureyri Óseyri 1 Borgarnes Digranesgata 6 Blönduós Efstabraut 1 Hvolsvöllur Ormsvöllur 5 Selfoss Austurvegur 69 hvort tolla- og innflutningsmál geti enn talist sameiginleg hagsmunamál íslenskra kjötafurðastöðva og hagsmunasamtaka bænda. Gunnar tekur undir þau sjónarmið, að þessi mál veki spurningar um hvað séu sameiginlegir hagsmunir í þessum málum. „Ég tel mikilvægt að við eflum eftirlit með merkingum og fáum breytingar á regluverkinu sem skýra enn frekar hvað sé íslenskt, það hlýtur að vera sameiginlegt verkefni. Mér finnst einnig að afurðageirinn hafi upplifað að mistök voru gerð í öllu þessu máli. Mikilvægt er að merkingar séu með sem mest leiðbeinandi hætti fyrir neytendur. Gunnar segir helstu áskorunina vera varðandi sameiningu þessara aðila í heildarsamtök, að hluti fyrirtækjanna undir SAFL sé ekki í eigu bænda og blandað eignarhald sé á sumum fyrirtækjum. „Eins og þetta er uppbyggt í DK þá er fyrirtækjastoðin sem greiðir mest inn til Landbrug og födervarer. Bændur segja þar að með því gjaldi sem fer af hverjum slátruðum grip séu þeir að greiða gjaldið til að halda uppi hagsmunagæslunni. Þar eru tíu stærstu fyrirtækin, sem standa undir 80 prósenta tekna Landbrug & födevarer, í 100 prósent eigu bænda.“ Engar hindranir í upprunamerkingum kjötvara Sigurjón R. Rafnsson, aðstoðar- kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skag- firðinga og formaður SAFL, segist ekki sjá neinar hindranir í veginum að sameiningunni í ein heildarsamtök. Spurður um hvort áðurnefnd innflutningsmál geti spillt fyrir framþróun á þessu ferli, segist hann ekki sjá það fyrir sér. „Allra síst að upprunamerkingar kjötvara geri það, úr því þú spyrð að því sérstaklega. Ef lagaramminn er of vítt skilgreindur í þeim efnum held ég að allir taki undir að herða þurfi þær reglur sem um það gilda. Það er íslenskum vörum til framdráttar og fyrir þær erum við öll að vinna,“ segir Sigurjón. Hann bendir á að í alþjóða- væðingu síðustu áratuga, þar sem lögð hefur verið áhersla á frjálst flæði fjármagns, vara og fólks, hefur þróunin orðið sú að markaðssvæði hafi stækkað gífurlega. Gleymst hafi við upphaf alþjóðavæðingarinnar árið 1993 að verja hagsmuni Íslands hvað landbúnað varðar. Því hafi önnur ríki ekki gleymt. „Þetta sést kannski best á því að undanþágur fyrir bændur frá samkeppnislögum hafa gilt í fjölmörgum löndum allt frá 1993 og í öðrum mun lengur, auk þess sem byggðamál og landbúnaður eru iðulega á sömu hendi erlendis. Afleiðingin er sú að á síðustu tveimur áratugum hefur þekking minnkað verulega innan íslenska stjórnkerfisins, hjá fyrirtækjum í landbúnaði, bændum sjálfum og almenningi á hagsmunagæslu annarra ríkja og stuðningskerfi þeirra í víðum skilningi og vörnum þegar kemur að landbúnaði. Þá hefur samkeppnisstaða íslensks landbúnaðar versnað og aðstöðumunur aukist til muna.“ Sameiginlegir kraftar Sigurjón segir að sameiginlegum kröftum BÍ og SAFL verði best borgið saman við það verk að snúa þessari þróun við. „Fyrir því eru fordæmi á erlendri grundu, til dæmis í Danmörku. Það gætir enginn annar hagsmuna landbúnaðarins nema þeir sem í honum starfa – bændur sjálfir og afurðastöðvarnar. Síðan eru önnur verkefni sem myndu alltaf vinnast áfram á sitt hvorum vettvangi aðila. Innan SAFL er víðtækur stuðningur við stofnun slíkra sameiginlegra samtaka en öllum aðildarfyrirtækjum verða kynntar hugmyndirnar eins og þær voru kynntar á búgreinaþingi, áður en kemur að Búnaðarþingi,“ segir Sigurjón R. Rafnsson. FRÉTTIR Sauðfjárbændur: Trausti áfram formaður Á búgreinaþingi 2023 var Trausti Hjálmarsson í Austurhlíð endurkjörinn formaður búgreinadeildar sauðfjárbænda hjá Bændasamtökum Íslands. Hann hafði einn lýst yfir framboði og fékk um 94 prósent greiddra atkvæða. Aðrir í stjórn lýstu einnig yfir framboði til endurkjörs; þau Ásta Fönn Flosadóttir, Höfða 1, Jóhann Ragnarsson, Laxárdal 3, Sigurborg Hanna Sigurðardóttir, Oddsstöðum 1 og Sveinn Rúnar Ragnarsson, Akurnesi – og voru sjálfkjörin. Í varastjórn voru kjörin þau Sigríður Ólafsdóttir, Víðidalstungu 1. varamaður, Hulda Brynjólfsdóttir, Tyrfingsstöðum 2. varamaður og Ragnar Jónsson, Halldórsstöðum 3. varamaður. /smh Stjórn og varastjórn búgreinadeildar sauðfjárbænda hjá Bændasamtökum Íslands: Ragnar Jónsson, Sigríður Ólafsdóttir, Hulda Brynjólfsdóttir, Jóhann Ragnarsson, Trausti Hjálmarsson, Ásta Fönn Flosadóttir, Sigurborg Hanna Sigurðardóttir, og Sveinn Rúnar Ragnarsson.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.