Bændablaðið - 09.03.2023, Qupperneq 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Pálmi Jónsson fór um land allt og
útbjó lokræsi í ræktarlandi bænda
með plógi smíðuðum á Íslandi.
Plógurinn er enn til, en Pálmi,
sem verður níræður í sumar, vann
síðast á honum 82 ára gamall.
Plógurinn sker ferhyrningslaga
streng undir yfirborðinu, færir til
hliðar og skilur eftir ferstrent ræsi.
Um miðja 20. öldina var
mikill gangur í að breyta mýrum í
ræktarland. Þar sem aðstæður leyfðu
var hægt að ná enn betri þurrkun
með því að útbúa lokræsi undir
yfirborðinu og þar með minnka
þörfina á opnum skurðum. Árni
Snæbjörnsson gerir mismunandi
aðferðum við gerð lokræsa góð skil
í 17. tölublaði Freys árið 1987. Þar
skrifar hann að fyrst um sinn hafi
aðallega verið notast við svokallaða
kílplóga, þar sem sívalningur
var dreginn neðanjarðar, þrýsti
jarðveginum í sundur og skildi eftir
sig kílræsi.
Vélasjóður hafði forgöngu
fyrir því að flytja inn finnskan
lokræsisplóg árið 1962 og byggir
plógurinn hans Pálma að einhverju
leyti á þeirri fyrirmynd. Nokkrar
gerðir lokræsisplóga voru í notkun
á áratugunum þar á eftir og unnu
þær á svipaðan hátt. „Aðalplógurinn
lyftir jarðveginum upp, undir er svo
minni plógur sem sker streng (20x30
cm) og færir hann til hliðar undir
jarðveginum sem lyft var. Eftir
stendur svo ferstrent ræsi,“ skrifar
Árni Snæbjörnsson.
Upphaflega Eggerts-plógurinn
Eggert Hjartarson frá Hvammstanga
smíðaði svokallaðan Eggerts-plóg
árið 1963. Hann vann á honum
næstu sumur, en Pálmi Jónsson keypti
plóginn og jarðýtuna árið 1967. Þessi
tæki eru til enn í dag en Pálmi gerði
nokkrar breytingar í gegnum tíðina.
Plógur Eggerts var upphaflega með
tvo skera sem fóru niður í jörðina hlið
við hlið. „Ég breytti honum í það að
skera niður á einum stað. Þegar hann
tók niður á tveimur stöðum tók hann
oft jarðveginn með sér upp og það
kom ekki nógu vel út,“ segir Pálmi.
Hallinn á yfirborðinu á lárétta
skeranum lyftir jarðveginum upp
sem nemur tuttugu sentímetrum til
þess að pláss sé fyrir strenginn. Á
meðfylgjandi skýringarmynd sést
hvernig strengurinn veltir um níutíu
gráður þegar hann leggst til hliðar
við rásina. Þar sem skurðurinn upp
á yfirborðið er til hliðar við rásina
sekkur jarðvegurinn síður niður í
tómarúmið. Á vellinum sést rás eftir
lóðrétta skerann og jarðvegurinn fyrir
ofan strenginn er ögn hærri.
Plógurinn er dreginn af
Caterpillar D6C jarðýtu. Tvö
hjól er á plóginum sem er hægt
að hækka og lækka eftir þörfum.
Vinnsludýptin er á bilinu einn til
einn og hálfur metri, en algengast
var að ræsin væru 120 sentímetra
neðan við yfirborðið og væru
lögð með sex metra millibili. „Ég
bakkaði plóginum á hjólunum að
skurðbakkanum og slakaði honum
svo niður í skurðinn. Þá fóru hjólin
upp og plógurinn niður. Svo þegar ég
fór að taka plóginn upp úr mýrinni þá
setti ég tjakk í gang sem setti hjólin
niður og plógurinn kom upp,“ segir
Pálmi.
Pálmi kom fyrir tveimur öflugum
spilum framan á jarðýtutönninni.
„Hún gat dregið sig upp sjálfa ef hún
sökk niður. Ég festi hana oft smávegis,
en ég náði henni yfirleitt alltaf upp,“
segir Pálmi, en hann þurfti þó stöku
sinnum utanaðkomandi aðstoð. Þar
sem plógurinn var laustengdur við
jarðýtuna var auðvelt að losa hann
frá ef vélin var föst.
Hringferð í kringum 1970
Pálmi hefur lengst af búið á
Sauðárkróki, en fór með plóginn um
land allt. Á árunum í kringum 1970
fór hann í hringferð sem tók nokkur
sumur. „Það var þó nokkuð að gera
austur á Héraði, og Árnessýslan
og Rangárvallasýslurnar voru
mjög drjúgar,“ segir Pálmi, en eini
landshlutinn sem hann sinnti ekki
voru Vestfirðir.
Mikil eftirspurn var eftir hans
þjónustu og segist hann hafa farið
hringinn að hluta til aftur. „Það voru
víða menn sem tóku þetta ekki fyrst
en sáu svo hvernig þetta kom út hjá
öðrum og sáu eftir því. Ég sé hérna í
gamalli bók hjá mér að ég hef verið á
Seljavöllum 1970 – hjá Agli bónda,
þannig að það hefur verið eitthvað
fyrir þann tíma sem ég byrjaði á
þessu,“ segir Pálmi, en hringferðin
hófst í Húnavatnssýslunum.
Ræsin virkuðu strax
Yfirleitt voru lokræsin lögð í mýrar
sem átti eftir að rækta. „Ég var með
tveggja metra prjón sem ég bjó
mér til úr stáli. Með því að stinga
honum niður í jarðveginn fann ég
hvernig landið lá,“ segir Pálmi,
en plógurinn virkaði ekki nema í
mjúkum mýrarjarðvegi.
„Ég byrjaði neðst í skurðinum og
fór upp í móti, þannig að vatnshalli
væri á lögninni,“ segir Pálmi, en
þannig gat vatnið átt greiða leið.
Lengd ræsanna fór eftir lögun og
stærð túnanna, en Pálmi segir að
þau hafi oft verið á bilinu 100-300
metrar. „Ef það fór yfir það gat
vatnsmagnið orðið hættulega mikið
að það gæti grafið sig. Það kom fyrir
ef það var blaut mýri að það var farið
að flóðrenna úr ræsinu þegar ég kom
til baka.
Við vorum yfirleitt tveir. Þetta var
unnið á vöktum nótt og dag,“ segir
Pálmi. Einungis var hægt að sinna
þessari vinnu á sumrin og því var
reynt að afkasta sem mestu á sem
skemmstum tíma.
Hyggst nota plóginn áfram
Heimir Pálmason vann á tímabili með
föður sínum á plóginum. „Fyrstu árin
var alveg óskaplega mikið að gera í
þessu. Þetta var niðurgreitt af ríkinu.
Mig minnir að bóndinn hafi þurft að
borga þrjátíu prósent og ríkið sjötíu
prósent,“ segir Heimir. Hann bætir
við að þetta hafi verið gott starf, en
oft fylgdi þessu mikið strit ef mýrin
var blaut og ýtan festist. „Pabbi fór
einu sinnu ofan í mógröf og reis upp
á endann við að fara upp úr henni og
þá bræddi jarðýtan úr sér.“
Núna er jarðýtan og plógurinn
staðsett í Flóanum. „Þar endaði pabbi
síðast og fékk að geyma hana hjá
bóndanum. Þannig var það hjá pabba
alltaf, hann fékk að skilja tækin
eftir á hinum og þessum bæjum
yfir veturinn.“ Heimir hefur tekið
við vörslu vélarinnar og stefnir að
því að nota hana áfram ef ræktendur
óska eftir hans þjónustu, enda virka
jarðýtan og plógurinn enn.
BÆJARHRAUNI 12
220 HAFNARFIRÐI
S. 555 4800
Hafnargata 52
260 Reykjanesbæ
S. 421 7510
Hrísmýri 7
800 Selfossi
S. 482 4200
Furuvöllum 15
600 Akureyri
S. 535 9085
Sólvangi 5
700 Egilsstöðum
S. 471 1244
STÓRVERSLUN STÓRVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA 12
110 REYKJAVÍK
S. 535 9000
Skoðaðu vöruúrvalið á
www.bilanaust.is
FABBRI
Reiðhjólafestingar
35%
AFSLÁTTUR
KIDDY
Barnabílstólar
20% afsláttur fyrir viðskiptavini
TM trygginga
20%
AFSLÁTTUR
FYRIR VIÐSKIPTAVINI
TM TRYGGINGA
LÍF & STARF
Þversnið af lokræsinu sem plógurinn
skilur eftir sig. Láréttur skeri lyftir
upp torfunni og er ferstrendur
strengur færður til hliðar undir
yfirborðinu.
Saga vélar:
Gerði lokræsi um land allt
– Íslensk hönnun á plógi
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Pálmi Jónsson, jarðýtustjóri frá
Sauðárkróki, fór um land allt með
lokræsisplóg og ræsti fram mýrar.
Caterpillar D6C jarðýta var sérútbúin til að draga lokræsisplóginn. Meðal aukabúnaðar voru spil á tönninni til að
draga ýtuna úr festu. Auðvelt var að losa plóginn aftan úr. Myndir / Aðsendar
Nýleg mynd tekin á Suðurlandi.