Bændablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Náttúruhamfaratrygging:
Nauðsynlegt að hafa tryggingar í lagi
Í DEIGLUNNI
Hulda Ragnheiður Árna
dóttir, forstjóri Náttúruham
faratryggingar Íslands (NTÍ),
hélt erindi á búgreinaþingi
þar sem hún fjallaði um
tryggingar og tryggingarmál
bænda. NTÍ er opinber stofnun
sem hefur það hlutverk að
vátryggja helstu verðmæti gegn
náttúruhamförum.
„Eitt af því versta sem ég
lendi í í mínu starfi er þegar
fólk tilkynnir um tjón til
Náttúruhamfaratryggingar Íslands
vegna atburða sem falla undir lögin
sem um stofnunina gilda og það
reynist ekki vera vátryggt fyrir því
tjóni sem það hefur orðið fyrir,“
segir Hulda Ragnheiður.
Skyldu- og valtryggingar
Hulda Ragnheiður segir að almennt
sé lítil hætta á að slíkt gerist með
húseignir, þar sem þær eru allar
skyldutryggðar bæði gegn bruna
og náttúruhamförum.
„Gagnvart innbúi og lausafé
gegnir öðru máli, því þau verðmæti
er ekki skylda að brunatryggja.
Velji eigandinn aftur á móti að
brunatryggja innbú og lausafé er
skylda að greiða samhliða fyrir
iðgjald sem rennur til NTÍ vegna
verndar gegn tjóni af völdum
náttúruhamfara.
Einnig er rétt að geta þess að
margar af þeim vátryggingum
sem í daglegu tali nefnast
landbúnaðartryggingar, innifela
brunatryggingu og þar með
náttúruhamfaratryggingu sem
gildir gagnvart tjónum sem verða
af völdum jarðskjálfta, eldgosa,
snjóflóða, vatns- og sjávarflóða
og skriðufalla.
Reyndar er það þannig að margir
vita ekki að þeir eru með gildar
vátryggingar hjá NTÍ, þar sem þeir
eru aldrei í beinum samskiptum við
stofnunina nema þegar til tjóns
kemur. Í lögum nr. 55/1992 kemur
fram að það er hlutverk almennu
vátryggingafélaganna að innheimta
iðgjald af öllum húseignum og
brunatryggðu innbúi og lausafé
sem síðan er skilað til NTÍ.“
NTÍ kemur oft til sögu
Fjöldi fólks áttar sig ef til vill ekki
á því hversu oft NTÍ, sem áður hét
Viðlagatrygging Íslands, kemur við
sögu í tjónamálum um allt land.
Frá árinu 1987 hafa 276 atburðir
átt sér stað, flestir þeirra snerta fáa
eigendur með óverulegum tjónum
en sá stærsti var jarðskjálftinn
í Ölfusi árið 2008 þar sem um
5.000 tjónamál komu við sögu í
19 milljarða atburði á núvirði. Á
þessum 25 árum eru fjórir atburðir
til viðbótar við jarðskjálftann í
Ölfusi sem hafa kostað yfir hálfan
milljarð að núvirði.
Það eru snjóflóðin á Vestfjörðum
árið 1995, jökulhlaup úr Vatnajökli
árið 1996, jarðskjálfti á Suðurlandi
árið 2000, og aurskriðurnar á
Seyðisfirði árið 2020.
„Atburðirnir sem snerta fáa
en valda kannski einum aðila í
dreifbýli umtalsverðu tjóni eru
auðvitað stórir á mælikvarða þess
sem fyrir tjóninu verður. Slíkir
atburðir hafa átt sér stað um allt
land og í raun er enginn landshluti
undanskilinn þegar kemur að
slíkum atburðum.
Sum svæði eru næmari
fyrir vatns- og sjávarflóðum á
meðan önnur eru næmari fyrir
aurskriðum og krapaflóðum.
Það er því mikilvægt að huga
vel að því hvernig megi fullnýta
tryggingavernd gagnvart eldgosum,
jarðskjálftum, snjóflóðum, vatns-
og sjávarflóðum og skriðuföllum.“
Landbúnaðartrygging
mismunandi milli félaga
„Eins og ég nefndi hér áðan er
landbúnaðartrygging mikilvæg fyrir
bændur sem vilja vera vel tryggðir,
bæði gagnvart náttúruhamförum og
svo öðrum þeim þáttum sem eru
innifaldir í þeirri tryggingu hjá
almennu vátryggingafélögunum.
Slík trygging er þó mismunandi
eftir tryggingafélögum og ekki
sjálfgefið að öll mikilvæg verðmæti
séu inni í tryggingunni. Þannig eru
heyrúllur til dæmis sjálfkrafa hluti
af landbúnaðartryggingu hjá einu
félagi á meðan nauðsynlegt er að
velja þær í sérstakri upptalningu ef
vilji er til þess að þær séu tryggðar
hjá öðru félagi.“
Mikilvægt að skoða skilmála
Hulda segist vilja nota tækifærið
til að vekja athygli á því hversu
mikilvægt er að skoða vel hvað er
innifalið í tryggingum hjá hverju
félagi og leita leiða til að allt það
sem er líklegt til að geta orðið fyrir
tjóni í bruna eða náttúruhamförum
sé örugglega inni í tryggingunni.
„Við hjá NTÍ erum stundum
spurð að því hvort það sé
hægt að vátryggja bíla hjá
Náttúruhamfaratryggingu og svarið
er að það eru nokkur ár síðan var
ákveðið að veita heimild fyrir því
að taka við iðgjöldum vegna bíla,
en þá er það sama forsendan og
með aðrar tryggingar, sem er að
bíllinn sé brunatryggður.
Það er ekki algengt að bílar séu
brunatryggðir sérstaklega, en það
er hægt að gera þessar ráðstafanir
ef fólk telur sig vera í sérstaklega
mikilli hættu á að lenda í þeim
atburðum sem falla undir lögin um
Náttúruhamfaratryggingu.“
Trygging gegn vatnsflóði og foki
Að sögn Huldu áttar fólk sig
heldur ekki alltaf á því að það þarf
að tryggja sig sérstaklega gegn
vatnsflóðum af völdum úrkomu og
leysingavatns og svo hafa foktjónin
líka ákveðna sérstöðu.
„Því miður er nokkuð um að fólk
lendi í foktjónum þar sem ekki eru
fyrir hendi neinar tryggingar. Þá
er algengt að leitað sé til okkar
með ósk um tjónabætur, en þau
tjón falla ekki undir lögin um
Náttúruhamfaratryggingu.“
Þú tryggir ekki eftir á
Um tryggingar gildir lögmálið um
að það sé ekki hægt að tryggja eftir
á. Hulda Ragnheiður ráðleggur
öllum að fara vel yfir tryggingarnar
sínar með góðum ráðgjafa og það
áður en tjónin eiga sér stað.
„Það er ekkert sem við getum
gert eftir að tjón hefur átt sér
stað ef ekki eru gildar tryggingar
fyrir hendi.“
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Hafið þetta í huga
Í lok erindis síns á búgreinaþingi
dró Hulda Ragnheiður fram fjögur
atriði sem hún taldi gott að hafa í
huga sem snúa að tryggingamálum
bænda.
1. Fara yfir fjárhæðir í lausa
fjártryggingum sínum og
fullvissa sig um að þær séu í
samræmi við verðmætin sem
liggja undir.
2. Fullvissa sig um að
landbúnaðar tryggingin innifeli
öll þau verðmæti sem máli
skipta, þar með talið heyforða
og annað það sem vilji er til að
hafa vátryggt.
3. Þar sem talin er mikil
hætta á tjónum af völdum
náttúruhamfara getur verið
ástæða til að brunatryggja
sérstaklega skráningarskyld
ökutæki til þess að þau falli
undir náttúruhamfaratryggingu
hjá NTÍ. Einnig er hægt
að kaupa húftryggingu á
vinnuvélar (kaskó).
4. Vera með bæði foktryggingu
og asahlákutryggingu hjá
almennu vátryggingafélagi til
að verja sig gegn algengustu
veðurtjónunum.
Frá árinu 1987 hafa 276 atburðir átt sér stað, flestir þeirra snerta fáa eigendur með óverulegum tjónum en sá stærsti
var jarðskjálftinn í Ölfusi árið 2008. Mynd / Náttúruhamfaratryggingar Íslands
Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands.
Mynd / VH