Bændablaðið - 09.03.2023, Qupperneq 32

Bændablaðið - 09.03.2023, Qupperneq 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023 Rafn Bergsson frá Hólmahjáleigu í Austur-Landeyjum var kosinn formaður deildar nautgripabænda á nýliðnu búgreinaþingi. Hann segir síðustu misseri sýna hversu mikilvægt er hverri þjóð að framleiða eigin matvæli. Foreldrar Rafns fluttu á Hólmahjáleigu árið 1976 og fæddist hann ári síðar, og er því 46 ára. Rafn stefndi ekki að því að verða bóndi, heldur menntaði hann sig sem bifvélavirki. Foreldrar Rafns lögðu niður búskapinn árið 2003 og fóru að sækja vinnu á Hvolsvöll. Majken Jørgensen, eiginkona Rafns, var helsti hvatinn fyrir því að þau færu í búskap og endurvöktu þau kúabúið á Hólmahjáleigu árið 2005. Rafn starfaði þá sem bifvélavirki og við járnsmíði á Hvolsvelli og voru hjónin búin að byggja sér hús í þorpinu. „Svo skiptum við árið 2005. Foreldrar mínir fóru í húsið okkar á Hvolsvelli og við fluttum hingað,“ segir Rafn. Nú segist hann ekki sjá fyrir sér annað starf en að vera kúabóndi. Á Hólmahjáleigu eru 55 mjólkurkýr og kvíguuppeldi sem því fylgir. Ekki er aðstaða til að ala nautkálfa og eru þeir seldir ungir til áframhaldandi eldis. Einnig eru 20 kindur, 50 hross, 20 hænur, einn hundur og þrír kettir – þar af einn sem sinnir meindýravörnum í fjósinu. Rafn og Majken eiga saman tvö börn á menntaskólaaldri. Rafn sækir ekki vinnu fyrir utan bú, fyrir utan þátttöku í félagsstörfum. Majken starfar sem brúðkaupsráðgjafi á Hótel Rangá, sem hún vinnur mikið til í fjarvinnu. Búnaðarþing og endurskoðun búvörusamninga Á þessu ári liggur fyrir endurskoðun búvörusamninga og telur Rafn að hans fyrstu vikur og mánuðir í embætti muni helst snúa að vinnu í kringum þá. „Það verða stærstu verkefnin til að byrja með. Í rekstrarverkefni RML staðfestist það sem bændur finna á eigin skinni – að rekstrarafkoma hefur vernsað mikið, hvort sem er í mjólkur- eða nautakjötsframleiðslu.“ Skammt er í næsta Búnaðarþing, sem er aðalfundur Bændasamtaka Íslands, og reiknar Rafn með að endurskoðunin verði eitt stærsta málefnið á þeim fundi. „Á síðustu tuttugu árum hefur heildarframleiðsla mjólkur farið úr hundrað milljón lítrum yfir í hundrað og fimmtíu milljónir. Á sama tíma er heildarríkisstuðningurinn alltaf að lækka, þannig að stuðningurinn á hvern lítra mjólkur hefur lækkað gríðarlega mikið. Stærstu áherslurnar eru að fá viðurkenningu á þessu og einhverjar leiðréttingar. Auðvitað þarf að taka inn í þetta tollamál sem eru hluti af starfsumhverfi okkar bænda. Það er galið að krónutala á tollum sé óbreytt áratugum saman. Þetta hefur bitnað hart á nautakjötsframleiðendum. Enn fremur er hafin vinna við endurskoðun á verðlagsgrunni kúabús og mikilvægt að fylgja þeirri vinnu eftir. Núverandi grunnur er yfir 20 ára og orðinn úreltur. Rekstrarmálin eru mér ofarlega í huga. Ég vil að bændur hafi traustari fjárhagsgrunn til að takast á við áskoranir og byggja greinina upp til framtíðar. Við höfum frábærar aðstæður í þessari íslensku náttúru með hreinu vatni og lítilli lyfjanotkun. Við eigum að geta framleitt gríðarlega góðar vörur og erum að því. Við getum framleitt miklu meira ef það er markaður og ásættanlegt verð fæst fyrir vörurnar,“ segir Rafn. Fæðuöryggi og afleidd störf „Það er ekki sjálfgefið að það sé alltaf til nægur matur. Við sjáum að kerfið er kannski brothættara en við héldum, eftir það sem hefur dunið á heiminn með heimsfaraldri og stríðsátökum. Í mínum huga er mjög mikilvægt að við Íslendingar framleiðum það sem við getum, séum eins sjálfbær og hægt er og nýtum náttúruna og þær aðstæður sem við höfum til að framleiða góðar og heilnæmar vörur. Við eigum að hafa stolt til að vera sjálfum okkur næg. Það á við um landbúnaðinn í heild, hvort sem það er mjólk, kjöt, grænmeti eða hvað sem er. Við þurfum að styðja og breikka framleiðsluna. Við verðum að bregðast við breytingum á þjóðfélagi og samfélaginu. Við eigum að framleiða og leggja áherslu á þær vörur sem neytendur vilja kaupa.“ Rafn nefnir að landbúnaðurinn skili af sér fjölmörgum afleiddum störfum. Á Hvolsvelli er til að mynda stór kjötafurðastöð og nokkrar verslanir sem sinna landbúnaðinum ásamt þjónustuaðilum. „Þetta snýst ekki bara um okkur sem búum úti í sveit og framleiðum matvæli. Það er mikil starfsemi í kringum þetta. Við eigum að sjá sóma okkar í því að styðja við landbúnaðinn þannig að hann geti þróast og verið þessi burðarás áfram, sem hann er í hinum dreifðari byggðum. Tækifærin víða „Umhverfis- og loftslagsmálin eru gríðarlega fyrirferðarmikil í umræðunni og það er klárt að við kúabændur verðum að taka þátt í þeim málum – sem og landbúnaðurinn í heild,“ segir Rafn. Hann kallar eftir auknum rannsóknum og aðgengilegum traustum gögnum, því hinn almenni bóndi veit ekkert endilega í hvorn fótinn á að stíga. „Það er helling af vinnu í gangi og vonandi fer þetta að komast í betra horf. Það er líka fullt af tækifærum í þessum hlutum. Það er mikil gerjun með í þessum málaflokki með aukinni trjá- og skjólbeltarækt sem getur skilað aukinni uppskeru og bindingu kolefnis,“ segir Rafn. Einnig sé verkefni í gangi þar sem vinna á áburð úr úrgangi frá fiskeldi á landi. „Það er margt spennandi í gangi sem greinin getur nýtt sér. Við þurfum að vera opin fyrir tækifærunum og nýta þau sem gefast.“ Félagskerfið Rafni mikilvægt Frá því að Rafn gerðist kúabóndi hefur hann fylgst vel með félagsmálum landbúnaðarins og reglulega sótt fundi. Rafn sat í stjórn búnaðarfélagsins á svæðinu, en fyrsta stóra skrefið í félagsmálum var þegar skorað var á hann að bjóða sig fram í embætti formanns Félags kúabænda á Suðurlandi. Frá árinu 2018 hefur Rafn setið í stjórn Landssambands kúabænda (LK) – sem eftir endurskipulagningu félagskerfisins er orðið að deild nautgripabænda í Bændasamtökum Íslands. Í dag er starfsemi undir merkjum LK engin þrátt fyrir að félaginu hafi ekki verið slitið. Rafn segir aðildarmenn hafa viljað halda félaginu lifandi fyrst um sinn á meðan sameinuð bændasamtök eru að sanna gildi sitt. Einnig á LK talsverða sjóði og hlut í Nautgriparæktarmiðstöð Íslands sem kúabændur vilja hafa forráð yfir. Enn fremur er vísað til Landssambands kúabænda í nokkrum lögum sem á eftir að breyta. Hann reiknar ekki með öðru en að LK verði lagt niður þegar gengið hefur verið frá öllum endum. „Þessi sameining verður að ganga upp og við erum mun sterkari saman. Þessi rótering á félagskerfinu byrjar þegar búnaðargjaldið, sem var skattur á bændur, var dæmt ólöglegt. Þar fór tekjugrunnur félagskerfisins að mjög stórum hluta. Þá byrja væringar um hvernig sé hægt að einfalda og gera kerfið skilvirkara,“ segir Rafn, og uppbyggingu Bændasamtakanna var breytt í kjölfarið. „Í dag er hver og einn einstaklingur beinn aðili að Bændasamtökunum, ekki í gegnum félag.“ Bændur velja svo þá deild innan BÍ í samræmi við hvernig búskapur er helst stundaður á þeirra bæ. Hver deild er með stjórn sem er kosin á búgreinaþingi. „Okkar hlutverk er að fjalla um fagleg málefni deildarinnar eða þau málefni sem snúa nær eingöngu að nautgripabændum.“ Rafn nefnir í því samhengi umfjöllun um fyrirkomulag greiðslna til bænda, erfðamengisúrval, kyngreiningu á sæði o.fl. Ólíkt því sem áður var eru deildirnar Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is VARAHLUTIR Í KERRUR 2012 2021 Nýr formaður nautgripabænda: Vill treysta fjárhagsgrunn bænda – Segir frábærar aðstæður á Íslandi með ósnortinni náttúru, hreinu vatni og lítilli lyfjanotkun Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is Rafn og Majken Jørgensen kynntust fljótlega eftir að hún flutti til Íslands frá Danmörku árið 1999. Majken hvatti Rafn til að gerast bóndi, en hann hafði alltaf stefnt að bifvélavirkjun. Hún starfar sem brúðkaupsráðgjafi meðfram búskap. Myndir / ÁL VIÐTAL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.