Bændablaðið - 09.03.2023, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
LÍF&STARF
Brynja Davíðsdóttir hefur getið sér
gott orð fyrir uppstoppun á ýmsum
tegundum dýra. Þá stundar hún
líka leirlist og er náttúrufræðingur
fram í fingurgóma. Hún gerði sér
lítið fyrir á dögunum og hafnaði
í þriðja sæti í flokki smáfugla á
Evrópumeistaramóti hamskera.
Brynja er uppalin á Laugarvatni og
í Reykjavík. Hún lærði upp- stoppun
í Bretlandi frá 17–21 árs aldurs og
kom þá heim um stund til að klára
menntaskóla en þaðan fór hún til Ítalíu
í nokkur ár.
„Seinna flutti ég á Hvanneyri til
að stunda meistaranám í náttúru-
og umhverfisfræði frá Landbúnaðar-
háskóla Íslands og vann við
fuglarannsóknir á þeim tíma og
stoppaði upp fugla samhliða því fyrir
Náttúrustofu Kópavogs og einstaklinga.
Eftir útskrift rataði ég í margvísleg
spennandi náttúrutengd störf. Ég
var t.d. landvörður á Teigarhorni,
framkvæmdastjóri UNESCO
jarðvangs, vann verkefni tengd upp-
byggingu Ramsarsvæðisins Andakíls
í Borgarfirði og í dag vinn ég
fyrir Fuglavernd við alþjóðleg
samstarfsverkefni samhliða upp-
stoppun og leirlist, en ég tók
diplómanám í leirlist fyrir nokkrum
árum,“ segir Brynja.
Hún á tvö uppkomin börn sem tóku
þátt í þessu ævintýri með henni en þau
stunda nú háskólanám í verkfræði og
iðjuþjálfun og eru bæði listræn og
náttúruelskendur að sögn Brynju.
Hamskerinn Brynja
Brynja er hamskeri. En hvað þýðir það
á mannamáli?
„Uppstoppun er faggrein en það eru
fremur óhefðbundnar leiðir til að læra
hana og oftast bara í gegnum verknám,
ef þú ert það heppinn að komast að. Á
Norðurlöndunum er ákveðinn rammi
utan um námið og maður þreytir próf að
lokum til að geta starfað sem fagmaður
og kallað sig hamskera. Í Bretlandi og
víðast í Evrópu taka hamskerar þátt í
mótum þar sem keppt er til verðlauna
og það er einkum þannig sem menn
bæta sig, læra hver af öðrum og skara
fram úr í faginu. Ef þú tekur ekki þátt
þá veistu ekki hversu góður þú ert í
samanburði við hina,“ segir Brynja
aðspurð um starfið.
Hún segir að þegar hún byrjaði í
uppstoppun var talað um „uppstoppara“
hérlendis. Í Bretlandi, þar sem hún var í
verknámi, var þá átak í tveimur þáttum,
annars vegar að hækka standardinn
á uppstoppuðum dýrum úr illa
uppstoppuðu í vel uppstoppað (því
var náð fram með fræðslu og keppni
á árlegum ráðstefnum) og svo með því
að láta fremur niðrandi orð yfir fagið
víkja fyrir betra heiti.
„Þannig að þegar ég kem heim
úr mínu námi 1996, þá nýbúin að
vinna titilinn „Best of Show“ á
árlegri ráðstefnu breskra hamskera,
þá fannst mér kjörið að vinna undir
nafninu „Brynja hamskeri“, enda þá
orðin sérhæfð og fær í uppstoppun
fugla á breskum mælikvarða,“
segir Brynja.
Skotland
Brynja byrjaði starfsmenntanám
sitt í Skotlandi árið 1993, þá 17 ára.
Hún varði nokkrum mánuðum í að
læra af mismunandi hamskerum í
Skotlandi, sem allir höfðu mismunandi
sérhæfingu og svo nokkrum mánuðum
í Konunglega Edinborgarsafninu og
kynntist þar afburða fagmönnum
og verklagi þeirra. „Stærsta hluta
starfsmenntunarinnar, eða á rúmum
tveimur árum, varði ég með Mike
Gadd, einum mest verðlaunaða
hamskera Bretlands í uppstoppun fugla
á þeim tíma.“
Unnið til fjölda verðlauna
Brynja hefur unnið til fjölda verðlauna
í alls konar keppnum hamskera.
„Þegar kemur að þessu fagi þá er
það færni leiðbeinanda og vinnulag
þeirra sem skiptir langmestu máli fyrir
frammistöðu lærlingsins, svo auðvitað
hæfileikar einstaklingsins, æfingin og
áframhaldandi tilsögn frá þeim sem
eru færari en maður sjálfur. Þess
vegna hef ég tekið þátt í Evrópu- og
heimsmeistaramótum í gegnum tíðina
þar sem maður mátar sig við aðra í
faginu og fær innblástur og krítík á
sína vinnu.
Ég hef unnið til fjölda verðlauna
á þessum mótum og það hefur skipt
mig miklu máli að vita að ég sé ekki á
villigötum og sé að bæta mig. Ég hef
líka sótt námskeið til að bæta tæknina
og unnið fyrir færari hamskera og lært
af þeim nýjar aðferðir, ber þá helst
að nefna margfaldan heimsmeistara
í uppstoppun smáfugla, hinn danska
Peter Sunesen.“
Breiður hópur lífvera
Brynja er næst spurð hvað sé
áhugaverðast og skemmtilegast við
starf hamskera. „Það er í fljótu bragði
tvennt. Annars vegar það að vinna með
svo breiðan hóp lífvera sem þarf að
þekkja vel til að geta varðveitt hamina
þannig að þeir hafi bæði safn- og
fræðslugildi til framtíðar.
Hins vegar er það verkfærnin.
Ég er fuglaáhugamaður, en hef
líka alltaf haft áhuga á verkfærum
og hvers konar verkkunnáttu, nýt
þess að horfa á fært fólk vinna í
höndunum, þannig að ég drekk í
mig allt sem ég sé á mismunandi
vinnustofum og hvernig hver
iðnaðarmaður/listamaður beitir sinni
persónulegu aðferð við hvert atriði til
að ná fram mismunandi útkomum,“
segir Brynja og bætir strax við:
„Annar skemmtilegur partur er sá
að það þarf að fylgjast með atferli
fugla úti í náttúrunni og á góðum
ljósmyndum eða myndböndum til
að geta skilað ákveðnu lífi eða bliki
í verkin sem ég vinn.
Svo eru það þessar samkomur eins
og Evrópumeistaramót þar sem
maður fær innblástur, mátar sig við
færni annarra og fær tilsögn til að gera
betur. Allt þetta gerir þessa vinnu mjög
spennandi og skemmtilega.“ Brynja
segist hafa mest gaman af því að
stoppa upp fugla, og helst þá mófugla,
uglur, smyrla og spörfugla. Hún reynir
að komast hjá því að stoppa upp
veiðibráð aðra en rjúpur.
Uppstoppaður auðnutittlingur
Eins og fyrr sagði er Brynja
nýkomin heim eftir að hafa tekið
þátt í Evrópumeistaramóti hamskera,
sem haldið var í þrettánda sinn, nú
í Salzburg í Austurríki samhliða
glæsilegri veiðisýningu.
„Ég ákvað að taka þátt þetta árið,
bæði vegna þess að það eru fimm ár
síðan ég tók þátt síðast og ekki síður
vegna þess að ég þurfti almennilegt
verkefni að stefna að yfir veturinn
sem endaði með utanlandsferð í
skammdeginu. Ég þarf alveg smá
hvatningu til að þrauka veturna hér
á skerinu. Ég fór með uppstoppaðan
auðnutittling og hann hlaut aðra
einkunn, eða 85 stig af 100 mögulegum.
Það endaði svo með því að hann var
valinn þriðji besti smáfuglinn í flokki
fagmanna, sem er besti árangur sem
ég hef náð í Evrópumeistarakeppni.
Ég er afar ánægð með þann árangur
og þakka nú bara mínum kennurum
fyrir kunnáttuna, og kannski mína
þrautseigju fyrir að hafa ekki hætt
þessu starfi eftir um 30 ár, en ég get
gert betur. Þetta var nú ekki besti fugl
sem ég hef gert þannig að ég verð að
taka þátt aftur sem fyrst og sjá hvernig
gengur þá. En ég þakka líka þeim sem
gefa mér fugla sem þeir finna dauða,
án þeirra væri ég ekki með góð eintök
í höndunum til að vinna úr og æfa
mig á. Það er meðal annars það sem
mig vantar meira af, góðum eintökum
sjálfdauðra smáfugla og vaðfugla fyrir
næsta mót.“
Alltaf nóg að gera
Brynja þarf ekki að kvarta undan
verkefnaleysi hér heima þegar kemur
að uppstoppun. „Slæðingur af fuglum
berast alltaf til mín og oftast eru það
mjög skemmtileg verkefni. Ég reyni að
halda mig við uppstoppun fugla núna,
þannig að þeim sem áskotnast falleg og
heilleg eintök og vilja láta stoppa upp
eða gefa áfram er velkomið að setja
sig í samband. Þá er best að fuglinn
sé settur beint í lofttæmdan poka og
strax í frysti, þannig geymist hann best
fyrir uppstoppun seinna meir, jafnvel
í nokkur ár.“
Uglur og keldusvín
Brynja segir að verkefni hamskera
séu auðvitað mjög mismunandi, en
á hún kannski eftir að stoppa upp
draumaverkefnið? „Ég hef gert ágætis
gripi, man í fljótu bragði eftir sérlega
fallegu eintaki af hrafni sem fór til
vinar míns í Norðfirði fyrir ekki svo
löngu. Svo er alltaf gaman að stoppa
upp uglur og keldusvín, þau koma vel
út. Svo að sjálfsögðu eru það fuglarnir
sem hafa náð langt á mótum, til að
mynda hálfstálpaði lóuunginn sem ég
fann á þjóðveginum við Djúpavog og
fór með á Evrópumeistaramótið 2018
þar sem hann hlaut aðra einkunn.“
Leirbrennsla líka
Brynja er líka í leirbrennslu og
hefur mjög gaman af því starfi.
„Uppstoppun er faggrein en það eru fremur óhefðbundnar leiðir til að læra
hana og oftast bara í gegnum verknám, ef þú ert það heppinn að komast
að,“ segir Brynja. Hér er m.a. uppstoppaður köttur á Evrópumeistaramóti
hamskera í Salzburg, sem Brynja tók mynd af.
Magnús Hlynur
Hreiðarsson
magnushlynurh@gmail.com
Handverk:
Mesta áskorunin er að stoppa upp uglur
– Brynja Davíðsdóttir vann til verðlauna á Evrópumeistaramóti hamskera
Brynja Davíðsdóttir, hamskeri á Selfossi, hefur náð langt í sinni grein enda meira en nóg að gera hjá henni við að
stoppa upp fugla. Hún segir að uglur séu mesta áskorunin þegar uppstoppun er annars vegar. Mynd /MHH