Bændablaðið - 09.03.2023, Qupperneq 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA
Um 200 manns mættu á búgreinaþing 2023 sem var haldið 22. og 23.
mars. Í setningu kom fram að rekstur Bændasamtakanna væri í járnum
en sífellt væri leitað leiða til að efla og bæta reksturinn.
Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, sagði að meðlimum
BÍ hafi fjölgað um 25% á milli ára og að það sé ánægjulegt og sýni að bændur
almennt sjái hag sinn í því að vera í samtökunum.
Gunnar tiltók ýmis verkefni sem samtökin hafa unnið að undanfarna
mánuði og þar á meðal mál sem snerta tryggingar bænda, heilsu þeirra
og velferð.
Í samtali við Bændablaðið þegar leið á þingið sagðist Gunnar hafa góða
tilfinningu fyrir þinginu og gangi þess.
„Þingið var drifið áfram af krafti og fulltrúar þess tóku virkan og
málefnalegan þátt í umræðunum sem áttu sér stað. Vinna sem var unnin í
aðdraganda búgreinaþingsins er að skila vandaðri vinnu inn á þingið og hér
er verið að móta þær enn betur fyrir væntanlegt Búnaðarþing sem haldið
verður 30. og 31. mars næstkomandi.“ /VH
Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands. Mynd VH
Búgreinaþing 2023:
Félagsmönnum BÍ fjölgað
Axel Sæland var endurkjörinn
sem formaður búgreinadeildar
garðyrkjubænda hjá Bænda
samtökum Íslands á nýliðnu
búgreinaþingi.
Fjórtán tillögur lágu fyrir
þinginu og flestar snerust þær um
endurskoðun búvörusamninga og
þeim tengdum. Skýrsla RML sýnir að
hagur garðyrkjubænda hefur versnað.
„Búvörusamningarnir eru stóra
málið hjá garðyrkjubændum þetta árið
og tillögurnar skiptust í tvennt. Annars
vegar stuðning við nýliða í greininni
og að fá ungt fólk inn í greinina og
tvær tillögur sem fjölluðu um það.“
Dýrt fag að stíga inn í
Aðspurður segir Axel að þrátt fyrir að
áhugi á garðyrkju sé mikill sé nýliðun
í greininni jafnmikið áhyggjuefni
innan greinarinnar og í öðrum
búgreinum. „Það að stofna eða kaupa
garðyrkjustöð er mikil fjárfesting
og dýrt að stíga fyrstu skrefin inn í
greinina.“
Hagur garðyrkjubænda
Á fundi garðyrkjubænda gerði
Ívar Ragnarsson, ráðgjafi hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins,
grein fyrir nýrri skýrslu RML um
rekstrarskilyrði garðyrkjunnar 2019
til 2021.
Í máli Ívars kom meðal annars
fram að afkoma þeirra bænda sem
tóku þátt í verkefninu sem skýrslan
var unnin upp úr hefur versnað.
Fastur kostnaður hækkaði mikið á
tímabilinu og mest á liðunum rafmagn
og vatn, eða um 77%. Breytilegur
kostnaður sem krónur á hektara
hækkar töluvert milli áranna 2019
og 2020 en lækkar heldur árið 2021
þannig að hækkunin er um 8% á þessu
þriggja ára tímabili.
Afkoma versnaði bæði í yl- og
kartöflurækt en mikil hækkun á
jarðræktarstyrk kemur í veg fyrir enn
verri afkomu þeirra sem hann fá.
„Það er deginum ljósara að
það þarf að bregðast við því og að
garðyrkjubændur muni nýta sér
skýrsluna til þess.“
Dökk mynd
Axel segir að skýrslan hafi dregið
upp dekkri mynd en hann hafi
búist við og því miður sýni hún að
afkoma garðyrkjubænda hefur farið
versnandi.
„Sjálfur átti ég von á að staðan í
ylræktinni væri betri en ástæðurnar
fyrir þessu geta verið margar.
Verðbólgan er ekki að hjálpa og vegna
hennar erfitt að halda vöruverði niðri.
Bæði laun og aðföng hafa hækkað
og erfitt að velta þeim hækkunum
út í verðlagið. Á þinginu kom
fram vilji til að fara í aukið samtal
við RML um nýliðun í greininni
og að þeir hafi beinan aðgang
að skýrsluhaldi, áætlunargerð og
bókhaldi garðyrkjubænda.“
Ein breyting í stjórn
Axel Sæland var endurkjörinn
sem formaður búgreinadeildar
garðyrkjubænda hjá Bændasam-
tökum Íslands á nýliðnu búgreina-
þingi. Ein breyting var gerð á stjórn
deildarinnar, Óskar Kristinsson hætti
sem stjórnarmaður og Jón Helgi
Helgason kom í hans stað. /VH
Frá fundi deildar garðyrkjubænda á búgreinaþingi 2023. Fremst til vinstri
situr Axel Sæland, nýendurkjörinn formaður búgreinadeildar garðyrkjubænda
hjá Bændasamtökum Íslands. Mynd/ VH
Garðyrkjubændur:
Bregðast þarf við
verri afkomu
Allt var með kyrrum kjörum á fundi eggjabænda
á búgreinaþingi. Helstu mál á dagskrá var umræða
tengd skýrslu fráfarandi formanns, m.a. um
markaðsaðstæður og fjölgun ferðamanna á síðasta ári.
Helstu verkefni voru eftirfylgni sprettgreiðslna, en
þær fengust greiddar nýlega. Annað mál var sex mánaða
framlenging búrahalds varphænsna til skamms tíma.
Halldóra K. Hauksdóttir var kjörin formaður deildar
eggjabænda hjá Bændasamtökum Íslands í stað Stefáns
Más Símonarsonar sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs.
„Við fórum m.a. yfir stöðuna um afnám
búra í eggjaframleiðslu og aðlögun að reglum
Evrópusambandsins um lausagöngu varphænsna, en með
hjálp Bændasamtakanna fengu eggjabændur, sem enn eru
með hluta af varphænum sínum í búrum, sex mánaða
viðbótarfrest til að aðlaga sig að þeim reglum, eða fram
á mitt þetta ár. En fyrir utan þá gífurlegu fjárfestingu
sem þessi breyting hafði í för með sér fyrir suma
eggjabændur þá voru einnig aðrar hindranir á veginum
eins og skipulagsmál. Fresturinn var veittur út júní 2023
og eftir það er stefnt að því að allir íslenskir eggjabændur
verði búnir að uppfylla skilyrði aðbúnaðarreglna auk
þess að vera undir ströngu eftirliti Matvælastofnunar.
En ljóst var að þessi framkvæmd var ekki sársaukalaus
fyrir greinina. Hún var bæði mjög kostnaðarsöm og minni
eggjaframleiðendur hættu sumir sínum búskap vegna
þess að menn treystu sér ekki til að breyta búum sínum
eins og krafist var skv. reglugerð vegna þess kostnaðar
sem því fylgdi.“
Eggjaframleiðsla og starfsumhverfi greinarinnar
Að sögn Halldóru var farið yfir markaðsaðstæður í ljósi
fjölgunar ferðamanna en salan á eggjum dróst saman
í kjölfar Covid og fækkun ferðamanna í kjölfar þess.
Einnig var farið yfir rannsóknir og þau tækifæri sem
tengjast innlendri próteinframleiðslu til fóðurs.
Jafnframt var farið yfir rekstrarskilyrði greinarinnar
en það er engin launung að tollvernd ræður þar miklu um
stöðu greinarinnar. Rekstrarkostnaður búa hefur hækkað
mjög mikið að undanförnu.
„Á fundinum voru valdir tveir fulltrúar eggjabænda
á Búnaðarþing og ég er annar þeirra og Stefán Már,
fráfarandi formaður, hinn.“
Eggjabændur bjartsýnir
„Sem nýtekin við sem formaður búgreinadeildar
eggjabænda er ég bjartsýn á framtíðina fyrir hönd
eggjabænda og við finnum fyrir trausti meðal neytenda
og það er okkar upplifun að Íslendingar vilji kaupa það
sem íslenskt er.“ /VH
Eggjabændur:
Bjartsýnir á framtíðina
Halldóra K. Hauksdóttir, formaður deildar eggjabænda
hjá Bændasamtökum Íslands. Mynd / Aðsend
Frá fundi búgreinadeilda eggjabænda. Arnar Árnason,
Hilmar Vilberg, Halla Eiríksdóttir, Halldóra Hauksdóttir
og Geir Gunnar Geirsson. Mynd / VH
Hrossabændur:
Vilja beina aðkomu að
búvörusamningum
Hrossabændur vilja beina
aðild að búvörusamningum við
endurskoðun þeirra og ræddu meðal
annars aðkomu kynbótahrossa
að landsmótum, og forsendur
tilnefninga til ræktunarbús ársins
á fundi sínum á búgreinaþingi.
Samþykktar tillögur innihéldu
meðal annars brýningu til stjórnar að
halda áfram undirbúningi á breytingu
á samþykktum deildarinnar varðandi
skipan fagráðs í hrossarækt. Einnig
var lagt til að stjórn hrossabænda
skipi starfshóp til að fara yfir aðkomu
kynbótahrossa á landsmótum ásamt
því að útfærsla stjórnar um tilnefningu
BÍ til hrossaræktarbús ársins verði
háð því að að lágmarki einn ræktandi
sem stendur að hverju ræktunarbúi
þurfi að vera fullgildur félagi í BÍ og
er þá miðað við félagatal 1. maí ár
hvert. Einnig var samþykkt tillaga sem
fól í sér að stjórn búgreinadeildarinnar
vinni að því að fá beina aðkomu að
búvörusamningum. „Í gegnum beina
aðild að búvörusamningum þarf
greinin að fá fjármuni til að standa
straum af kostnaði við kynbótastarfið,
stuðning við markaðsstarfið og
fjármuni til að hægt sé að standa vörð
um ættbókina og upprunalandið. Þá
skýtur skökku við að hrossa bændur fái
engan stuðning fyrir þær hrossaafurðir
sem þeir leggja inn líkt og aðrir
kjötframleiðendur. Það er eðlileg
krafa að stuðningur verði tekinn upp
og að hrossabændur sitji við sama borð
og aðrir kjötframleiðendur,“ segir í
tillögunni
Tveim tillögum frá Samtökum
ungra bænda, sem fjölluðu um
þyngdartakmarkanir í hestamennsku
og starfsskilyrði bænda sem framleiða
hrossakjöt, var vísað aftur til stjórnar.
Nanna Jónsdóttir var kjörin nýr
formaður deildarinnar. Hún tók við
af Sveini Steinarssyni sem hefur sinnt
formennsku í áratug. Þær Sonja Líndal
Þórisdóttir, Þórdís Ingunn Björnsdóttir
og Ragnhildur Loftsdóttir voru kosnar
í varastjórn. Aðrir í aðalstjórn eru þau
Heiðrún Ósk Eymundsdóttir, Vignir
Sigurðsson, Eysteinn Leifsson og
Guðný Helga Björnsdóttir. /ghp
Frá fundi búgreinadeildar hrossabænda.