Bændablaðið - 09.03.2023, Side 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Jörðin Hallgilsstaðir 1 í Langanesbyggð er til leigu.
Á jörðinni er stundaður sauðfjárbúskapur með um 400 fjár. Tún og ræktarlönd eru um
35 ha, beitiland gott og húsakostur ágætur. Leigutími er frá 1. ágúst nk. en getur verið
samkomulagsatriði.
Nánari upplýsingar fást hjá Jónasi Pétri Bóassyni formanni Jarðasjóðs Langanesbyggðar
s. 844 0752 og á netfanginu jpb@centrum.is Þeir sem hafa áhuga á því að leigja jörðina
eru vinsamlegast beðnir að skila inn tilboði á skrifstofu Langanesbyggðar eða á netfangið
bjorn@langanesbyggd.is fyrir 12. mars n.k.
Jarðasjóður Langanesbyggðar.
Ragnar Ragnarsson og Lisa
Dombrowe hlutu umhverfis-
viðurkenningu Fjallabyggðar
2023, sem var veitt nýlega í
fyrsta skipti.
Viðurkenningin er hugsuð sem
hvatning og áminning til íbúa
sveitarfélagsins Fjallabyggðar
um að huga vel að umhverfinu
og umgangast náttúru landsins af
auðmýkt og á sjálfbæran hátt.
„Ragnar og Lísa hafa lyft
sannkölluðu grettistaki varðandi
hreinsun á rusli í Héðinsfirði og fá
þau viðurkenninguna m.a. vegna
þess,“ segir Sigríður Ingvarsdóttur,
bæjarstjóri Fjallabyggðar. Í greinar-
gerð með viðurkenningunni segir
meðal annars; „Þau Ragnar og
Lísa hafa svo sannarlega sýnt
frumkvæði með aðgerðum sem
koma umhverfinu til góða og er
með viðurkenningunni þakkað fyrir
einstakt framtak, fórnfýsi og elju í
þágu samfélagsins og náttúrunnar.“
Umhverfisviðurkenningin sjálf
var í formi hrafns eftir Aðalheiði
Sigríði Eysteinsdóttur listamann,
en Aðalheiður var bæjarlistamaður
Fjallabyggðar árið 2022. /MHH
Ragnar tók á móti umhverfisviðurkenningunni fyrir hönd þeirra hjóna en
hann er hér með Sigríði Ingvarsdóttur, bæjarstjóra Fjallabyggðar.
Mynd / Aðsend
Fjallabyggð:
Ragnar og Lísa hlutu umhverfis-
viðurkenningu 2023
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur samþykkt samhljóða að leggja það
til við Veðurstofu Íslands að komið verði upp veðurstöð í Vík.
Í greinargerð með mállinu segir meðal annars að nákvæmari veðurmælingar
gætu eflt til muna öryggi á svæðinu.
„Umferð um svæðið hafi margfaldast á síðustu árum og því er mikið í
húfi að geta spáð fyrir veðri með sem nákvæmustum hætti.“
Þorpið í Vík er mjög útsett fyrir stormum og hvassviðri með tilliti til
sandfoks úr Víkurfjöru. Veður verður þess enn fremur oft valdandi að loka
þurfi þjóðvegi 1 í gegnum þorpið. Sveitarstjóra Mýrdalshrepps hefur verið
falið að fylgja erindinu eftir. /MHH
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps vinnur nú að því að fá Veðurstofuna til að koma
upp veðurstöð í þorpinu í Vík. Mynd /MHH
Mýrdalshreppur:
Vilja veðurstöð í Vík í Mýrdal