Bændablaðið - 09.03.2023, Qupperneq 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Stönglar vaxa ofanjarðar hjá
flestum tegundum en einnig kemur
fyrir að þeir vaxi neðanjarðar og
kallast þá jarðstönglar. Þegar er
talað um stöngla er yfirleitt átt við
jurtkenndar plöntur og runna en
stofn eða bolur á við tré.
Meginhlutverk stöngulsins
og stofnsins er að flytja vatn og
næringarefni milli plöntuhluta,
halda plöntunni uppréttri og í sumum
tilfellum að geyma næringarefni. Auk
þess sem stönglar og stofnar sem hafa
í sér grænukorn ljóstillífa. Vaxtarlag
stöngla og stofna er fjölbreytt og
stundum furðulegt.
Þróun
Rannsóknir á steingervingum benda
til að fyrstu landplönturnar hafi komið
fram fyrir 470 milljónum ára eða
þar um bil. Í fyrstu voru plönturnar
einfaldar og án stöngla og blaða. Um
40 milljón árum síðar komu svo fyrstu
einföldu stönglarnir og blöðin fram
á sjónarsviðið og í framhaldinu varð
gríðarleg þróun.
Fyrstu merki um þróun greina er
þegar útvöxtur frumplantna fer að
skipta sér og mynda sprota.
Vöxtur og starfsemi
Fyrsti vísirinn að stöngli eða stofni er
við spírun þegar kímblöðin koma í ljós
og síðan áframhaldandi vöxtur. Það
fer síðan eftir erfðum tegundarinnar
hvort úr verði stöngull eða stofn og
hver lögunin verður.
Stönglar og stofnar sjá um að flytja
vatn og næringarefni milli plöntuhluta
og í þeim eru sáld- og viðaræðar. Eftir
sáldæðunum berast sykrur frá blöðum
til vaxtar og viðhalds en aðallega
vatn frá rótum eftir viðaræðunum.
Útgufun vatns úr laufblöðum veldur
því að vatnið berst frá rótum og um
plönturnar með hárpípukrafti.
Vaxtarsprota stöngla er oft að
finna í enda þeirra og brumum en
hjá til dæmis grösum er hann neðst á
stönglinum. Frum- eða lengdarvöxtur
stöngla er mestur rétt neðan við
vaxtarsprotann. Stönglar geta verið
að mestu holir að innan en stofnar eða
trjábolir hafa við en í báðum tilfellum
liggja sáld- og viðaræðarnar utarlega
við börkinn.
Síðvöxtur greina, stofna eða bola
trjáplantna á sér stað í vaxtarlaginu
sem liggur undir berkinum. Með því
að skoða árhringi trjáplantna er hægt
að lesa aldur þeirra. Ljósari og þykkari
hringirnir sýna hraðari sumarvöxtinn
en þeir dökku hægari haustvöxt.
Jurtkenndir stönglar einærra plantna
og margra fjölæringa sölna að hausti
og nýir vaxa upp á næsta vori.
Ólíkar stöngulgerðir
Stönglar eru margs konar og ólíkir
að gerð og flokkast í jarðstöngla,
ofanjarðarrenglur og loftstöngla sem
eru þeir stönglar sem flestir þekkja.
Eftirfarandi skipting byggir að hluta á
Íslenskri flóru Ágústs H. Bjarnasonar.
Jarðstönglar senda frá sér laufblöð
sem vaxa ofanjarðar og mynda
næringarefni. Jarðstönglar geta verið
neðanjarðarrenglur sem eru langir og
grannir sprotar líkt og húsapuntur
sendir frá sér. Stöngulhnýði vaxa hins
vegar að mestu neðanjarðar og eru
kartöflur dæmi um slíkt.
Ofanjarðarrenglur eru jarðlægir
sprotar sem skjóta rótum og
mynda blöð, dæmi um það eru
jarðarberjaplöntur og gullmura.
Stönglar ofanjarðar geta verið
jurt- eða trjákenndir. Uppréttir,
uppsveigðir, jarðlægir og skriðulir
og sívalir, ferstrendir og rákóttir,
gróf- eða fínhærðir og hárlausir eða
vörtóttir. Þeir skiptast í stöngulliði
sem eru hlutar stöngla milli blaða og
sumir hafa stöngulliðamót. Stönglar
grastegunda kallast strá og eru hol að
innan og sum hafa óhol liðamót sem
kallast hné.
Strá hálfgrasa, eins og til dæmis
fífu, eru sívalir en oft þrístrend hjá
störum sem vaxa upp af jarðstöngli.
Alls konar stönglar
Ekki er þó þar með allt sagt því
stönglar eru fjölbreyttari en marga
grunar. Fálmarar klifurplantna eins
og vínviðar eru ummyndaðir stönglar
og það sama er að segja um „blöð“
blaðkaktusa og þyrna rósa. Einnig eru
til runnar með flata stöngla sem líta út
eins og laufblöð, til dæmis geislablað
eða músaþorn, Ruscus aculeatus,
sem er talsvert notað sem „grænt“ í
blómaskreytingar.
Trjábolir
Stofn barr- og lauftrjáa er gerður úr
nokkrum lögum. Yst er börkurinn,
síðan innri börkur og svo vaxtarlagið.
Sjálfur viðurinn kallast rysja,
kjarnviður og mergur. Þéttleiki
viðar fer eftir vaxtarhraða trjáa og er
harðviður fenginn úr hægvaxta trjám.
Í fræðsluriti Nýsköpunar-
miðstöðvar Íslands, Tré – trjátegundir
og efniseiginleikar viðarins, segir að
frumubygging viðar samanstandi af
löngum frumum, langfrumur, sem
liggja í lengdarstefnu trésins og gefi
trénu styrk. Líkja má trjáviði við búnt
af sogrörum þar sem stuttfrumur
ganga þvert á rörin en langfrumur
flytja og geyma næringu.
Milli frumanna eru op með
filmu eða membru sem getur opnað
og lokað fyrir vökvastreymi milli
frumanna. Langfrumurnar eru mestur
hluti viðarins, um 90% rúmmálsins.
Þvert á langfrumurnar ganga
merggeislafrumur eða merggeislar
og hugsanlega trjákvoðugöng.
Allt efni innan við ysta lagið eða
börkinn kallast viður. Frumur sem
myndast á vorin eru þunnveggja
með mikið frumuholrými en frumur
sem myndast á haustin eru með
þykka frumuveggi og hafa minna
frumuholrými. Þær eru sterkari og
dökkar á lit. Munurinn á vorvið og
haustvið myndar sýnilega árhringi.
Einn árhringur er ljós vorviður og
dökkur haustviður.
Tré vaxa út á við og stofninn verður
gildari. Þegar tré hafa ekki lengur þörf
fyrir vökvaflutning gegnum innsta
hluta stofnsins deyja innstu frumurnar
og kjarnviður myndast.
Stofn einkímblöðunga
Þykktar- eða síðvöxtur einkím-
blöðunga er minni en tvíkímblöðunga
og oft eins og til dæmis í tilfelli
pálma jafngildur frá rót og upp í
blaðhvirfinguna.
Vaxtarsproti pálma er í toppi
þeirra og nær hann oftast endanlegri
þykkt áður en hann vex upp á við
og þar sem mörg pálmatré mynda
einungis einn stofn drepast þau sé
tekið ofan af þeim.
Lengdartrefjar í stofnum
pálma gera stofninn ótrúlega
sveigjanlegan og með ólíkindum
hvað pálmatré geta staðið af sér
sterka hitabeltisstorma, enda segir
í Sálmum Gamla testamentisins
92:13, „Réttlátir dafna sem pálmi“.
Stöngull bambusa er að öllu jöfnu
holur og því léttur og þolir mikla
sveigju. Bambusar flokkast sem
grös og eru stönglar þeirra ólíkir
að lit eftir tegundum, grænn, gulur,
rauður, blár, svartur og röndóttur.
Bambus vex mjög hratt og dæmi
er um rúmlega 90 sentímetra vöxt
á sólarhring og sagt er að það megi
horfa á fljótsprottnustu tegundirnar
vaxa. Tegundin Dendrocalamus
giganteus verður allra bambusa
hæstur og getur náð 30 metra hæð
og stöngullinn verið 35 sentímetrar
í þvermál við bestu skilyrði.
Þykkblöðungar
Kaktusar eru þykkblöðungar sem
mynda myndarlegan stofn
sem safnar í sig vatni sem
forða.
Önnur planta
sem myndar
glæsilegan stofn
er baobab, eða
apabrauðstréð
eins og það
er stundum
kallað. Í heimi
grasafræðinnar
er baobab ekki
flokkað sem
tré heldur sem
þykkblöðungur.
Reyndar með
allra stærstu þykk-
blöðungum sem
vissulega líkjast trjám í
útliti. Stærð og útlit baobab
er ólíkt eftir tegundum.
Hæð þeirra er frá 5 og upp í 40
metrar og breidd stofnsins getur
náð allt að 47 metrum að ummáli.
Baobab-þykkblöðungar vaxa
yfirleitt stakir og setja sterkan svip
á umhverfið þar sem þeir gnæfa yfir
eins og steinrunnir risar.
Trjáburknar
Ólíkt öðrum burknum mynda
trjáburknar stofn sem getur náð
15 til 20 metra hæð en eru yfirleitt
lægri, eða milli fjórir og fimm
metrar eftir tegundum. Eins og hjá
pálmum er vaxtarbroddur trjáburkna
í enda þeirra og mynda blöðin
topphvirfingu.
Stofn, stöngull og myrra
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Rafsalurinn í höll Katrínar fyrstu, eiginkonu Péturs mikla Rússakeisara.
Höllin er skammt utan við Pétursborg. Raf er steinrunnin trjákvoða barrtrjáa.
Mynd / wikimedia.org
Trjáburknar á Filippseyjum. Mynd / wikimedia.org
Flatir stönglar geislablaðs eða músa-
þorns, Ruscus aculeatus, líkjast blöðum.
Mynd / phytoimages.siu.edu
Dendrocalamus giganteus verður allra bambusa hæstur og getur náð 30
metra hæð og stöngullinn verið 35 sentímetrar í þvermál við bestu skilyrði.
Mynd / wikimedia.org
Ytri börkur
Innri börkur
< Rysja >
< Kjarnviður >
Mergur
FRÆÐSLA