Bændablaðið - 09.03.2023, Side 53

Bændablaðið - 09.03.2023, Side 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023 með þjálan og góðan vilja sem fara vel í reið með góðum höfuðburði. Kolskeggur hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Kjerúlf frá Kollaleiru Kjerúlf er tuttugu vetra gamall undan Flugu frá Kollaleiru, Bjartsdóttur frá Egilsstaðabæ og Orrasyninum Takti frá Tjarnarlandi en móðir hans var Kjarvalsdóttirin Kórína frá Tjarnarlandi. Kjerúlf er ræktaður af Hans Friðrik Kjerulf sem á hestinn ásamt Leó Geir Arnarsyni. Kjerúlf fór í sinn hæsta dóm, 8,44 í aðaleinkunn á Landsmótinu á Vindheimamelum árið 2011, þá átta vetra gamall. Fyrir sköpulag fékk Kjerúlf 8,14 þar af hæst 8,5 fyrir samræmi, fótagerð, hófa og prúðleika.Fyrir kosti hlaut hann 8,64, þar af hæst 9,5 fyrir brokk og 9,0 fyrir hægt tölt, tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið. Kjerúlf fór í fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi árið 2016 og var sýndur með hópi afkvæma á Landsmótinu á Hólum það ár. Af 360 fæddum afkvæmum hafa 50 skilað sér í dóm og er meðalaldur þeirra tíu ár. Hæst dæmda afkvæmið er Kaldalón frá Kollaleiru undan Heiði frá Hjallalandi, sem var sýndur 2020 í 8,56 með 9,0 fyrir prúðleika, tölt, brokk, skeið, samstarfsvilja og fegurð í reið. Þá er það Róska frá Hákoti undan Þorradótturinni Frá frá Hákoti, hún fór í 8,50 í aðaleinkunn sex vetra gömul með 9,0 fyrir höfuð, háls, herðar og bóga, bak og lend, brokk og vilja og geðslag. Þriðja hæst dæmda afkvæmið er svo Varúlfur frá Eylandi undan Orradótturinni Vöku frá Árbæ. Hann fór hæst í 8,34 í aðaleinkunn í kynbótadómi árið 2020 en hefur síðan þá komið fram í allmörgum keppnum úti í Svíþjóð. Kjerúlf er nokkuð sterkur á framræktaða eiginleika og er lýsing afkvæma afar lík milli fyrstu verðlauna og heiðursverðlaunanna sem hann hefur nú náð lágmörkum til. Heiðursverðlaunin byggjast á aðaleinkunn án skeiðs sem er 121 stig eftir haustútreikninga 2022. Kynbótamat: Aðaleinkunn: 116 Sköpulag: 105 Hæfileikar: 116 Mæting: 114 Dómsorð: Kjerúlf gefur hross í tæpu meðallagi. Höfuðið er svipgott með vel opin augu en stundum með krummanef. Afkvæmin hafa sterka yfirlínu í hálsi og baki. Hálsinn er reistur við háar herðar en getur verið djúpur, bógalega er góð. Bakið er breitt og lendin öflug en getur verið afturdregin og gróf. Afkvæmin eru sívöl og hlutfallarétt en fótahæð jafnan í meðallagi. Fætur eru þurrir með öflugar sinar en ekki mikil sinaskil og afturfætur geta verið nágengir. Hófar eru efnismiklir með hvelfdan botn, prúðleiki er í meðallagi. Afkvæmin hafa afar gott tölt, takthreint, rúmt og jafnvægisgott með góðri fótlyftu. Brokkið er skrefmikið og rúmt, stökkið ferðmikið en fetið fremur skrefstutt. Sé skeið fyrir hendi er það öruggt. Afkvæmin eru ásækin í vilja, vakandi og þjál og fara vel í reið með háum fótaburði. Kjerúlf hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. RML sendir ræktendum og eigendum þessara hesta innilegar hamingjuóskir. Mikil vinna liggur að baki þessum mikla árangri sem er ómetanlegt fyrir ræktunarstarfið. Halla Eygló Sveinsdóttir Elsa Albertsdóttir, ráðunautar í hrossarækt. TRAUST FASTEIGNASALA 464 9955 byggd@byggd.iswww.byggd.is SKIPAGATA 16 ◊ OPIÐ KL. 9-17 FÖS 9-16 ◊ FASTEIGNASALAN BYGGÐ VÍÐIGERÐI Í EYJAFJARÐARSVEIT Til sölu er jörðin Víðigerði í Eyjafjarðarsveit í um 16 km aksturs- fjarlægð frá Akureyri. Á jörðinni stendur stórt einbýlishús á þremur hæð- um, hlaða, votheysturn, fjós sem var fyrst byggt árið 1967 og viðbygging frá 2008. Lítið alifuglahús, fjárhús og hlaða við það sem stendur efst og nyrst af byggingunum. Einnig eru þar tvær véla og verkfærageymslur, neðst bygginga á jörðinni. Stærð jarðar er talin vera um 200 ha. og af því ræktað land um 50 hektarar Jörðinni fylgir um 235 þús l. mjólkurkvóti, nú 45 mjólkandi kýr og 40 aðrir gripir í uppeldi Tæki sem fylgja skv. tækjalista sem má nálgast með því að hafa samband á skrifstofu Kolskeggur frá Kjarnholtum á Landsmóti á Gaddstaðaflötum 2022. Knapi er Sigurður Sigurðarson. Mynd/KollaGr. Tindur frá Árdal, undan Ljósvaka. Knapi er Helga Una Björnsdóttir. Mynd / Hannes Sigurjónsson Þór frá Torfunesi undan Kolskeggi. Mynd / Baldvin Kr. Baldvinsson Kaldalón frá Kollaleiru, undan Kjerúlf. Mynd /Aðsend Til sölu 68,5m2 iðnaðarbil til afhendingar strax í Breiðamýri 3, Selfossi. Allar nánari upplýsingar veitir Loftur Erlingsson, löggiltur fasteignasali S: 896 9565, loftur@husfasteign.is

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.