Bændablaðið - 09.03.2023, Qupperneq 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Í síðustu viku þinguðu búgreinar
Bændasamtaka Íslands og ræddu
framtíð búgreinanna og hvernig
hana mætti bæta. Oft má gott
bæta og í tilfelli skógarbænda
lögðu þeir fram 10 tillögur til
athugunar, til heilla fyrir vaxandi
búgrein − og vitanlega betri heim.
Hér verður
fjallað um þrjár
þessara tillagna.
Þær fá sérstaka
athygli fyrir
þær sakir að
þær skipta allar
mjög miklu
máli fyrir nútíð
og framtíð;
m a r k m i ð
stjórnvalda í loftslagsmálum,
sjálfbærni og uppbyggingu
skógarauðlindar.
Kolefnisbrúin
Kolefnisbrúin hefur verið í
smíðum í um hálfan áratug og allar
götur með það sem meginmarkmið
að þjóna bændum sem allra best.
Skógarbændur hafa rætt um
kolefnismál í bráðum þrjá áratugi
og loksins eru í sjónmáli lausnir
sem eru nægilega áreiðanlegar svo
hægt sé að byggja á.
Kolefnisbrúin ehf. er fyrirtæki
í eigu bænda og hver sá sem
er félagsmaður í BÍ og/eða
félagsmaður í landshlutabundnu
félagi skógarbænda er sjálfkrafa
eigandi. Segja má að hlutverk
Kolefnisbrúarinnar sé tvíþætt,
annars vegar að þjónusta bændur
sem vilja leggja loftslagsvánni lið
með skógrækt og hins vegar að
tengja fjárfesta við bændurna.
Fjárfestar geta verið af ýmsum
toga, svo sem fjárfestingasjóðir
og þjónustuaðilar landbúnaðarins.
Mörg brýn verkefni eru í gangi
nú þegar, bæði af hálfu bænda
og fjárfesta.
Skógrækt er langtímaverkefni
og því fyrr sem hún hefst því fyrr
fer hún að gegna sínu hlutverki.
Efling Kolefnisbrúarinnar er því
eitt aðalverkefni skógarbænda
hjá BÍ því í henni leynast
fleiri tækifæri en fólk gerir sér
grein fyrir.
Horft fram á við
Skömmu fyrir Covid gáfu
Landssamtök skógareigenda (LSE)
og Skógræktin út skýrsluna „Horft
fram á við“. Í skýrslunni er farið yfir
stöðu skógræktar í víðum skilningi
þar sem höfuðáhersla er á afurðir
skógarins og framtíðarhorfur. Ýmis
verkefni eru í handraðanum við að
koma íslensku timbri úr skógum
bænda til vinnslu og á markað. Brýnt
er að missa ekki sjónar á þróun nýs
markaðar því með tíð og tíma getur
skógarauðlindin mögulega gert
Íslendinga sjálfbæra um timbur, en
það er einmitt meginmarkmiðið með
nytjaskógrækt.
Á þingi skógarbænda var
samhljómur um mikilvægi þess
að þróa frekar ferlið frá hráviði til
kaupanda.
Skjólbelti
Skjólbelti eru víða ræktuð um
sveitir. Oftar en ekki koma þau til
með stuðningi og skipulagningu
frá Skógræktinni eða forverum
hennar. Ávinningur skjólbelta er
fyrst og síðast skjól fyrir fjölbreytta
útiræktun, auk þess sem búpeningur
nýtur góðs af skjólinu þegar það á
við. Þessa daga er mikill áhugi hjá
stjórnvöldum um enn meiri ræktun á
ökrum og að stórefla kornrækt, ásamt
væntanlega fóðurrækt, grænmetisrækt,
olíuplönturækt (repja), jólatrjáarækt,
ávaxtarækt og hamprækt svo lítið eitt
sé nefnt.
Stórefla þarf skjólbeltarækt/
skjólskógarækt ef raunverulegur vilji
er til eflingar útiræktunar en að koma
upp góðu skjóli tekur nokkur ár og
jafnvel áratugi. Skjólbelti taka gjarnan
yfir dýrmætt ræktarsvæði þar sem tún
eru fyrir og skjólbeltaræktin er því ekki
alltaf sjálfsögð, þó svo að þau auki
uppskeru og bæti ræktunarskilyrði
til lengri tíma. Jákvæð hvatning til
skjólbeltaræktar er því nauðsynleg.
Eftirspurn eftir íslenskum
matvælum frá almenningi er til
staðar svo íslensk stjórnvöld geta
látið skjólbelti sig varða. Þessu vilja
skógarbændur vekja máls á.
Skógarbændur í BÍ
Það er ýmislegt sem sameinar
bændur en fátt sameinar meira en
viljinn til að gera landi sínu gott og
nytja skynsamlega. Skógarbændur
geta hæglega miðlað reynslu sinni
til annarra bænda enda er skógrækt
farin að skila afurðum, bæði til
yndis og hags. Bændasamtök eru
samnefnari allra bænda og berjast
fyrir hagsmunum bænda. Hafandi það
fyrir augunum, að skógarauðlindin
dafnar sem aldrei fyrr, er næg ástæða
til að vinna skógræktinni hag inn í
framtíðina.
Deild skógarbænda, í samvinnu
við landshlutabundnu skógar-
bændafélögin, hefur í hyggju að
efna til málþings á haustdögum.
Bændasamtök Íslands sjá bjarta
framtíð í landbúnaði, öllum
landbúnaði.
Jóhann Gísli Jóhannsson,
formaður búgreinadeildar
skógarbænda.
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA
Orkuöryggi og raforkuöryggi eru
tvær greinar á sama meiði. Hvað
er forgangsorka?
Orkuöryggi
Notendur eiga
að hafa aðgang
að hvers kyns
orku, rafmagni,
h i t a v e i t u ,
annarri varma-
orku, eldsneyti
o.fl., þar sem
hennar er þörf,
með hliðsjón af almennri stefnu-
mörkun stjórnvalda á hverjum
tíma og skilgreindum áreiðanleika
og gæðum. Um þetta er kveðið á í
orkustefnu, þjóðaröryggisstefnu og
lögum. Þessu öryggi getur t.d. verið
ógnað af göllum í raforkukerfinu
eða slælegu viðhaldi eða úreldingu
innviða, skemmdarverkum,
náttúruvá eða ófriði.
Mikilvægt er talið að tilteknar
lágmarksbirgðir eldsneytis séu
ávallt í landinu og þeim dreift á
nokkra staði.
Raforkuöryggi
Notendur eiga að hafa aðgang að
raforku þegar hennar er þörf og þar
sem hennar er þörf, með hliðsjón af
almennri stefnumörkun stjórnvalda
á hverjum tíma og skilgreindum
áreiðanleika og gæðum. Notendur
í öllum landshlutasamtökum
sveitarfélaganna hafa orðið fyrir
raforkutruflunum eða tímabundum
skorti á raforku á þessari öld enda
raforkumál eitt helsta umræðu-
og viðfangsefni samfélagsins.
Raforkuöryggi varðar bæði
framleiðslu og afhendingu
raforkunnar, sem og spennuflökt.
Afhendingaröryggi
Flutnings- og dreifikerfi raforku
sýnir sig að vera óöruggara en
raforkuverin. Það er auðvitað stærra
og útbreiddara en virkjanasvæðin og
„útsettara“ en þau.
Afhendingaröryggið felst í reglum,
aðgerðum, tækni og endurbótum á
aðstæðum og mannvirkjum sem miða
að því að straumrof, spennusveiflur
og hvers kyns rekstrartruflanir á
raforkuflutningi verði sem allra
minnstar.
Skerðanleg orka
Hugtakið er haft um raforku sem seld
er með fyrirvara í heildsölusamningi.
Það varðar mögulega skerðingu af
hálfu framleiðandans, t.d. vegna
framleiðslubrests og bilana í, eða
skemmda á, sjálfu raflínukerfinu
eða mannvirkjum þess. Orkufrek
iðnfyrirtæki, heildsölufyrirtæki
fjarvarmaveitna, fiskiðjur eða
sundlaugar eru dæmi um aðila sem
geta orðið fyrir skertri afgreiðslu
raforku. Raforka seld sem skerðanleg
nam rúmum 6.000 GWst (6 TWst)
árin 2017 til 2021. Oft ber á að
skerðanleg orka er nefnd ótrygg
orka.
Forgangsorka
Hugtakið er haft um raforku sem
seld er samkvæmt sérsamningi til
orkusækinnar starfsemi og hefur
forgang við afhendingu komi til
orkuskerðinga.
Ein ástæða þess að málmiðjur
sækjast eftir slíkum samningum er
sú staðreynd að langvinnt straumrof
veldur miklum framleiðslutöfum
og kostnaði vegna flókinnar
gangsetningar framleiðslunnar
að nýju.
Ari Trausti Guðmundsson,
jarðvísindamaður, rithöfundur
og fyrrverandi þingmaður.
Megináherslur skógarbænda
Búgreinaþing sauðfjárbænda var
haldið í Reykjavík 22.-23. febrúar.
Aðdragandi þingsins var góður
þar sem 52 tillögur lágu fyrir
nefndum deildarinnar
Nefnda r-
starfið gekk vel
og er ánægjulegt
að sjá hvað
þetta nýja form
félagskerfisins
virkar vel. Við
erum öll að læra
betur og betur
á að funda í
fjarfundabúnaði
og nýtist það afar vel í öllu
nefndarstarfi.
Nefndirnar skiluðu vel unnum
tillögum og sköpuðust um þær
heilbrigðar og góðar umræður. Á
þinginu voru samþykktar 33 ályktanir
og eru þær nú aðgengilegar á www.
bondi.is. Ég vil hvetja sauðfjárbændur
til að kynna sér vel þær ályktanir sem
voru samþykktar.
Það er líka ánægjulegt að starfa
við þær aðstæður sem nú eru uppi í
félagskerfinu, góð blanda þekkingar
og reynslu við áhuga og þekkingu
ungu bændanna. Það er sem betur
fer fullt af ungu fólki sem er tilbúið
til þess að starfa í sauðfjárrækt.
Fólk sem hefur áhuga á að gera
sauðfjárrækt að sínu ævistarfi. Það
er fátt eins mikilvægt fyrir framtíð
landbúnaðar eins og kynslóðaskipti.
Það er ekkert sjálfsagt að ungt fólk
hasli sér völl í sauðfjárrækt eins og
aðstæður greinarinnar hafa verið
síðustu árin. Nagandi afkomuótti og
óvissa með framhaldið. En áhuginn
er til staðar, nú er verkefnið að tryggja
rekstur sauðfjárbúa. Það þarf að koma
búgreininni þannig fyrir að bændur
geti treyst á afkomuna.
Líkt og mörg undanfarin
ár var nýliðun til umræðu á
búgreinaþingi sauðfjárbænda.
Búgreinaþingsfulltrúar voru
einhuga um mikilvægi nýliðunar en
telja jafnframt að sterkasti hvatinn
fyrir ungt fólk til að vilja fjárfesta
í greininni sé bætt rekstrarafkoma.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt á
þinginu.
„Nýliðun í stétt sauðfjárbænda er
mikilvæg svo búgreinin haldi áfram
að þróast og eigi bjarta framtíð.
Mikilvægasta skrefið til að auka
nýliðun er að bæta rekstrarafkomu
stéttarinnar. En við komandi
endurskoðunarvinnu, sérstaklega á
rammasamningi, verði horft til að
auka stuðning við nýliða.“
Hár meðalaldur bænda á Íslandi
hefur talsvert verið til umræðu
að undanförnu. Hann er þó ekki
eingöngu áhyggjuefni hérlendis
því í Bretlandi er hann 59 ár og
67 ár í Japan svo dæmi séu tekin.
Meðalaldur sauðfjárbænda á Íslandi
er 63 ár að undanskildum þeim búum
sem rekin eru af lögaðilum, sem eru
tæp 21%. Það er þó áhugavert að
benda á að meðalaldur þeirra bænda
sem fá greiðslur úr sauðfjársamningi
og eru með 1-300 kindur er 65 ár en
þeirra sem eru með 301 eða fleiri
kindur er 57 ár. Ánægjulegast af öllu
er þó að meðalaldur þeirra fulltrúa
sem sátu nýafstaðið búgreinaþing
sauðfjárbænda var 43 ár. Því er
hægt að segja með sanni að þar
hafi ungt fólk í greininni markað
áherslur deildarinnar fyrir komandi
endurskoðun.
Í 3. tbl. Bændablaðsins 2023
skrifar Svandís Svavarsdóttir
grein þar sem hún kemur að afar
mikilvægum punkti og ánægjulegt að
finna að skilningur hennar á slæmri
efnahagslegri stöðu bænda er fyrir
hendi. Þar segir hún að mikilvægasta
forsendan fyrir því að landbúnaður
þrífist sé að koma bændum inn í
sama efnahagslega veruleika og
öðrum stéttum þjóðfélagsins. Undir
þetta tek ég heilshugar, enda benti
ég á í grein í 1. tbl. Bændablaðsins
2023 hversu illa hefur gengið að
fylgja eftir d.lið 1. greinar markmiða
búvörulaga þar sem segir að tryggja
eigi bændum sömu kjör og öðrum
stéttum þjóðfélagsins. Ég er sammála
Svandísi, þetta þarf að laga. Nú er
bara að finna leiðirnar.
Trausti Hjálmarsson,
formaður búgreinadeildar
sauðfjárbænda.
Trausti
Hjálmarsson.
Ungir sauðfjárbændur
leggja línurnar
Jóhann Gísli
Jóhannsson.
„Skógarbændur geta hæglega miðlað reynslu sinni til annarra bænda enda
er skógrækt farin að skila afurðum, bæði til yndis og hags.”
Sundlaugar eru meðal vinsælustu þjónustueininga samfélagsins en flokkast
með þeim orkukaupendum sem sæta skerðanlegri raforku þegar svo ber undir.
Mynd / Akureyrarbær
Orkuöryggi er mikilvægt
– Fróðleikur um orkumál og orkuskipti – 4. hluti
Ari Trausti
Guðmundsson.
FRÆÐSLA