Bændablaðið - 09.03.2023, Side 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Þessi grein
er nú horfin
af heimasíðu
tímaritsins þar
sem hún var
búin að vera frá
því hún birtist
þar 9. september
2022. En á
heimasíðunni
hafði hún verið
líklega lengur en nokkur önnur
grein áður. Auðvelt er samt að
finna hana á heimasíðunni vegna
þess að greinunum er þar raðað í
útgáfudagsetningaröð.
Þessar greinar hef ég reynt að
tengja íslensku sauðfé vegna þess
að ég ætla að lesendur hafi mestan
áhuga á því. Höfundar virðast hins
vegar ekkert þekkja um litaerfðir
hjá íslensku sauðfé og ekki þekkja
heimsþekktar rannsóknir Stefáns
Aðalsteinssonar á því sviði. Auk
þess er ég það heppinn að hafa
undir höndum fjölritað hefti um
eingenaerfðir hjá sauðfé sem Stefán
tók saman á níunda áratugnum og
skýrir þar mun betur en yfirlitsgreinin
litaerfðir sauðfjár. Stefán var alger
snillingur í slíkri framsetningu.
Góður liðsauki
Mér hefur borist góður liðsauki
í umfjöllun um þessi mál sem er
greinin „Litafjölbreytni og erfðir
lita hjá íslensku sauðfé“. Hún birtist
í síðustu heftum Náttúrufræðingsins
á síðasta ári og kom út í árslok 2022.
Höfundur er Emma Eyþórsdóttir og
nokkrir samstarfsmenn hennar hjá
LbhÍ, frá þeim tíma sem hún starfaði
þar.
Greinin gerir á frábæran hátt grein
fyrir litafjölbreytileika hjá íslensku
sauðfé og fjallar á mjög skýran hátt
um erfðavísana sem stýra þessum
breytileika. Þar eru frábærar lýsingar
á hinum fjölbreyttustu litum. Greinin
er stútfull af frábærum myndum af
þessari litafjölbreytni sem segir
margfalt á við langan texta. Þá er í
greininni ákaflega góður kafli um
sameindafræðilegar rannsóknir á
þessu sviði sem skýra þessi mál miklu
betur en yfirlitsgreinin góða í GSE.
Megi einhver viðbótarfræði
sækja í yfirlitsgreinina eru það nöfn
á einhverjum bösum sem fundnir
eru í erfðamengi einnar eða tveggja
sérkennilega lita kínverskra kinda.
Slíkt er órafjarri áhugasviðs nokkurs
hérlends lesanda. Finnist samt slíkur
verð ég að benda viðkomandi á
greinina sjálfa sem auðvelt er að
finna á netinu.
Íslenskt sauðfé
Hér verður því nánast eingöngu
fjallað um litaerfðir hjá íslensku
sauðfé. Samt er minnt á það að
hjá ýmsum erlendum fjárkynjum
er að finna fjölda erfðavísa sem
stýra lit en ekki finnast hjá íslensku
fé og frá einhverjum þeirra sagt í
yfirlitsgreininni. Kerfi yfirstjórnar
litaerfðanna er eftir sem áður í
meginatriðum það sama og þekkist
hjá íslensku fé. Ég held að við látum
okkur í megindráttum duga að velta
slíkum erfðum fyrir okkur.
Rétt held ég að sé að rifja upp
örfá grundvallaratriði litaerfða
hjá íslensku sauðfé, sem Stefán
Aðalsteinsson setti fyrst fram fyrir
rúmum sex áratugum og fullmótaði
síðan í doktorsritgerð sinni áratugi
síðar árið 1970. Þau hafa síðan dugað
sauðfjárræktendum á Íslandi til að
svara nánast öllum spurningum í
sambandi við erfðir lita hjá fé sínu.
Hér á eftir verður oft vitnað til
ákveðinna litaerfðavísa. Þar mun
ég nota tölustafatákn erfðavísa
LESENDARÝNI
Jón Viðar
Jónmundsson.
Erfðafræði útlitseinkenna sauðfjár – fimmti hluti:
Litaerfðir hjá sauðfé
Hér höldum við áfram flakki okkar um yfirlitsgreinina Genetics of the
phenotypic evolution in sheep: a molecular look at diversity-driving
genes í hinu þekkta búfjárkynbótariti Genetics Selection Evoluton.
Hér á landi eru tvö fjárkyn, íslenska féð og forystuféð. Blesi 98-884 frá Klifshaga 1 var verðugur fulltrú forystufjárins,
sem yfirleitt er skrautlegt að lit. Í Náttúrufræðingnum árið 2015 er yfirlitsgrein um forystuféð. Þar er mat á tíðni
einstakra litaerfðavísa hjá því kyni árið 2009. Lit Blesa er þannig lýst í hrútaskrá að hann sé svartblesóttur með
hvítan kraga og leista á öllum fótum. Mynd / Ólafur G. Vagnsson
GARÐYRKJA
Dagana 16.-18. mars næst-
komandi fer fram í Laugar-
dalshöllinni Íslandsmeistara-
mót iðn- og verkgreina og
kynning á námi framhaldsskóla
í landinu undir yfirskriftinni
Mín framtíð.
Að sjálfsögðu verða allar
garðyrkjugreinar sem kenndar eru
í Garðyrkjuskólanum kynntar á
staðnum og að auki verður keppni
í skrúðgarðyrkju.
Keppni í iðn- og verkgreinum?
Íslandsmeistaramót iðn- og
verkgreina hefur verið haldið
um langt árabil og hefur
skrúðgarðyrkjan verið með í
keppninni nánast frá upphafi
og einnig hefur verið keppt í
blómaskreytingum í nokkur skipti.
Nú kann einhver að velta fyrir sér
hvort raunverulega sé hægt að
keppa í iðngreinum og svarið er
já, svo sannarlega. Keppendur fá
ákveðið verkefni sem þeir þurfa
að leysa á ákveðnum tíma og af
ákveðnum gæðum.
Skrúðgarðyrkjunemar þurfa
þannig að búa til ofurlítinn garðreit
og nota til þess það handbragð sem
þeir hafa nú þegar lært í námi. Í
þessum garði er þá til dæmis
hellulögn, vegghleðsla, landmótun
og gróðursetning og fá gestir á
mótinu að fylgjast með framvindu
verkefnanna á verktímanum. Miðað
er við að keppendur fái þrjá daga
til að ljúka keppni og eru dómarar
að störfum allan þann tíma við að
fylgjast með verklagi og árangri
keppendanna. Á sama tíma er verið
að keppa í fjölmörgum öðrum
iðngreinum í Laugardalshöllinni
og er mjög áhugavert að ganga á
milli keppnissvæða og sjá hvað
mismunandi iðngreinar eru að
fást við.
Garðyrkjugreinar
Keppnishluti Minnar framtíðar
er vissulega mjög áhugaverður
en samhliða keppninni er verið
að kynna fjölmargar iðn- og
starfsgreinar sem ekki eiga
fulltrúa í keppninni sjálfri. Aðrar
garðyrkjugreinar en skrúðgarðyrkja
verða einmitt kynntar rækilega fyrir
gestum og gangandi.
Blómaskreytinganemar verða
á staðnum og sýna handbragð
sitt, auk þess sem hægt verður
að finna blómaskreytingar hér
og þar á svæðinu og fólki verður
boðið að koma og prófa að sýsla
við blómin. Eitt af verkefnum
blómaskreytingabrautarinnar er
að setja upp blómum skrýddan
myndaramma þar sem gestir geta
stillt sér upp og látið taka af sér
myndir fyrir samfélagsmiðla. Án
efa verða fjölmargir spenntir fyrir
því að eiga mynd af sér í blómahafi.
Garð- og skógarplöntubraut,
ylræktarbraut og námsbraut
um lífræna ræktun matjurta
verða með kynningu á sínum
verkefnum á staðnum, meðal
annars verður sett upp sýnishorn
af jarðarberjaræktun þar sem hægt
er að sjá hvernig þessi ljúffengu
ber eru framleidd í gróðurhúsum.
Garð- og skógarplöntunemendur
sýna mismunandi afurðir í sinni
grein, allt frá litlum sáðplöntum
yfir í fullvaxin tré og nemendur í
lífrænni ræktun verða með sýningu
á því hvernig lífrænt efni, sem fellur
til í eldhúsinu heima við, verður að
frjósamri ræktunarmold. Gestum
gefst færi á að sá grænmetisfræi
í litla potta og taka þau með
sér heim.
Braut skógar og náttúru,
skógræktarbrautin, verður
einnig með kynningu á sínum
viðfangsefnum. Þar verður
meðal annars hægt að sjá hvernig
rafmagnskeðjusagir og önnur
verkfæri tengd skógrækt eru notuð
við viðarvinnslu og skógarhögg
og gestir geta fengið að spreyta
sig á því að telja árhringi og meta
þannig aldur trjáa. Í tengslum við
kynningu skógræktarbrautarinnar
verður hægt að sjá hvernig viður úr
skógi er nýttur í húsasmíði, en hún
er ein af þeim iðngreinum sem hægt
er að læra innan Fjölbrautaskóla
Suðurlands, en Garðyrkjuskólinn
starfar einmitt undir stjórn FSu.
Jafnframt verður FSu með
kynningu á öllu öðru námi sem
fram fer innan skólans.
Mikil fjölbreytni í iðn-
og verkgreinum
Fimmtudaginn 16. mars og
föstudaginn 17. mars munu um
8.000 nemendur í efri bekkjum
grunnskóla mæta í Laugardalshöll
til að kynna sér framhaldskólanám
og iðn- og verkgreinar og
laugardaginn 18. mars er húsið opið
fyrir almenningi. Þá er tilvalið að
bregða sér í heimsókn í höllina og
kynna sér þá ótrúlegu fjölbreytni
sem býr í iðn- og verkgreinum
í landinu og síðast en ekki síst,
gleðjast með garðyrkjunni, þar er
framtíðin svo sannarlega björt.
Guðríður Helgadóttir,
fagstjóri garðyrkjubrauta í
Garðyrkjuskólanum – FSu.
Í þessum garði er hellulögn, vegghleðsla, landmótun og gróðursetning.
Myndir / GH
Mín framtíð í garðyrkjunni
Í tengslum við kynningu skóg-
ræktarbrautarinnar verður hægt að
sjá hvernig viður úr skógi er nýttur
í húsasmíði.
Sauðfjársetrið á Ströndum 20 ára:
Myndir og minningar
Þetta einstaka verk er 20 ára
afmælisrit Sauðfjársetursins
á Ströndum. Með fáum
orðum vil ég reyna að vekja
athygli sem flestra á þessu
einstaka riti.
Heiti ritsins segir allt um efni
og innihald þess. Þarna hafa
yfir 40 aðilar, Strandamenn
eða fólk með tengsl við
svæðið verið fengið til að
skrifa stutt minningarbrot
sem tengjast Ströndum.
Þessir þættir eru skrifaðir
með tilvísun til ljósmynda
sem birtar eru í bókinni ásamt minningabrotunum. Myndirnar eru frá misjöfnun
tíma og sögusvið þáttanna þannig talsvert yfir hálf öld.
Höfundar efnisins eru mjög breytilegur hópur en þar er að finna mestu
ritsnillinga þjóðarinnar í dag eins og Gerði Kristnýju og Bergsvein Birgisson.
Ritfærni meirihluta höfunda er samt með ólíkindum og mættum við mörg sem
stundum erum að myndast við að skrifa í Bændablaðið hrósa okkur réðum við
yfir aðeins hluta af töfrum flestra höfundanna í ritun og meðferð á íslensku máli.
Bókina mætti hlaða meira lofi því hún er meistaraverk. Sauðfjársetrið á
Kirkjubóli er án alls vafa eitt merkasta framlag til atvinnu- og menningarmála í
Strandasýslu á síðustu áratugum. Bókin er talandi vottur þess.
Ég hvet alla unnendur íslenskrar dreifbýlismenningar og frásagnalistar að
verða sér úti um eintak af bókinni vegna þess að þar er sjón sögunni ríkari.
Bókabúðir eru að verða fáséðar í dreifbýli á Íslandi. Til að nálgast bókina er
fólki því bent á að hafa samband beint annaðhvort á tölupósti, saudfjarsetur@
saudfjarsetur.is eða í síma 693-3474. /JVJ