Bændablaðið - 09.03.2023, Page 65
65 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Peysubrjóst er hentug flík innan undir
úlpu eða jakka, hlýtt að framan og á
öxlum og vænn rúllukragi. Jafn auðvelt
í notkun og trefill!
Ein stærð, en auðvelt að bæta við lykkjum og
umferðum að eigin vali.
Sídd að framan: um 50 sm. Sídd að aftan: um
20 sm – eða að eigin ósk. Breidd: um 35 sm
Prjónaband: 150 gr tvöfaldur Þingborgar-
plötulopi eða sambærilegt, sjá Bandbreyti
Maju á thingborg.is og uppspuni.is. Prjónar:
6-7 mm
Tveggja lykkju Icord kantur: síðustu tvær
lykkjurnar óprjónaðar með bandið fyrir
framan, prjónaðar í upphafi umferðar.
Kantarnir prjónaðir þannig alla leið.
Stroff: Fitja upp 51 lykkju. Fyrsta umferð (að
aftan) slétt. Önnur umferð, að framan: tvær
sléttar (Icord), 1 brugðin og ein slétt út prjóninn,
endað á tveim sléttum (Icord).
Þriðja umferð, að aftan: sléttu lykkjurnar
prjónaðar, þær brugnu teknar óprjónaðar með
bandið fyrir framan. Önnur og þriðja umferð
endurtekin, alls 10 umferðir.
Bolur
Mynstur: byrjað að framan, Icord á báðum
köntum. Garðaprjón 7 lykkur, áttunda lykkjan slétt
og tekin óprjónuð að aftan með bandið að framan.
Hálsmál: Þegar bolur mælist ca 50 cm (eða sídd
að eigin vali) eru 17 lykkjur fyrir miðju settar í
hvíld, axlir síðan prjónaðar hvor fyrir sig og í annari
hvorri umferð settar 2-1-1 lykkjur í hvíld.
Axlir: Axlir verða fallegri með þremur styttum
umferðum, til að hálsmál að framan sé lægra
en að aftan.
Bak: Prjónið 17 lykkjur á öxl, fitjið upp 17 lykkjur,
prjónið 17 lykkjur af seinni öxl, alls 51 lykkja á
prjóninum Prjónað í sömu breidd og mynstri og
bolur, endað með samskonar stroffi og að framan,
alls 20 cm eða lengd að eigin vali.
Kragi: Takið upp 54 lykkjur og prjónið
hálfklukkuprjón í hring, ca 20 cm. Fellið laust
af. Nú er bara eftir að ganga frá endum, skola
og þurrka!
Hönnun: Katrín Andrésdóttir
Tilvonandi atvinnumaður
í fótbolta
Hann Alexander Nói er
hress og kátur strákur
sem stundar íþróttir og
sveitastörfin af alúð.
Nafn: Alexander Nói
Ásgeirsson.
Aldur: 10 ára.
Stjörnumerki: Bogmaður.
Búseta: Patreksfjörður
og er oft í sveitinni minni,
Innri-Múla Barðaströnd.
Skóli: Patreksskóli.
Skemmtilegast í
skólanum:Stærðfræði og
íþróttir.
Áhugamál: Sveitastörf og íþróttir.
Tómstundaiðkun: Píanó og
íþróttir.
Uppáhaldsdýrið: Kindur og
hundar.
Uppáhaldsmatur: Pulsurétturinn
hans pabba.
Uppáhaldslag: Face Off með
Dwayne Johnson.
Uppáhaldslitur: Blár.
Uppáhaldsmynd: Top Gun
Maverick.
Fyrsta minningin: 6 ára og fékk
að smala í fyrsta sinn.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú hefur gert: Að spila
fótbolta.
Hvað langar þig að verða þegar
þú verður stór: Fótboltamaður.
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins
Þung Þyngst
Létt Miðlungs
ERFINGJAR LANDSINS
HANNYRÐAHORNIÐ
Peysubrjóst
Við hvetjum sem flesta til að hafa samband ef ykkur langar að vera með!
sigrunpeturs@bondi.is
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
www.proventus.is / sími: 551 5000 / proventus@proventus.is
Við finnum rétta
starfsfólkið fyrir
þitt fyrirtæki