Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 24.11.1980, Qupperneq 50
4) Samstarfsverkefni á sviði frístundastarfs og listsköpunar verkafólks.
5) Samvinna félagsmanna verkalýðshreyfingarinnar á íslandi, Grænlandi,
Færeyjum og Norður-Noregi um sameiginleg hagsmunamál, svo sem
um auðlindanýtingu, félags- og menningarlíf sjómanna og fiskvinnslu-
fólks.
Tímaritið Vinnan hefur nú komið út samfleytt í 7 ár og 6 sinnum á ári
undanfarin 2 ár. Útgáfa hennar hefur verið fræðslustarfinu mikill styrkur,
Það er álit þingsins að enn verði að treysta mjög grundvöllinn að útgáfu
Vinnunnar, fjárhagslega og efnislega og útgáfutíðnin aukin og finna verði
leiðir til þess að hún berist á hvert heimili í landinu þar sem félagsmaður í
verkalýðsfélagi býr.
Rétt er að geta þess að Fréttabréf ASl og blöð einstakra félaga, sem komið
hafa út á undanförnum árum og fer sífjölgandi, hafa stuðlað mjög að betra
upplýsingastarfi og auðveldað mörgum að fylgjast betur með því, sem verið
er að fást við í verkalýðssamtökunum á hverjum tíma. En þau munu ekki
geta leyst af hólmi vandað og vel unnið tímarit heildarsamtakanna, þar sem
tækifæri bjóðast til frjálsra skoðanaskipta um hin stærri mál og reynt er að
marka heildarstefnu til framtíðar. Æskilegt er að á vegum verkalýðssamtak-
anna verði gefið út sérstakt rit um túlkun kjarasamninga, laga og reglugerða.
Verkalýðshreyfingin, bæði einstök félög og heildarsamtök, þarf í auknum
mæli að gefa almennum fjölmiðlum gaum. Dagblöð, útvarp og sjónvarp
hafa áhrif á skoðanir fólks, og því m. a. þarf rödd verkalýðssamtakanna að
heyrast þar sem aðrar. Greinar og annað efni frá félagsmönnum stéttarfélag-
anna og forystumönnum þeirra þurfa að birtast í ríkari mæli í blöðum en
verið hefur.
Tryggja þarf góð samskipti við starfsmenn fjölmiðla og gefa þeim kost á
að fylgjast með störfum hreyfingarinnar eins og eðlilegt getur talist.
Allnokkuð hefur áunnist við eflingu Sögusafns verkalýðshreyfingarinnar
og verðmæt aðföng hafa borist safninu. Hins vegar hefur ekki reynst unnt
að standa þar nógu vel að skipulegu starfi. Hefur þar lagst á eitt, skortur á
fjármagni og starfskröftum, auk þröngra húsakynna. Verkefni Sögusafnsins
eru ótæmandi og gildi þess í fræðslustarfi samtakanna verður aldrei full-
metið.
Þegar getið er stóru áfanganna í menningarmálum verkalýðshreyfingar-
innar eftir síðasta þing verður hið mikla átak í húsnæðismálum Listasafns
ASÍ eitt hið stærsta sem unnist hefur. Listaskálinn á ekki sinn líka hér a
landi hvað notagildi og glæsileik varðar. Þegar verkalýðssamtökin hafa leyst
48