Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 24.11.1980, Page 52
3) Þingið leggur áherslu á að verkalýðsfélögin efli sem best þau geta þátt-
töku félagsmanna sinna í Bréfaskólanum, stuðli að því að hið opinbera
veiti aukið fjármagn til skólans og námsárangur við hann veiti réttindi
til framhaldsnáms í skólakerfinu.
Þingið vill ennfremur leggja áherslu á, að Bréfaskólinn henti sér-
staklega vei í fræðslustarfi sjómanna og þarf því að sníða námsefni
skólans við að það komi sjómannastéttinni að sem fyilstum notum.
4) Þingið telur nauðsynlegt og sjálfsagt, að í skólum landsins sé veitt
víðtæk fræðsla um verkalýðshreyfinguna, stjórnkerfi ríkisins, stofnan-
ir atvinnuiífsins og starfsemi þeirra. Þessi fræðsla verði hafin strax á
grunnskólastigi og samvinna höfð við verkalýðshreyfinguna um náms-
efni og kennsluform. Þingið samþykkir að á vegum MFA verði unnin
námsgögn til notkunar í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóia.
5) Verkalýðshreyfingin leggi höfuðáherslu á fræðslu trúnaðarmanna á
vinnustöðum með stöðugu námskeiðahaldi um land allt. Hún nýti að
fuilu þann rétt, sem samningarnir 1977 færðu um vikunámskeið á ári
fyrir hvern trúnaðarmann. Nauðsyn ber líka til að trúnaðarmenn njóti
þar að fullu óskertra launa.
6) Þingið leggur höfuðáherslu á að félögin fylgi fast eftir ákvæðum laga
og samninga um stórbætta aðstöðu á vinnustöðum til félagsstarfa,
fundahalda og starfa að menningarmálum.
7) Þingið beinir því til forustumanna verkalýðsfélaganna að þau beiti sér
fyrir því, að örva félagsmenn til hvers konar áhugastarfa, svo þeir m. a.
verði undir það búnir að mæta aukinni sjálfvirkni, einhæfni í vinnu-
brögðum, styttum vinnutíma og lækkandi eftirlaunaaldri.
8) Þingið beinir því einnig til verkalýðsfélaganna og MFA að stuðla að
því eftir getu, að fólk með skerta starfsorku fái á sem flestum sviðum
notið þess fræðslu- og menningarstarfs, sem verkalýðshreyfingin hefur
upp á að bjóða.
9) Verkalýðshreyfingin miði uppbyggingu orlofsbyggða sinna við það,
að kjarnahús þeirra nýtist henni sem best og verði aðgengileg öllum
til fræðslustarfa og félagsmálastarfa, ennfremur til listsýninga, sögu-
sýninga, smærri leiksýninga, söng- og hljómlistarflutnings.
10) Þingið leggur áherslu á eflingu Sögusafns verkalýðshreyfingarinnar. A
næsta kjörtímabili verði unnið markvisst að öflun munnlegra heim-
ilda, myndefnis, muna og minja og skráningu þeirra. Safnið verði gert
svo aðgengilegt sem verða má til notkunar í fræðslu- og rannsókna-
starfi á sögu verkalýðshreyfingarinnar.
50