Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 24.11.1980, Qupperneq 60
Lögskráningarstjórar um land allt hafa verið of önnum kafnir við
að innheimta gjöld af útgerðinni fyrir ríkisvaldið og kannski m. a. þess
vegna ekki sinnt meginverkefni sínu sem skyldi.
Lögskráningarstjórar eiga ekki að vera innheimtumenn fyrir ríkis-
valdið heldur gæslumenn öryggis, sem sjómönnum eru ætlaðir til að
gæta réttrar, nákvæmrar og ábyggilegrar lögskráningar.
Með ofangreint í huga bendir þingið á nauðsyn þess að sjómanna-
samtökin fái fjárveitingu til þess að ráða starfsmann í þjónustu sína,
er ferðist á milli landshluta og hafi eftirlit með framkvæmd lögskrán-
ingarlaga svo og til þess að framkvæma skyndiskoðanir á öryggisbún-
aði íslenskra skipa.
2. Þingið fagnar nýrri reglugerð, um að allir gúmbjörgunarbátar skuli
búnir neyðarsendistöðvum, og skorar á Siglingamálastofnun ríkisins
að fylgja reglugerð þessari eftir af fullum þunga. Þingið telur brýna
nauðsyn á, að varðskip, strandferðaskip og skip hafrannsóknarstofnun-
arinnar verði búin móttökutækjum slíkra flugradíósendinga.
3. Þingið ítrekar kröfu sína um nauðsyn þess, að sjálfvirkum sleppibún-
aði verði komið fyrir á öllum gúmbjörgunarbátum. Ennfremur að
gúmbjörgunarbátar verði útbúnir öruggum og rakaheldum fíberglas-
hylkjum.
Þá ítrekar þingið nauðsyn þess, að setr verði reglugerð um hámarks
endingartíma hvers konar öryggis- og björgunartækja um borð í ís-
lenskum skipum.
Þingið gerir þá kröfu um að öryggiskeðja verði sett á allar átaks-
blakkir um borð í íslenskum skipum, og að reglugerð verði sett þar um.
Þá gerir þingið þá kröfu að öllum nótaskipum og skuttogurum sé
skylt að vera útbúin slöngubát með utanborðsvél.
Til þess að flýta fyrir framgangi þessara nauðsynlegu öryggismála,
gerir þingið þá kröfu til ríkisstjórnar og Alþingis, að það felli niður
allan söluskatt af hvers konar öryggisbúnaði til skipa. Má í því sam-
bandi benda á, að enginn söluskattur er nú greiddur af fiskumbúðum,
kjötpokum, fóðurmjöli, heyi svo og öðru dýrafóðri.
4. Um leið og þingið fagnar komu hinnar nýju þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar bendir það á, og mótmælir harðlega þeim fráleitu vinnubrögðum
fjárveitingavaldsins að skera stórlega niður rekstrarfé til starfsemi
Landhelgisgæslunnar á sama tíma og efling hennar er þjóðarnauðsyn.
Þingið minnir á það mikla öryggi, sem skip Landhelgisgæslunnar veit-
ir sæfarendum við íslandsstrendur og íbúum einangraðra byggða og
58