Ský - 01.12.2000, Side 6
ÞARF HOFUÐBORG
ÍSLANDS FLUGVÖLL?
Þann 3.febrúar 2001 er stefnt að atkvæðagreiðslu meðal íbúa höfuðborgarinnar um
hvort Reykjavíkurflugvöllur skuli vera áfram íVatnsmýrinni. Hér rekur Leifur Magnús-
son ýmis rök fyrir því að flugvöllurinn verði áfram á sama stað.
Vorið 2000 hófust löngu tímabærar endur-
bætur á flugbrautum Reykjavíkurflugvallar
og var á árinu lokið lagfæringu austur/vest-
urflugbrautarinnar. A næstu tveimur árum
er fyrirhugað að gera tilsvarandi endurbæt-
ur á norður/suðurflugbrautinni. Allt er þetta
í samræmi við vandaða framkvæmdaáætlun
Flugmálastjómar, sem samþykkt var af Al-
þingi, samgönguráðuneyti, umhverfisráðu-
neyti, Flugráði og Reykjavíkurborg, og er
samkvæmt gildandi aðalskipulagi höfuð-
borgarinnar til 2016.
Að loknum þessum endurbótum er jafn-
framt stefnt að byggingu nýrrar samgöngu-
miðstöðvar á flugvellinum og verulegu
átaki flugmálayfirvalda til að endurbæta og
fegra allt flugvallarsvæðið þannig að það
verði höfuðborginni og landinu öllu til
sóma.
Atkvæðagreiðsla meðal höfuð-
borgarbúa
Það hlýtur því að vekja nokkra undran að
borgarráð Reykjavíkur hafi fyrr í ár ákveðið
að stefnt skuli að atkvæðagreiðslu meðal
íbúa Reykjavíkur „um framtíðarnýtingu
Vatnsmýrar og staðsetningu Reykjavíkur-
flugvallar", og í því skyni skipað sérfræði-
hóp til nánari undirbúnings. Tvisvar áður
hefur verið efnt til atkvæðagreiðslu rneðal
borgarbúa, annarra en vegna hefðbundinna
kosninga til Alþingis og borgarstjómar, og í
báðum tilvikum var unnt að svara með ein-
földu jái eða neii. í fyrra skiptið var spurt
um samþykki til hundahalds, en í síðara til-
vikinu hvort Kjalarneshreppur skyldi sam-
einaður Reykjavík. Kjörsókn reyndist að-
eins 20% og 25% í þessum tvennum
kosningum.
Akvörðun um staðsetningu og gerð flug-
vallar höfuðborgarinnar er hins vegar mjög
flókið tæknilegt, fjárhagslegt og pólitískt
viðfangsefni, sem ekki hentar vel til al-
mennrar atkvæðagreiðslu. Þá er slíkt að
sjálfsögðu ekki einkamál íbúa Reykjavíkur,
svo framarlega sem það sveitarfélag vilji
áfram teljast höfuðborg Islands.
Skyldur höfuðborgar
Væntanlega er ekkert að finna í lögum og
reglum landsins, sem formlega felur einu
sveitarfélagi umfram önnur það merka
hlutverk að vera höfuðborg. Því hlutverki
fylgir fjöldi forréttinda, t.d. varðandi stað-
setningu lykilstofnana ríkisins og þar með
á sviði almennrar atvinnuþróunar. Flins
vegar má ætla að skyldumar felist þá fyrst
og fremst í því að tryggja greiðar, öruggar
og hagkvæmar samgöngur við aðra hluta
landsins.
Það var því væntanlega með slfkt í huga
sem bæjarstjórn Reykjavíkur samþykkti á
fundi sínum 26. júní 1919 að leigja Flugfé-
lagi íslands (hinu fyrsta) hluta af Vatns-
mýrinni undir flugvöll, og bæjarráð
Reykjavíkur ákvað á fundi sínum 8. mars
1940 „að ætla flugvelli stað í Vatnsmýr-
inni“.
Samgönguleiðir
Með endurbættu vegakerfi stækkar aug-
ljóslega það svæði landsins, sem getur á
hagkvæman hátt tengst höfuðborginni með
samgöngum á landi. Hins vegar er ljóst að
byggðir á Vestfjörðum, Norðurlandi eystra,
Austurlandi og í Vestmannaeyjum verða
áfram og um ókomna tíð verulega háðar
góðum og öruggum flugsamgöngum til og
frá höfuðborginni.
Þessum byggðum er nú vel þjónað með
áætlunarflugi sem sinnt er með fullkomn-
um 19-50 sæta skrúfuþotum og er í eðli
sínu almenningssamgöngur. Þá þarf einnig
að hafa í huga að í hverri viku eru að með-
altali flogin um fimm sjúkraflug til Reykja-
víkur með 7-19 sæta flugvélum, auk þess
sem fjöldi sjúklinga og slasaðra er einnig
fluttur til hátæknisjúkrahúsa höfuðborgar-
innar með þyrlunr Landhelgisgæslunnar og
með áætlunarflugvélunum. Forsvarsmenn
Almannavama ríkisins og heilbrigðisþjón-
ustu iandsins hafa sérstaklega bent á hversu
Reykjavíkurflugvöllur sé mikilvægur
hlekkur bæði í almannavörnum landsins og
í heilbrigðisþjónustunni, þegar mínútur
geti í reynd skilið milli lífs og dauða.
Áhættumat og umhverfismái
Árið 1997 var breskri sérfræðistofnun falið
að gera formlegt áhættumat fyrir Reykja-
víkurflugvöll. Meginniðurstaða þess var sú
að „áhættan við Reykjavíkurflugvöll er
innan þeirra marka, sem miðað er við á
öðrum sviðum þjóðlífsins". Var hér m.a.
miðað við gildandi líkindamörk fyrir
áhættu af völdum snjóflóða í íbúðabyggð
og vegna bílaumferðar um vegi landsins.
Fyrir liggur að vatnasvið Tjarnarinnar í
Reykjavík er fyrst og fremst Vatnsmýrin og
vesturhluti Öskjuhlíðar og þarf því að
leggja mikla áherslu á að grunnvatnsstaðan
í Vatnsmýrinni breytist ekki, t.d. vegna
aukinnar byggðar á svæðinu. Sérstök úttekt
var gerð á þessum málum vegna yfirstand-
andi endurbóta flugbrautanna og staðfesti
að þær framkvæmdir myndu ekki hafa nein
skaðleg áhrif.
Þær nýju flugvélar, sem nú þjóna þorra
áætlunarflugleiða innanlands, eru verulega
umhverfisvænni en eldri gerðir. Þannig er
til að mynda svonefnt hljóðspor Fokker 50
skrúfuþotu (miðað við 85 db hávaðamörk)
aðeins um 29 prósent af flatarmáli tilsvar-
andi svæðis F-27 skrúfuþotna, sem áður
þjónuðu innanlandsfluginu í 27 ár.
Samkvæmt bókun sem samgönguráð-
herra og borgarstjóri undirrituðu 14. júní
1999 er gert ráð fyrir að snertilendingar í
æfinga- og kennsluflugi flytjist á flugvöll í
hæfilegri fjariægð frá Reykjavík og myndi
4 iský