Ský - 01.12.2000, Side 8
Sórfræðíngar
Búnaðarbankans
Verðbrófa vísa
þór veginn
ndanfarin ár hefur verð á hlutabréfum
hækkað mikið, jafnt innanlands sem
utan. Astæður þessa eru margvíslegar, s.s.
hagstætt efnahagsumhverfi, ný tækni og
miklar væntingar fjárfesta varðandi framtíð
fyrirtækja. Þetta hefur leitt til þess að ýms-
ar greinar atvinnulífsins hafa verið ofmetn-
ar og nú virðast markaðir vera að leiðrétta
sig í samræmi við þessa þróun. Við þær að-
stæður myndast oft kauptækifæri í áhuga-
verðum fyrirtækjum.
Á línuritinu má sjá þróun fjögurra vísi-
talna frá ársbyrjun 1999, vísitölu Aðallista
VÞI, heimsvísitölu Morgan Stanley, vísi-
tölu sem inniheldur ríkisskuldabréf með
fimm ára líftíma og alþjóða skuldabréfa-
vísitölu J.P. Morgan. Á árinu 1999 og í
byrjun 2000 skar vísitala Aðallista sig tölu-
vert úr með 75% hækkun en vísitalan náði
hámarki í byrjun apríl á þessu ári. Frá árs-
byrjun 2000 og þar til vísitalan náði há-
marki hækkaði hún um 30%. Þá hækkun
má telja óeðlilega mikla á svo stuttum tíma
enda kom að því að vísitalan lækkaði og þá
allverulega.
Hlutabréfasjóður
Búnaðarbankans
Hlutabréfasjóður Búnaðarbankans hf. er
blandaður verðbréfasjóður sem sýnt hefur
hæstu ávöxtun sambærilegra sjóða allt frá
stofnun hans, 1. nóvember 1996. Sá góði
árangur helgast af traustri sjóðsstjóm sem
miðar að því að hámarka ávöxtun sjóðsfé-
laga ásamt því að ná sem bestri áhættu-
dreifingu.
Áhættudreifing er sérstaklega mikil-
væg í því árferði sem nú ríkir þar sem
einstaka hlutabréf hafa fallið um meira
en helming í verði á nokkrum mánuðum.
Því hefur Hlutabréfasjóður BÍ allt frá
stofnun dreift áhættunni með því að fjár-
festa ekki eingöngu í innlendum hluta-
bréfum og eru eignir hans í skuldabréfum
og erlendum verðbréfum um helmingur
af heildareignum.
Sjóðurinn hefur verið vinsæll kostur í
desember enda bættust við rúmlega 3.000
nýir hluthafar í einum mánuði í fyrra.
Hlutabréfasjóður Búnaðarbankans er fjöl-
mennasti hlutabréfasjóður landsins og er
fjöldi hluthafa nú að nálgast 10.000. Hann
veitir skattaafslátt og er því tilvalinn fyrir
hinn almenna fjárfesti sem hugar að hluta-
bréfakaupum fyrir áramótin.
Hægt er að ganga frá kaupum með einu
símtali, s. 525 6050, eða í gegnum intemet-
ið, www.bi.is/verdbref. Einnig er boðið
upp á beingreiðslur og boðgreiðslur með
Visa og Euro.
Ávöxtun vs. áhætta
Fjárfesting í hlutabréfum er mjög áhættu-
söm og því er mikilvægt ef fjárfest er í ein-
stökum hlutabréfum að kynna sér viðkom-
andi fyrirtæki og markað. Fyrir hinn
almenna fjárfesti er áhættuminnst að fjár-
festa í hlutabréfasjóði eins og Hlutabréfa-
sjóði Búnaðarbankans þar sem fjárfest er í
mismunandi tegundum verðbréfa. Sjóður-
inn kemur vel út í samanburði við sam-
bærilega sjóði og þá sérstaklega þegar
ávöxtun og áhætta eru vegin saman. Fjár-
festar verða að gera upp við sig hve mikla
áhættu þeir eru tilbúnir að taka og fyrir
suma getur hentað betur að fjárfesta í
skuldabréfasjóðum en hlutabréfasjóðum. í
því sambandi má benda á kosti eins og
Eignarskattsfrjáls bréf, Hávaxtabréf og
Veltubréf.
Margir f járfestingarkostir
í boði
Búnaðarbankinn Verðbréf býður upp á
marga ólíka hlutabréfasjóði. Þar á meðal
eru alþjóðasjóðir bankans sem henta þeim
sem vilja dreifa safni sínu í erlendum
bréfum. Þeir heita Alþjóða hlutabréfa-
sjóðurinn, Framsækni alþjóða hlutabréfa-
sjóðurinn og Internetsjóðurinn. Allir
þessir sjóðir nýta reynslu helstu sérfræð-
inga heims í sjóðstýringu með því að fjár-
festa í safni hlutabréfasjóða sem sýnt hafa
góða ávöxtun. Þá býður Búnaðarbankinn
Verðbréf einnig upp á sjóðina ÍS-15 og
spegilsjóð hans, Icelandic Equity Fund,
sem fjárfesta eingöngu í innlendum
hlutabréfum.
Veraldarvefurinn
og fjárfestingar
Veraldarvefurinn er ágætis verkfæri fyrir þá
sem vilja kynna sér hlutabréfamarkaðinn og
taka vel upplýstar ákvarðanir. En hvar á að
byrja? Fjármálasíðumar eru eins misjafnar
og þær em margar og því er rétt að benda á
nokkrar sem koma sér vel í leitinni að
réttum upplýsingum. Fyrir þá sem hafa
áhuga á að vita meira um fjármál eru
www.fool.com og www.smartmoney.com
mjög aðgengilegar vefsíður. Þar má finna
ýmsar greinar um einstök fyrirtæki, atvinnu-
greinar og fjármálakennslu. Ef ætlunin er að
fylgjast með gengi á fjármálamörkuðum frá
degi til dags má benda á www.cnnfn.com.
Að lokum má ekki gleyma því að Búnaðar-
bankinn Verðbréf er með margverðlaunað
vefsvæði, www.bi.is/verdbref, þar sem hægt
er að fylgjast með tilboðum og viðskiptum á
íslenska markaðnum auk ýmissa annarra
upplýsinga.
6 'ský
Helga Thoroddsen, innlend stýring,
Búnaðarbankinn Verðbréf.