Ský - 01.12.2000, Side 12
Ikingut
Er Villiljós fimm sögur eða ein?
Kvikmyndir nútímans eru ekki lengur
einhamar, það er síður en svo skilyrði
að sagan sé ein, hetjan ein og útkom-
an ein. Þannig er orðið áberandi frá-
sagnarform í kvikmyndum að segja
mismunandi sögur í upphafi - að því
er virðist - sem svo taka að renna
saman og tengjast að einhverju eða
öllu leyti þegar líða tekur á.
Villiljós, ný kvikmynd gerð eftir
handriti Huldars Breiðfjörð, er kleyf-
huga kvikmynd, ef svo má að orði
komast. Hún er fimm sögur í einni
mynd, fimm söguþræðir sem spinn-
ast sundur og saman smátt og smátt
og mynda örlagavef ólíkra persóna
sagnanna fimm, sem svo er lýst af
aðstandendum myndarinnar:
„í Reykjavík nútímans stefnir allt í
ósköp venjulegt kvöld þar til raf-
magnið fer af ... Ólétt stúlka festist í
hraðbanka um leið og hún fær hríð-
ir. Líkbílsstjóri berst við draug með
hjálp páfagauks og hefur ofsaakstur
um dimmar göturnar. Rómantískt
kvöld nýtrúlofaðs pars fer út um þúf-
ur þegar eldri hjón reyna að leggja
þeim lífsreglurnar.
Flugvél með hljómsveit innanborðs
villist af leið á meðan tónlistarmenn-
irnir, eins og aðrir þetta kvöld, reyna
að sjá Ijósið í myrkrinu. Og hvað ger-
ir fullkomnunarsjúki kærastinn þeg-
ar hann kemur að kærustunni í rúm-
inu með blindum manni? Skutlar
honum heim?"
Sögunum fimm er leikstýrt af fimm
mismunandi leikstjórum, þeim Degi
Kára Péturssyni, Ingu Lísu Middleton,
Ásgrími Sverrissyni, Ragnari Braga-
syni og Einari Þóri Gunnlaugssyni en
meðal leikara eru Ingvar E. Sigurðs-
son, Eggert Þorleifsson, Björn Jör-
undur, Edda Björgvinsdóttir, Egill
Ólafsson og margir fleiri. -fin
B í Ó
Ikingut
Islensk fjölskyldumynd sem gerist fyrir
300 árum á norðanverðum Ströndum.
Dag einn rekur ísjaka á land og með
honum kemur grænlenskur drengur.
Koma hans setur allt á annan endann í
hjátrúarfullri sveitinni. Aðalpersóna
myndarinnar er sonur prestsins á
staðnum, en hann vingast við hinn
grænlenska jafnaldra sinn. Þetta er
fjörug ævintýramynd sem að sögn
framleiðenda byggist meira á alls kyns
tæknibrellum en jafnan sjást í íslensk-
um bíómyndum. Handritið er eftir Jón
Steinar Ragnarsson og leikstjóri er
Gísli Snær Erlingsson.
Unbreakable
Bruce Willis leikur David Dunne sem
sleppur óslasaður úr hörmulegu lest-
arslysi þar sem allir aðrir farast. í kjöl-
farið birtist ókunnugur maður, leikinn af
Samuel L. Jackson, sem útskýrir fyrir
honum af hverju hann slapp. Þær
upplýsingar kollvarpa lífi Dunne. Há-
spennumynd með dulrænu yfirbragði
eftir M. Night Shyamalan, sama leik-
stjóra og handritshöfund og gerði hina
frábæru mynd The Sixth Sense.
Þegar Trölli stal jólunum
Þessi sígilda jólasaga Dr. Theodores
Seuss segir frá því er grænhærða og
hjartasmáa skrímslið Trölli kemur til
byggða á aðfangadag í þeim erinda-
gjörðum að stela jólunum. Það er Jim
Carrey sem leikur Trölla með miklum
tilþrifum eins og hans er von og vísa.
Carrey er með öllu óþekkjanlegur í
gervinu en það fer þó ekki milli mála
hver er á ferðinni þegar hann byrjar að
geifla sig, fetta og bretta. Leikstjóran-
um Ron Howard (Appoilo 13, Back-
draft, Splash) þykir hafa tekist vel að
fanga drungalegt andrúmsloft sögu Dr.
Seuss og fyrir vikið er myndin tæplega
við hæfi allra yngstu bíógesta.
Saving Grace
Hvað á virðuleg ensk smábæjarhúsfrú
að gera þegar eiginmaður hennar
stekkur út úr flugvél án fallhlífar og skil-
ur hana eftir með fjallháan bunka af
áður óþekktum skuldum? Marijúana-
ræktun er örugglega ekki fyrsta svarið.
Það er þó einmitt ráðið sem Grace
Trevethen, leikin af Brendu Blethyn,
grípurtil í örvæntingu sinni. Drepfyndin
og afbragðsvel leikin mynd þar sem
Blethyn brillerar í aðalhlutverkinu. Litlu
síðri er Craig Ferguson, en hann leikur
garðyrkjumanninn sem fær hana með
sér í landbúnaðinn.
I0 ský