Ský - 01.12.2000, Síða 16

Ský - 01.12.2000, Síða 16
FYRST & FREMST HLJOMSVEITARSTJORINN Oskar Guðjónsson, saxófónleikari, hefur ásamt hljómsveit sinni, Delerað, gefið út plöt- una Söngdansar Jóns Múla Árnasonar og búið lögum hins aldna meistara nýstárlegan og djassaðan búning. Oskar starfar nú í London og spilar reglulega með plötusnúðum á ein- um stærsta skemmtistað borgarinnar. Ljósmynd: Páll Stefánsson Hvað er Deierað? Þetta er sjö manna band sem ég setti sam- an af þessu tilefni. A slagverk er Pétur Grétarsson, á trommur Birgir Baldursson og Matthías M. D. Hemstock, á kontra- bassa Þórður Högnason og síðan tveir gít- arleikarar, Hilmar Jensson og Eðvarð Lárusson. Hvenær hóf hljómsveitin störf við prógrammið hans Jóns Múla? Þetta byrjaði sumarið 1998 þegar við héld- um tvenna tónleika í Iðnó við frábærar undirtektir. í fyrra tókum við prógrammið svo loksins upp og gefum út núna. Hvað kemur til að þú djassar upp gömlu þekktu slagarana hans Jóns Múla? Það er svolítið fyndið þegar maður fer að spá í það að ég er hvítur, íslenskur djass- tenórsaxófónleikari. Sú setning gengur ein- hvern veginn varla upp. Svo ég fór að spá: Bandarískir djassarar eru alltaf að spila standardana sína svokölluðu, sem eru söngleikjalög frá 1930 til 1960. Og hvað kemur upp í hugann þegar litið er til ís- lenskra söngleikja: Jón Múli Árnason. Hvernig eru útsetningarnar? Þekkir fólk þessi gömlu ein- földu lög í framúrstefnulegum flutningi djassvirtúósa? Útsetningarnar eru tiltölulega mikið öðru- vísi og sumar framúrstefnulegar. Með því að þurfa ekki að hafa textana og syngja þá leyfist manni ýmislegt annað og fleiri áttir opnast. Hingað til hafa lögin náttúrlega tengst afar sterkum böndum við texta Jónasar, bróður Jóns, og þetta er í fyrsta sinn sem dagskrá af þessu tagi er búin til. En prófraunin á það hvort fólk þekkti og kynni við okkar túlkun kom á fyrstu tón- leikunum. Eftir nokkur lög leit ég út í sal og sá að meðalaldurinn var kringum sex- tugt. Þá varð mér ekki um sel og hugsaði með mér að okkur yrði sennilega slátrað fyrir ósvífnina ... Og hvað gerðist? Það var bara stanslaust klapp frá fyrsta lagi. Ekkert mál. Ætlar þú að græða á jólaplötu- flóðinu? Ja, vandi er um slíkt að spá! Nei, það er nú ekki ástæðan fyrir útgáfunni. Það hefur bara myndast sú hefð á íslandi að plötur séu gefnar út á þessum tíma og þegar Mál og menning sýndi áhuga á að gefa efnið út stóð ekki á okkur. Þú hefur starfað og búið í London síðustu misserin. Hvað kom til að þú fluttist þangað? Það hafði blundað lengi í mér að fara til út- landa, kynnast öðrum siðum og menningu og hvemig væri að lifa sem tónlistarmaður annars staðar en á Islandi. Það eina sem ég þekkti fram að því var íslenska senan svo samanburðurinn var vel þeginn; hvað er gott og siæmt hér heima og hvernig maður stendur miðað við erlenda kollega sína. Hvað hefur þú helst unnið við eftir að þú fluttir út? Eg hef sýslað hitt og þetta. Spilað í hljóð- verum inn á plötur og leiksýningar en mest hef ég verið að spila með plötusnúðum. Eg er kominn með fast gigg inni á skemmti- staðnum Home á Leicester Square, sem er sennilega eitt af þremur helstu diskótekun- um í London ásamt Ministry of Sound og Fabric. Þetta er gífurlega stór staður, á fimm hæðum og vel sóttur. Hvenig finnst þér að spila með plötusnúðum? Það er fyndið til þess að hugsa að ég próf- aði það í fyrsta sinn á Islandi, þegar út- varpsstöðin X-ið var að byrja, '92 eða '93. Þá spilaði ég með Robba Chronic og fannst það bara skemmtilegt. Þetta er mikil fróð- leiksnáma fyrir mig því ég næ einfaldlega ekki að fylgjast alveg nógu vel með því sem er að gerast í dans- og raftónlist. Einnig er þetta ein besta æfing fyrir eyrun sem völ er á því að ég þarf alltaf að vera að bregðast við því sem plötusnúðurinn er að gera. Þetta er hreinn spuni og mjög lær- dómsríkt. Það verður líka einfaldlega að viðurkennast að plötusnúðar hafa að vissu rnarki tekið við því hlutverki af hljómsveit- um að skemmta fólki með tónlist og það er því fínt að ná að stimpla sig inn í þann geira ltka. Líður þér vel á sviði undir þess- ari pressu? Þetta er bara hluti af starfinu og mér líður vel með það. Auðvitað kemur alltaf upp smáspenningur en það virkar síður en svo niðurbrjótandi heldur miklu frekar hvetj- andi og uppbyggjandi þegar ég treysti sjálf- urn mér og tónlistinni sem ég er að flytja. Ef maður er að gera eitthvað af viti er svið- ið besti staðurinn til að vera á. Hvort líður þér betur í London eða Reykjavík? Það er náttúrlega alltaf einhver öryggis- ventill að koma til Islands, þar sem maður hittir alla og þekkir alla. Svo er hins vegar talsvert frelsi í því fólgið að koma inn í milljónasamfélagið London, þar sem eng- inn þekkir mann og öllum er sama, og standa á eigin fótum. Tekst þér að lifa af tónlistinni eingöngu þarna úti eða ertu að þjóna til borðs eða steikja ham- borgara með þessu? Þetta er allt að koma. Ég myndi segja að ég hafi verið í átta mánuði að sinna því að koma mér áfram og einmitt nú er ég loksins að sjá fyrir endann á þessu. Ég hugsa að það taki að minnsta kosti ár, jafnvel eitt og hálft, að koma sér á framfæri í London, sem kemur kannski ekki á óvart í ljósi þess að það tekur stundum hálfan daginn að ferðast milli hverfa í borginni. Hvert er langtímamarkmiðið hjá þér í tónlistarvinnu erlend- is? Stefnirðu á að geta lifað sæmilega af þessu eða ertu staðráðinn í að meika það - slá í gegn? Nei, síður en svo. Ég held að það sé ekkert verra í heiminum en að vera frægur. Þetta er afar einkennilegur misskilningur að það sé eftirsóknarvert að vera stjarna. Mér er ómögulegt að skilja það hvernig nokkur maður getur haft metnað fyrir því einu að meika það. Það er hið besta mál að leggja sig fram við að gera góða tónlist eða stunda einhverja aðra list en þegar það er farið að skipta mestu máli að vera í réttu fötunum, á réttu stöðunum, með rétta fólkinu, þá er eitthvað athugavert við forgangsröðunina. -fin 14 ! Ský
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.