Ský - 01.12.2000, Page 20

Ský - 01.12.2000, Page 20
FYRST & FREMST Þórhallsdóttir sópransöngkona og Daníel Þorsteinsson píanóleikari Eyjafjörður mærður á geisladiski Akureyringar og aðrir Eyfirðingar eru sem kunnugt er afar stoltir af sinni heimabyggð og þykir fjörður- inn sinn hinn fegursti sem um getur á byggðu bóli. Skiljanlega, auðvitað! Þessi ætt(f)jarðarást Eyfirðinga hefur nú ratað á geisladiskinn „Það ert þú! Eyjafjörður - Ijóð og lag". Lögin og Ijóðin á disknum eiga öll rætur sínar að rekja til Eyjafjarðar þar sem höfundar tengdust firðinum órjúfanlegum tilfinningaböndum á einn eða annan hátt. Björg Þórhalls- dóttir sópransöngkona og Daníel Þorsteinsson píanóleikari flytja lögin. Björg er frá Akureyri og stundar nám í Lundúnum í Ijóða- og óperusöng en Daníel er búsettur í höfuðstað Norðurlands og er meira að segja bæjarlistamaður. Þau gefa diskinn út sjálf en um tilurð hans segir Björg: „Fyrr á árinu vorum við beðin að flytja nokkur lög eftir eyfirsk tón- skáld. í kjölfar þess könnuðum við hversu mikið af efni væri til þar sem saman færu eyfirsk Ijóð og lög. í Ijós kom að efniviður var nægur og afar gaman að fá tækifæri til að kynna þessi eyfirsku menningarverðmæti fyriröðrum landsmönnum." / Rappar Gunnarshólma - og spílar á flautu með naflanum ___ur óskílum Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen eru dúettinn Hundur í óskilum. Á Akureyri metur fólk frumleikann meira en svo að það nefni hljóm- sveitirnar sínar nöfnum sem inni- halda einhverjar myndir af orðinu „sól". Tveggja manna hljómsveitin Flundur í óskilum er ágætt dæmi. Hún hét áður hinu kaldhæðnislega nafni Börn hins látna, þar áður Blóm og kransar en um nöfnin segir annar meðlimanna, Hjörleifur Hjartarson: „Það er til svo mikið af góðum nöfn- um að við viljum endilega komast í gegnum eins mörg og við getum. Við höfum nokkuð lengi gengið undir nafninu Hundur í óskilum, aðallega vegna þess að við létum prenta svo mörg nafnspjöld með þvi nafni. Við erum ekki ennþá búnir með þau svo við verðum að halda nafninu eitthvað lengur." Hundur í óskilum telur auk Hjörleifs Eirík Stephensen og leikur að sögn Hjörleifs aðallega lög eftir aðra í frjálslegum útsetningum. „Við spilum meðal annars Undir blá- himni í þungarokksútsetningu, Sig- valda Kaldalóns með flamenco-ívafi og svo röppum við Gunnarshólma, svo eitthvað sé nefnt." Af öðrum sérkennum sveitarinnar má nefna áhættuatriði fyrir blokk- flautur, þar sem spilað er með nös- um, augum og jafnvel naflanum og þá staðreynd að hljómsveitin var um árabil eina hljómsveitin á íslandi sem var eingöngu skipuð skólastjórum. -fin 18 ský Framundan: Listasafnið á Akureyri Þar stendur yfir sýning sem nefnist „Heim- skautsiöndin unaðslegu” sem safnið og Stofnun Vilhjálnis Stefánssonar standa fyrir nteð stuðningi Menningarborgarinnar. Sýn- ingin gefur innsýn í ævi og störf Vilhjálms, lífssýn hans og arfleifð sent landkönnuðar og mannfræðings, en er um leið kynning á þeim málefnum samtímans sent varða umhverfi, nýtingu auðlinda, sjálfbæra þróun og h'fvæn- leika samtelaga á norðurslóðum. Kaffí Karólína og Deiglan Aðalsteinn Þórsson myndlistarmaður opnar sýningu í Deiglunni og á Kaffi Karólínu 13. desember. Sýningin stendur út desember og í byrjun febrúar er fyrirhuguð sýning Aðal- heiðar Eysteinsdóttur bæjarlistamanns á kaffihúsinu. A Karólínu Restaurant stendur nú yfir sýning myndlistarmannsins Jónasar Viðars og mun hún standa vel fram á næsta ár, en á veitingahúsinu standa sýningar yfir hálft ár í senn. meðan skipt er um sýningar á mánaðarfresti á kaffihúsinu. Leikfélag Akureyrar Gleðigjafarnir eftir Neil Simon Sprengfjörugur gamanleikur sem frumsýnd- ur var í haust og gengur enn. Sýningar fyrstu tvær helgamar í desentber og aftur milli jóla og nýárs. Síðustu sýningar. Gleðigjafarnir eru staðfærðir upp á íslenskar aðstæður og gerast í þessari uppfærslu á Akureyri. Sýn- ingin hlaut afar góðar viðtökur gangrýnenda og aðsókn hefur verið góð. í aðalhlutverkum eru Þráinn Karlsson og Aðalsteinn Bergdal. Tveir misjafnlega vitlausir Trúðleikur eftir Aðalstein Bergdal. Frum- sýnt í byrjun desember og sýnt allar helgar í ntánuðinum og þétt milli jóla og nýárs. Það er hinn vinsæli Skralli trúður sem nú hefur tengið annan ennþá vitlausari trúð í lið með sér og uppátæki þeirra eiga sér engin tak- mörk. Auk Aðalsteins leikur Skúli Gautason í sýningunni. Skemmtun fyrir alla tjölskyld- una - ekki síst þá yngri. Sniglaveislan eftir Ólaf Jóhann Ólafsson Ný leikgerð eftir þessari vinsælu skáldsögu Olafs Jóhanns verður frumsýnd 26. janúar. Samstarfssýning Leikfélags Akureyrar og Leikfélags íslands í iðnó. Gunnar Eyjólfs- son leikur aðalhlutverkið, Gils Thordersen stórkaupmann. Karólína Restaurant býður leikhúsgestum upp á sniglaveislu eftir sýn- ingar. Spennandi og kröftug saga. Sýningar allar helgar frá frumsýningu og fram í mars.

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.