Ský - 01.12.2000, Side 24

Ský - 01.12.2000, Side 24
Kvenna Ágústa Hólm Jónsdóttir, háseti á frystitogara Hvernig er hin dæmigerða íslenska kona og á hvaða málefni trúir hún? Hvað finnst okkur konum í raun og veru um ísland árið 2000? Anna Margrét Björnsson tók púlsinn á skoðunum nokkurra ís- lenskra kvenna. Ljósmyndir: Páll Stefánsson *Ef þú gætir breytt einum hlut í þjóðfélaginu í dag, hvað myndi það vera? „Ég myndi lækka skatta." *Hver er merkasta konan á íslandi í dag og af hverju? „Mér finnst Andrea nektardansmær virðingarverð fyrir að þora að gera það sem hún gerir. Eflaust hefur hún mætt mótlæti en hana hefur ekki skort hugrekki til að láta draum sinn rætast." *Hver er merkasti maður á íslandi í dag og af hverju? „Kári Stefánsson hjá íslenskri erfðagreiningu. Ég held að hans vinna eigi eftir að hjálpa mörgum í framtíðinni. " *Aðeins örlítil prósenta kvenna er forstjórar hjá íslenskum fyrirtækjum. Er okkur sama? „Nei, okkur er ekki sama en ég held að þessi mál eigi eftir að fara batnandi." *Finnst þér íslendingar vera fordómafullir gagnvart öðrum kynþáttum? „Já, þeir eru frekar fordómafullir. Ég hef tekið eftir því í tali fólks. Ég held að fólk sé hrætt við þróunina sem hefur orðið á Norðurlöndunum. Við viljum vera svo miklir íslendingar — þetta er sjálfsagt þjóðrembingsháttur." *Myndir þú íhuga lögleiðingu á sölu áfengis annars staðar en í Ríkinu ? „Já, mér finnst að það ætti að leyfa sölu á léttu víni og bjór í matvöruverslunum." *Hvað finnst þér um rétt samkynhneigðra til að ala upp börn? „Þeir ættu að hafa allan rétt til þess." *Þurfa karlmenn meira á konum að halda en konur á karl- mönnum? „Já ... aðeins. Við konur erum jarðbundnari, við höldum þeim við efnið." *Truflar þessa nýja bylgja af nektarstöðum á íslandi þig? „Nei, og ég hef komið inn á slíkan stað. Mér finnst þetta allt í lagi svo framarlega sem ekkert vændi fer þar fram."

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.