Ský - 01.12.2000, Page 26
Valgerður
Sverrisdóttir,
iðnaðar- og við-
skiptaráðherra
*Ef þú gætir breytt einum hlut i þjóðfélaginu í dag, hvað myndi
það vera?
„Ég myndi vilja ná árangri í að minnka fíkniefnavandann."
*Hver er merkasta konan á íslandi í dag og af hverju?
„Vigdís Finnbogadóttir. í fyrsta lagi fyrir það að vera fyrsta
konan í heiminum sem er kjörin þjóðarleiðtogi í almennum
kosningum. Þannig ruddi hún brautina fyrir aðrar konur. Einnig
fyrir það að hafa tekist að starfa með þeim hætti að einkalíf
hennar varð aldrei áberandi á embættisferlinum."
*Hver er merkasti maður á íslandi í dag og af hverju?
„Haildór Ásgrímsson. Hann er ábyrgur og með hugsjón fyrir
þessa þjóð til framtíðarinnar."
*Aðeins örlítil prósenta kvenna er forstjórar hjá íslenskum fyr-
irtækjum. Er okkur sama?
„Nei, mér er ekki sama. Það er mjög áríðandi að konur nái
lengra í viðskiptalífinu þar sem þær hafa alla burði til þess. Ég
trúi því að ný lög um fæðingarorlof muni hafa mikil áhrif á
framtíðina. Algert jafnrétti í þessum málum mun breyta þeirri
afstöðu að verra sé fyrir fyrirtæki að ráða konur í störf. Með
þeim lögum á ekki að skipta máli fyrir atvinnurekendur hvort
þeir ráða karl eða konu til starfa."
*Hvað finnst þér um stöðu umhverfismála á íslandi?
„Hún er góð, enda hafa alþjóðlegar úttektir sýnt það. Það er
mjög mikilvægt að vel sé haldið á þessum málum þar sem sér-
staða íslands liggur einmitt í náttúru landsins. Enda vekur
umhverfisvæn orkustefna okkar athygli."
*Finnst þér fslendingar vera fordómafullir gagnvart öðrum kyn-
þáttum?
„Fordómarnir eru ekki mjög sýnilegir í dag. Ég óttast samt að ef
á reyndi myndum við því miður ekki hafa víðsýni til að bera til
að standast það próf."
*Myndir þú íhuga lögleiðingu á sölu áfengis annars staðar en í
Ríkinu ?
„Ég væri tilbúin til þess að fara í gegnum þá umræðu. Ég útilo-
ka ekki að rétt sé að breyta löggjöfinni þannig að meira frjáls-
ræði væri um sölu á léttu víni og bjór og farið væri í gegnum
heilbrigðissjónarmið og hagsmuni verslunarinnar."
*Hvað finnst þér um rétt samkynhneigðra til að ala upp börn?
„Ég hef staðið að því að auka rétt samkynhneigðra til þess að
ala upp börn. Ég hef gert þetta af hugsjón - ég sé enga ástæðu
til þess að þeir megi ekki gera það."
*Truflar þessa nýja bylgja af nektarstöðum á íslandi þig?
„Já, ég get ekki neitað því. Mér finnst miður hvað þetta er orð-
ið algengt hér. Það hefur hins vegar verið hert eftirlit á þessum
stöðum og reynt að færa þá í það form sem hægt er að lifa
með. Því miður er fylgifiskur slíkra staða oft vændi og þar að
auki er hætt við að í einhverjum tilfellum séu stúlkur hér gegn
vilja sínum."
24 |si<ý