Ský - 01.12.2000, Page 28
*Ef þú gætir breytt einum hlut í þjóðfé-
laginu í dag, hvað myndi það vera?
„Ég myndi vilja vera laus við ofneyslu
allra fíkniefna."
*Hver er merkasta konan á (slandi í dag
og af hverju?
Vigdís Finnbogadóttir, hún er hreinskilin
og kemur vel fyrir og hefur haldið heiðri
íslands á lofti."
*Hver er merkasti maðurinn á íslandi í
dag og af hverju?
„Davíð Oddsson. Hann er mjög góður
stjórnandi og maður treystir því sem hann
segir."
*Aðeins örlítil prósenta kvenna er for-
stjórar hjá íslenskum fyrirtækjum. Er okk-
ur sama?
Nei, það hugsa ég ekki. Annars stend ég
aðeins fyrir utan þessa umræðu þar sem
ég hef verið forstjóri í svo mörg ár."
*Hvað finnst þér um stöðu umhverfis-
mála á íslandi?
„Hún er öll að batna. Til dæmis var öllu
fleygt í sjóinn fyrir nokkrum árum en nú
hefur orðið gífurleg breyting á. í dag er
allt flokkað, það hefur orðið gífurleg
breyting á viðhorfi manna."
*Finnst þér íslendingar vera fordómafullir
gagnvart öðrum kynþáttum?
„Nei, ég hef ekki orðið vör við það."
*Hvað finnst þér um rétt samkyn-
hneigðra til að ala upp börn?
„Ég tel það aðeins skipta máli að fólk sé
hæft til þess að ala upp börn, alveg sama
hvernig kynhneigð þeirra er háttað. Það
er alltof mikið af óhæfu fólki sem elur
upp börn."
*Þurfa karlmenn meira á konum að halda
en konur á karlmönnum?
„Já mér finnst það. Þegar á bjátar eru
konur sterkari en karlmenn. Konur eru
oft í því hlutverki að hugga."
*Truflar þessa nýja bylgja af nektarstöð-
um á íslandi þig?
„Já. Mérfinnst þetta ógeðslegt. Þetta er
mjög niðurlægjandi fyrir konur. Það þarf
að hafa miklu meira eftirlit með þessum
stöðum."
Guðrún Lárusdóttir,
forstjóri Stálskipa
26 |ský