Ský - 01.12.2000, Síða 42

Ský - 01.12.2000, Síða 42
og undirbúa það jafnvel árum saman. Voru ein- hverjir efnilegir og frægir með þér í bekk? Já, já. Einn bekkjarbróðir minn var til dæmis barnabarn Maós formanns í Kína, annar var þingmaður frá Kól- umbíu og svo var prinsessa frá Saudi-Arabíu í bekknum. Og frægir kennarar náttúrlega? Já, margir mjög frægir. Uppáhaldskennarinn minn var David Gergen sem var hægri hönd fjögurra Bandaríkja- forseta, byrjaði með Nixon og endaði með Clinton. Það var hjá honum sem ég fékk hugmyndina að bókinni um leiðtogana og hann hjálpaði mér við undirbúning hennar. Hvort kaustu George W. Bush eða Al Gore í hjarta þínu? Bush, ekki spurning. Gore er svo ömurlegur og ótrúlega lítt afgerandi hugmyndafræðilega. Ég hitti reyndar Ge- orge W. Bush í New Hampshire með kennaranum mínum og bekkjarsystkinum í forkosningunum í febrúar. Til stóð að hitta Al Gore en við lentum í hálku þannig að okkur seinkaði til hans og þá höfðu lífverðir umkringt hann af öryggisástæðum. Bush er sannarlega ekki fullkominn en þeir sem tala um hann sem blóðþyrstan morðingja eru að draga upp mjög ranga mynd af ágætismanni. Hittirðu einhvern tíma Biil Clinton? Nei, en það væri gaman ef maður gætti þess að halda sig í þokkalegri fjarlægð því maðurinn hefur mjög aðlað- andi framkomu. Ertu stjórnsöm og frek? Já, ég held að stjórnsemi sé einn af mínum stærstu göllum og ég vinn markvisst að því að breyta því. Maður á að gefa fólki svigrúm til að vera það sjálft og ná árangri á eigin forsendum. Þú kemur manni fyrir sjónir sem fullkomin og lastalaus. Hverja af dauðasyndunum sjö hefurðu oft- ast gerst sek um (leti, heift, losta, ágirnd, matar- græðgi, öfund og hroka)? Matargræðgi og leti. Mér finnst ótrúlega gott að liggja uppi í rúmi þótt ég leyfi mér það sjaldan. Góð náttföt, engin dagskrá og dásamlegt rúmið er það besta sem ég veit. Þegar þú varst kennari í Háskólanum í Reykjavík vissi ég að kvenkyns nemendur þínir þráðu að vera þú. Er eitthvert vit í því? Nei, það er alls ekkert vit í því þó að vissulega gleðji það mig að nemendur hafi kannski getað litið á mig sem fyr- irmynd. Hefur þig einhvern tíma langað til að vera karl- maður? Ég hef stundum kastað því fram þegar ég stend frammi fyrir einhverjum vanda að ég vildi óska að ég væri karl- maður. Þetta gerðist til dæmis þegar ég fékk ekki starf sem ég sótti um þegar ég var 23ja ára, á þeim forsendum að ég væri ung móðir. Þegar ég hugsa málið í víðara samhengi hvarflar ekki að mér að í raun sé nokkuð betra að vera karlmaður og því langar mig akkúrat ekki neitt til þess. Ef þú mættir gleðja verst settu þegna Garðabæjar, hvað myndir þú færa þeim? Ég held að stór galli á allri þessari umræðu sé sá að við einblínum um of á krónur og aura á meðan annað ekki síður brýnt situr á hakanum því tilfinningar, sjálfsmynd, sjálfstraust og líðan fólks byggist á svo mörgu öðru. Þeg- ar ég ólst upp var aldrei til afgangur á heimilinu þótt pabbi stritaði látlaust. Við gátum ekki alltaf leyft okkur allt fjárhagslega en við fengum annað í staðinn. Mamma eyddi til dæmis miklum tíma með okkur, gaf okkur at- hygli, ást og tilfinningar. Og það er það sem mér þykir verst í dag, þrátt fyrir að ég geti ekki kvartað yfir pen- ingaleysi, að ég hef ekki veitt börnunum mínum jafnmik- inn tíma og athygli og ég fékk frá foreldrum mínum. Það held ég að sé mun stærra vandamál í samfélagi nútímans en peningaleysi. Með hvaða orðum viltu að Guð taki á móti þér við kom- una í himnaríki? Að ég hafi stuðlað að því að fleirum liði betur en verr. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir ert blaðamaður Skýja 40 ský
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.