Ský - 01.12.2000, Síða 45
Rannveig Rist. „Það er
mikill sómi að Rann-
veigu og gaman að sjá
hana þar sem hún er,
það er alltof sjaldgæft
að konur veijist til for-
ystustarfa í fyrirtækj-
um."
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir. „Ingibjörg Sólrún
er raunverulegur leið-
togi vinstri aflanna,
hörkutól, pólitískur
fæter og eini pólitíkus-
inn hér sem getur í
raun staðið Davíð
Oddssyni á sporði.
Émmmmmmmm Ástríður Thorarensen.
„Ef Davíð hlustar ekki
Þórunn Sigurðardótt-
ir. „Hún er afar valda-
mikil. Hún hefur safn-
að ótrúlegum völdum
á sínar hendur, enda
er konan fræg fyrir
hvað hún er frek og
veður yfir alla."
birtast hvað oftast í tímaritum og á
sjónvarpsskjánum. Almennt var þó
samþykkt að konur hefðu náð að hafa
mjög mikil áhrif á tilteknum sviðum og
smitað þannig út frá sér út í samfélagið,
margar hefðu sett mikilvægt fordæmi á
ýmsum sviðum og orðið öðrum konum
fyrirmynd, sýnt þeim frarn á að ástæðu-
laust sé að láta kynferði hamla því að
þær komist áfram. „Það eru örugglega
margar hetjur að vinna vígin smátt og
smátt án þess að við tökum mikið eft-
ir því,“ sagði einn. „Það eru kannski
áhrifamiklar konur sem við gerum okk-
ur ekki grein fyrir að hafi mikil áhrif en
gera það samt, sem fyrirmyndir. Til
dæmis fyrsti kvenflugstjórinn; það get-
ur verið manneskja sem er ekki træg
eða nafntoguð en hefur sitt að segja.“
Kvenráðherrarnir
Þegar tjallað er um áhrif hafa margir til-
hneigingu til þess að líta fyrst á stjórn-
málasviðið. Kvenskörungar í stjómmál-
um hafa gjarnan beygt undir sig
karlaveldið og orðið afar valdamiklir.
Kleópatra, Elísabet fyrsta, Katrín
mikla, Margrét Thatcher, Indira Gandhi
og Golda Meir, svo nokkrar séu nefnd-
ar, hat'a stýrt og ráðið ríkjum. Við Is-
lendingar höfum hins vegar aldrei haft
konu sem forsætisráðherra en státum
hins vegar af því að eiga fyrsta lýðræð-
islega kjörna kvenkynsþjóðarleiðtog-
ann í heimi og þótt það sé ekki nema
þess vegna, þá er Vigdís Finnbogadóttir
ofarlega á blaði jþeirra sem nefna áhrifa-
miklar konur á Islandi.
„Eg held að kjör Vigdísar og glæsi-
leg framganga hafi haft mikil áhrif til
örvunar kvenna hér á landi og eins um
allan heim, þar sem hún var fyrsti lýð-
ræðislega kjörni þjóðarleiðtoginn sem
var kona. Það voru ekki ákvarðanir
Vigdísar eða pólitísk áhrif sem skiptu
mestu heldur það að hún skyldi vinna
karlhlunkana sem hún keppti við og
hvað hún stóð sig vel og veitti upp-
örvandi fordæmi. Ég nefni hana hik-
laust númer eitt,“ sagði einn viðmæl-
andi Skýja.
Konum í stjómmálum hefur fjölgað
jafnt og þétt á undanförnum áratugum
Konur í stjórnunarstöð-
um ná mun betri árangri
en karlar. Þær leita ekki
persónulegrar upphefðar
í sama mæli, hafa meiri
yfirsýn og eru ábyrgari,
vandvirkari og samvinnu-
fúsari en karlforstjórar.
Hér á landi stjórna karlar
þó nær öllum stærstu
fyrirtækjunum.
en á það hefur verið bent að um ieið séu
áhrif þeirra sem gefa sig að stjórnmál-
um að minnka í þjóðfélaginu, völdin
hafi smátt og srnátt færst annað. Athygli
vekur að nú þegar fjórar konur sitja í
ríkisstjóm, þá eru flestir sem rætt var
við vegna þessarar greinar á því að þær
konur hafi sáralítil völd. Almennt virð-
ist vera talið að þær hafi lítil sem engin
áhrif. „Ég sé ekki að á þingi eða í ríkis-
stjóm séu konur sem ráða neitt sérstak-
lega miklu, vissulega ekki innan Sjálf-
stæðisflokksins. Akveður Halldór
Ásgrímsson ekki allt í Framsókn?" spyr
einn þeirra sem rætt var við. Annar
spurði svipaðra spuminga: „Ræður Siv
til dæmis einhverju í umhverfismálum?
Em menn vissir um að Sólveig Péturs-
dóttir hafi skipað þann hæstaréttardóm-
ara sem hún taldi hæfastan? Ég leyfi
mér að efast um það.“ Annar viðmæl-
andi orðaði það þannig: „Ég vona að
Valgerður og Ingibjörg Pálmadóttir hafi
einhver áhrif en veit það samt ekki.“ Sá
fjórði sagði kvenráðherrana daufgerða
og að einstakir skeleggir kvenþingmenn
hafi meiri áhrif en ráðherramir. Stjórn-
arandstæðingarnir Kolbrún Halldórs-
dóttir og Jóhanna Sigurðardóttir voru
nefndar fyrir að „hafa sýnt dugnað og
vasklega framgöngu og haft áhrif á um-
ræðu og skoðanir fólks,“ eins og það
var orðað. Margrét Frímannsdóttir, sem
var fyrsta konan til að stýra einum af
gömlum flokkunum og eini flokksleið-
toginn í síðustu þingkosningum, hefur
engin áhrif lengur, að mati eins viðmæl-
anda en aðrir nefndu hana ekki á nafn.
Sú sem var oftast nefnd og kom
fyrir hjá öllum viðmælendum var Ingi-
; :
Slcý