Ský - 01.12.2000, Síða 58

Ský - 01.12.2000, Síða 58
og ég finn ekki fyrir því að það sé eitt- hvað minna hlustað á mig af því að ég er kona. Ég get samt (myndað mér að í peningabransanum sé miklu meira karlaveldi. LAUFEY BRÁ: Konur og karlar eru bara ólíkar verur. í leiklistarskólanum voru strákarnir alltaf að sýna hvað þeir gætu gert, spila og syngja og hitt og þetta. Svo komum við stelpurnar skríðandi fram og allt sem við gerðum þurfti að vera algerlega pottþétt. BRYNDÍS: Svo er nú eitt í sambandi við þetta launamisrétti okkar, til dæmis ef ég yrði ólétt og væri í sambúð og væri kannski frá vinnu í þrjá mánuði vegna grindargliðnunar. Hvernig væri nú ef vinnustaður mannsins míns bæri líka ábyrgð á þessu af því að þetta er líka hans barn? ANNA MARGRÉT: En nú er samt að birta framundan með þessum nýju fæðingarorlofslögum, ekki satt? BRYNDÍS: Það er bara fæðingarorlof. Ef svona staða kemur upp, að kona er frá vinnu á meðgöngu verður vinnuveit- andi hennar að borga. Auðvitað er horft á þetta þegar kona er ráðin til vinnu. IÐA BRÁ: Barneignir halda aftur af launum. Ég varð ólétt rétt eftir að ég útskrifaðist og á meðan ég var í barn- eignarfríi hækkuðu strákarnir í launum á þriggja mánaða fresti. BRYNDÍS: Mérfyndist mjög sjálfsagt að fyrirtæki tækju jafnan þátt í því þegar par ákveður að eignast barn saman. Mér finnst þetta fáránlegt. KOLLA: Talandi um barneignir, þá held ég að fæðing sé eitt það erfiðasta sem konur lenda í. Það er ein aðstaða hérna í Reykjavík til að fæða börn og hún er bara ekki nógu góð. EVA BERGÞÓRA: Ég er alveg sammála. Þetta er mjög skrýtin lífsreynsla, allt í einu hafa allir leyfi til að pota í brjóstin á manni og þrífa í mann með einhverj- um ruddaskap. IÐA BRÁ: Ef maður biður einhvern um að líta eftir barninu á meðan maður fer í sturtu er horft á mann eins og maður sé frekja. KOLLA: Svo er maður vakinn klukkan sex á morgnana við það að kona er að skúra inni hjá manni og rekst (vögguna hvað eftir annað. ANNA MARGRÉT: Ég get semsagt ekki hlakkað til þessarar lífsreynslu! LAUFEY BRÁ: Staðreyndin er sú að það er ýmislegt sem við konur gerum ekki af því við erum hræddar við að einn góðan veðurdag verði potað í okkur og sagt: „Nei, góða mín, þú ert nú bara hrokafull og svo ertu þremur kílóum of þung." Súlustaðirnirog íslenskir karlmenn ANNA MARGRÉT: Ég flutti heim fyrir rúmu ári eftir átta ára dvöl erlendis og stóð í þeirri trú að jafnrétti væri lengra komið á Islandi en annars staðar. Svo komst ég til dæmis að því að nýjasta tískubylgjan á landinu var klám og nektarstaðir. Finnst ykkur íslenskir karl- menn ekki vera ansi „macho"? MARGRÉT: Ég held að þessi nektar- staðamenning hafi komið upp um ís- lendinga. LAUFEY BRÁ: Mér finnst þetta bara ekki nógu gott, mér finnst þetta ekki nógu faglegt! Ég vil taka þessar konur á leiklistarnámskeið! EVA BERGÞÓRA: Ég fór inn á svona stað þegar þeir voru að byrja á íslandi og þar var ein íslensk að strippa og hún gerði þetta svo þunglamalega; svona „Æi, allt í lagi þá, ég skal klæða mig úr"-f ílingur. IÐA BRÁ: Ég hef í sjálfu sér ekkert á móti þessum stöðum. Ég er bara svo hissa á hve margir fara á þá. Ég sá hins vegar sýnt frá þessu í sjónvarpinu, frá einkasýningum og svoleiðis. Mérfannst þetta svo gróft, svo ógeðslegt. Bryndís: „ ... ef ég yrði ólétt og væri í sambúð og væri kannski frá vinnu í þrjá mán- uði vegna grindargliðnunar. Hvernig væri það nú ef vinnu- staður mannsins míns bæri líka ábyrgð á þessu af því að þetta er líka hans barn?" ANNA MARGRÉT: Já, þegar ég fór inn á svona stað bjóst ég við að það yrði fyndið. En þetta var bara ekkert fyndið, þetta var hálfsorglegt allt saman. LAUFEY BRÁ: Það er engin gleði þarna, engin fegurð, enginn kynþokki, hvað eru menn eiginlega að eyða peningun- um í þetta? Ég myndi skilja það ef þetta væri eitthvað flott. BRYNDÍS: dEn þeir gera það! Svo eru þessar stelpur örugglega á hærri laun- um en við. IÐA BRÁ: Viðskiptafundir hjá karl- mönnum enda alltaf á svona stöðum. Ég á til dæmis mann sem þarf að fara út með viðskiptavinum og það er alltaf beðið um að fara á svona staði á eftir. BRYNDÍS: Ég hef nú ekkert á móti þess- um stöðum, ég vil bara að þetta sé á góðum standard og að við getum verið stolt af þeim! Nú verðum við að hugsa um ísland sem ferðamannaland! Ég hef kynnst þessum stelpum svolítið af því að þær eru mikið niðri í miðbæ og koma oft í búðina og þetta eru frábær- ar stelpur. Ég hef séð margan vesældar- legri íslenskan dópistann, ég sé ekki skírskotun til þess að þetta séu slæmar stelpur. MARGRÉT: Ég er ekkert á því að það eigi að banna þetta, en mér finnst þetta ótrúlega sorglegt og niðurdrep- andi. LAUFEY BRÁ: Mér finnst þetta bara sorglegt fyrir mennina sem fara á þessa staði. ANNA MARGRÉT: En við (slendingar erum kannski bara svona langt á eftir öðrum löndum í þessu? Fyrir ári síðan var til dæmis talað um að það ætti að banna klám. BRYNDÍS: Við erum haldin svo mikilli forræðishyggju að vilja ráða yfir öllu. EVA BERGÞÓRA: Það er nú ekkert langt síðan að ekki mátti drekka vín milli eitt og þrjú og það mátti ekki einu sinni drekka bjór. BRYNDÍS: Það er svo mikil vitleysa að vera með lög sem er ekki hægt að fara eftir. Það er lítilsvirðing við þau. Mér finnst þetta klámdæmi bara fint, ef konur vilja þetta sjálfar og hafa upp úr þessu peninga þá finnst mér þetta ekk- ert niðurlægjandi. ANNA MARGRÉT: En hafa konur sjálfar gaman af klámi? BRYNDÍS: Hefur Ijósmynd af berum karlmanni komið þér til? (hlátrasköll) LAUFEY BRÁ: Það er kannski í lagi ef þeir eru í boxer-nærbuxum. Um leið og þeir eru allsberir eða í einhverjum hlé- barða g-streng er þetta orðið hræði- legt. IÐA BRÁ: Mér finnst bara nakinn kven- líkami miklu fallegri en karllíkami. BRYNDÍS: Þegar ég vann í Máli og menningu á sínum tíma barðist ég fyrir því að hefja sölu á klámtímaritum, en þar var sölu á þessu hætt 1974 þegar tíu konur hlekkjuðu sig við blaðarekk- ana. Mér fannst þetta alger forræðis- hyggja og það mætti alveg leyfa þetta, úr því við værum að selja alls kyns byssublöð og svoleiðis sem væri ekkert 56 I Ský
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.