Ský - 01.12.2000, Page 60

Ský - 01.12.2000, Page 60
okkur konunum. Ef það klikkar fylgir annað á eftir. LAUFEY BRÁ: Og hvaða tíska er þetta sem við erum að fara eftir? Það eru alltaf einhverjir hommar að hanna á okkur fötin! Þeir eru að hanna á ein- hverja unga litla klæðskiptinga með engar mjaðmir og hvað eigum við að gera? Drekka bara vatn? KOLLA: Þetta er alveg rétt, hönnuðirnir eru langflestir hommar. LAUFEY BRÁ: Ég sá klæðskipting á dragkeppni og hugsaði með mér: Þetta er hinn fullkomni kvenlíkami. Bíddu nú við, hvað er að gerast? Þetta var karl- maður! Þetta sem við erum að reyna að vera! BRYNDÍS: En hvað erum við að reyna að vera? Mér finnst það athyglisvert. Ég er nú bara ánægð með mig. Mér líð- ur betur og betur eftir því sem ég eldist því að ég verð alltaf meira og meira „ég". LAUFEY BRÁ: Já, við hér erum kannski allar ánægðar með okkur, en margar IÐA BRÁ: Þegar ég var átján ára mátaði ég stærsta kjólinn sem ég fann f Sautján. Ég komst ekki úr honum, reif hann og þurfti að fá hjálp í búnings- klefanum til að fara úr honum. Og ég var ekkert feit. Enda hreytti ég líka í stúlkuna þegar ég fór: „Þessi föt ykkar eru á fóstur!" og fleygði kjólnum í hana. Á hvern var þetta eiginlega? BRYNDÍS: Ég lendi oft í því að vera látin máta einhverjar stærðir númer 10 og 12 þegar ég er augljóslega númer 16. Svo er kallað: „Hvernig passar þetta?" og þá segir maður: „ ... hm ... ég næ þessu ekki upp fyrir hné ... " og svo er komið áfram með stærra og stærra þangað til að maður fer í algera niður- lægingu og hugsar: Ég er bara fíll og það er ekkert til á mig hérna. KOLLA: Starfsfólkið er líka kannski bara alltof ungt. Ég hef lent í því að heyra stúlku hjá mér segja við fertuga konu að einhverjar gallabuxur væru rosalega flottar á svona tvítuga stelpu. Hún skildi ekkert í því að konan varð sár. ... — ; • o 1 fll mBB ám 1 sfrnh _ijri ■ /' ^ unglingsstelpur eru með hausinn ofan í klósetti og æla til þess að vera eins og þessar fyrirmyndir. Það er bara stað- reynd. KOLLA: En þessar búðir fyrir unglings- stelpur selja bara föt í pínulitlum stærðum. Ef stelpa er með einhvern vöxt eða svolítið þybbin getur hún ekk- ert verið í þeim merkjum sem eru í tísku. Þessar stelpur vilja auðvitað frek- ar vera í Top Shop-fötum heldur en ein- hverju úr Hagkaup. BRYNDÍS: Ég held að við eigum bara að taka það pláss sem við þurfum ! IÐA BRÁ: Er þetta ekki bara vandamál yfirleitt með þjónustu á landinu? Ég ætlaði að kaupa pylsu um daginn og konan sagði: „Þetta eru ekki SS-pylsur." Ég spurði hvernig pylsur þetta væru og hún svaraði: „Þetta eru mjög vondar pylsur." Sílikon og háralitur EVA BERGÞÓRA: Það er líka alltaf talað um það í þessum kvennablöðum hvern- ig á að grennast í stærð 10 á tveimur vikum. Eins og það sé takmarkið í líf- inu. LAUFEY BRÁ: Og allar konur fara i megrun fyrir brúðkaup eða árshátíðir. Hvað í andskotanum á það eiginlega að þýða? Ekki er kynlífið betra ef mað- ur er fimm kílóum léttari? EVA BERGÞÓRA: Ef konum líður betur Laufey Brá: „Og hvaða tíska er þetta sem við erum að fara eftir? Það eru alltaf einhverjir hommar að hanna á okkur fötin! Þeir eru að hanna á ein- hverja unga litla klæðskiptinga" þannig finnst mér ekkert að því. Konur sem t.d. fá sér sílikonbrjóst af því að þær misstu brjóstin við barnsburð; ef þeim líður betur á eftir þá sé ég ekkert að því. MARGRÉT: Erum við ekki að finna af- sökun fyrir þessu endalausa óöryggi okkar? Allt væri betra ef við værum léttari eða með stærri brjóst? LAUFEY BRÁ: Ef fólk er með einhverja minnimáttarkennd finnst mér það bara besta mál að fara í lýtaaðgerð. Við stöndum alltaf og dæmum aðrar kon- ur. EVA BERGÞÓRA: Ég held samt að konur séu ekkert á móti sílikonbrjóstum. ANNA MARGRÉT: Mér finnst það nú oftar karlmenn sem finnst þetta eitt- hvað ógeðfellt. EVA BERGÞÓRA: Það er kannski þessi metingur, hún er ekki með ekta, eins og þú sért meiri manneskja ef þú ert með ekta. IÐA BRÁ: Ég hef verið spurð af konu hvort ég sé ekki bara dökkhærð í raun og veru. Ég sagði: „Jú örugglega, ég hef litað það svo lengi." Þá sagðist kon- an sjá það vegna þess hvað augnabrún- irnar mínar væru dökkar. Ég svaraði: „Blessuð vertu, þær eru litaðar líka." Ég hefði átt að segja: „Og ég er líka með silíkonbrjóst," til að gera útslagið. Það eru konur sem gera grín að manni af því að maður vill vera sætur. EVA BERGÞÓRA: Kona sem ég þekki fór til miðils og hann sagði: „Það er kona hérna sem spyr hvort þú sért með litað hár." Þegar hún svaraði játandi sagði hann: „Hún segir að þú eigir að halda í þinn upprunalega lit." Hver færi að segja svona lagað upp úr gröfinni? Þarna tók nú miðilinn litla áhættu. BRYNDÍS: Við konur verðum bara að vera vakandi fyrir öllu. Við getum ekki 58 Iský

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.