Ský - 01.12.2000, Side 61

Ský - 01.12.2000, Side 61
N Þjóðsögur eru einhver dýrasti arfur hverrar þjóðar. Þær veita einstaka innsýn í hugarheim genginna kynslóða, líf þeirra, reynslu og örlög, trú og hjátrú. Þar birtist okkur að auki kynja- veröld hins dulúðuga og yfirnáttúrulega. Með útgáfu á íslensku þjóðsagnasafni Vöku- Helgafells er nú aðgengilegt á einum stað úrval þjóðsagna frá fyrstu eltefu öldum byggðar í landinu, dregið saman úr aragrúa þjóðlegra rita, fornra og nýrra, samtals á áttunda hundrað sögur. Margar þeirra eru alkunnar, aðrar ger- semar sem ekki hafa verið handbærar almennum lesendum. Þjóðsögurnar eru hér flokkaðar á nýjan hátt, stafeetning og málfar fært til nútímahorfs, getið sögumanna, skrásetjara eða annars uppruna sagnanna ásamt því hvar þær hafa verið birtar. Útgáfunni fylgir sérstök lykilbók til að auðvelda notkun safnsins. Þar er að finna ýtarlega ritgerð um þjóðsögur, eðli þeirra, uppruna og ástæður þess að farið var að safna þeim á 19. öld. Þá eru þar margvfelegar skrár, s.s. um manna- og staðanöfn. Ritstjórar verksins eru Ólafur Ragnarsson, Margrét Guðmundsdóttir og Sverrir Jakobsson. íslenskt þjóðsagnasafn hefur að geyma úrval úr einstæðum sagnabrunni, arf sem þjóðinni hefur safnast í aldanna rás.

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.