Ský - 01.12.2000, Síða 89
Páll Stefánsson skoðar nokkrar tölur um karla og konur
útvarpsfréttum um daginn sagði
[ 1 karlkyns fréttamaður frá best rekna
fyrirtæki landsins, ísal, og tók síðan
fram að þetta væri eina fyrirtækið á
lista yfir 100 stærstu fyrirtæki landsins
sem væri stjómað af konu.
Karlmenn eru líka fleiri en kvenfólk
á íslandi: 139.518 á móti 139.199. Sem
sagt 319 fleiri. En konur lifa nær fjórum
árum lengur en karlar, meðalaldur
þeirra er 81,4 ár á móti 77,5 hjá karl-
mönnum. Þetta sést líka vel ef skoðaðir
eru þeir landsmenn sem komnir á eftir-
launaaldur, það er að segja 67 ára og
eldri. Þá eru 14.107 konur á móti
10.528 karlmönnum.
Á höfuðborgarsvæðinu búa 2.549
fleiri kvenmenn en karlmenn. Af öllum
123 sveitarfélögum landsins eru konur
fleiri í aðeins tíu sveitarfélögum. Og
mestur munurinn er í heimasveit Val-
gerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, Grýtubakkahreppi,
norður í Suður-Þingeyjarsýslu, en þar
búa 202 konur en ekki nema 175 karlar.
Hin sveitarfélögin eru Akureyri,
Blönduós, Austur-Hérað, Austur-Land-
eyjar, Ásahreppur, Kolbeinsstaðahrepp-
ur og Kaldraneshreppur á Ströndum, en
mesta athygli vekur þó að í tveimur af
afskekktari byggðarlögum landsins eru
konur í meirihluta, Hrísey þar sem eru
108 karlar og 110 konur og Mjóafjarð-
ský 187