Ský - 01.04.2012, Page 18

Ský - 01.04.2012, Page 18
ÞAR SEM RÆTURNAR LIGGjA: FIMM ÞEKKTIR S VARF DÆ LIN G AR Skýin fjalla um fimm þekkta Svarfdælinga. Þeir eru Kristján Eldjárn, Heiðar Helguson, Jóhann Kristinn Pétursson (Jóhann risi), séra Friðrik Fridriksson og Filippía Sigurlaug Kristjánsdóttir (Hugrún skáldkona). TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR MYNDIR: ÝMSIR Eftir að Heiðar Helguson, knatt- spyrnumaður frá Dalvík, var kjörinn íþróttamaður ársins 2011 vaknaði sú spurning á Skýjum hverjir væru fimm þekktustu Svarfdælingar landsins. Kristján Eldján, fyrrum forseti Islands, kom fyrstur í hugann sem og Jóhann Kristinn Pétursson, Jóhann risi. Eftir að hafa rætt við nokkra góða Svarfdælinga varð niðurstaðan sú að séra Friðrik Friðriksson, stofnandi KFUM, kæmi inn á listann ásamt Filippíu Sigurlaugu Kristj- ánsdóttur; Hugrúnu skáldkonu. Vissulega komu ýmsir aðrir til greina og þessi úttekt er í sjálfu sér engin stórvísindi. Af þekktum Dalvíkingum má nefna tón- listarmennina Friðrik Omar Hjörleifsson, Matthías Matthíasson (Matta Matt söngv- ara), bæjarfulltrúa á Dalvík, og Eyþór Inga Gunnlaugsson stórsöngvara. Allir eru með þekktari mönnum landsins um þessar mundir. Björgvin Björgvinsson skíðakappi var oft í fréttum á árum áður en hann tók þátt í þrennum Ólympíuleikum, 48 heimsbikar- mótum, keppti á 102 Evrópubikarmótum og sex heimsmeistaramótum. Átján ára gamall varð hann heimsmeistari unglinga í stórsvigi árið 1998 í Chamonix í Frakk- landi. Þá eru þeir Halldórssynir frá Jarðbrú þekktir úr heimi fjölmiðla; Atli Rúnar Halldórsson var kunnur fréttamaður á útvarpinu um árabil. Bræður hans Jón Baldvin, Jóhann Ólafur og Óskar hafa líka fengist við fréttamennsku. Fimmti bróðirinn er Helgi Már Halldórsson arkitekt. Svanfríður Jónasdóttir, bæjarsljóri á Dalvík og fyrrverandi þingmaður, er auðvitað mörgum að góðu kunn eftir að hafa verið í stjórnmálum í yfir tuttugu og fimm ár. Ef farið er í þjóðsögur em bræðurnir á Bakka kunnir. I þjóðsögum Jóns Arnasonar segir: ,Á b* þeim sem á Bakka heitir í Svarf- aðardal bjó bóndi einn fyrir löngu. Hann átti þtjá sonu: Gísla, Eirík og Helga; vom þeir orðlagðir fyrir heimsku og heimskupör þeirra mjög í frásögur færð þó fæst þeirra verði hér talin.“ Auðvitað em þessar vangaveltur okkar um fimm þekktustu Svarfdælingana fyrst og fremst til gamans - en vonandi til einhvers fróðleiks líka. Kristján Eldjárn. Filippía Sigurlaug Séra Friðrik Friðriksson. Jóhann Kristinn Pétursson. Heiðar Helguson. Kristjánsdóttir 18 SKÝ 2. tbl. 2012

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.