Ský - 01.04.2012, Síða 38

Ský - 01.04.2012, Síða 38
Lhotse (8.516 m) Ama Dablam (6.812 m) Everest (8.848 m) / TEXTI: EYGLÓ SVALA ARNARSDÓTTIR MYNDIR EYGLÓ SVALA ARNARSDÓTTIR OG GORE TAMANG „í lok mars náði ég hátindi lífs míns með því að ganga (næstum því) á hátind veraldar, að grunnbúðum Everest í Nepal, ein með þarlenskum leiðsögumanni. Eftir standa minningar um ægifagurt land, margslungna menningu og yndislegt fólk - ferð, sem var ævintýri líkust." Mikið er bakpokinn þungur,“ stóð ég sjálfa mig að því að hugsa þegar gangan var nýhafin og leiðin lá meira að segja að mestu leyti niður á við. Hnén voru farin að kvarta og maginn að ýlfra. Leiðsögumaðurinn minn, hann Gore, hafði lagt til að við færum tvær dagleiðir í einu og ég bölvaði sjálfri mér fyrir að hafa samþykkt það. Eg var þreytt og svöng og meira að segja hætt að dást að mikilfengni Himalaja- fjaUanna sem tróndu yfir okkur, mane bænatáknum á steintöflum, undrast þol og burðargetu múldýra og jakuxa sem gengu upp og niður tröppur, þræddu kráku- stíga og óðu yfir hengibrýr án þess að blika, og annað framandi sem fyrir augu bar. ERFIÐASTI DAGURINN Við vorum á leið frá Lukla til Namche Bazaar, úr 2.860 í 3.440 metra hæð, sem var fyrsti áfangi 11 daga göngu að grunnbúðum Everest í Nepal. Ferðin styttist úr 12 í 11 daga þegar fluginu frá Kathmandu var aflýst daginn áður vegna veðurs, sem er víst frekar algengt. 38 SKÝ 2. tbl. 2012

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.