Ský - 01.08.2013, Page 13
GUNNAR ÞÓRÐARSON FAGNAR 50 ÁRA TÓNUSTARAFMÆLI:
Gunnar Þórðarson hefur samið 650 lög - það er að segja útgefnar
tónsmíðar. Og það er um það bil allt sem hann hefur samið því hann segist
aldrei eiga neitt í skúffunni. Hann safnar ekki upp efni til síðari nota.
VIÐTAL: GÍSLI KRISTJÁNSSON MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON OG FLEIRI
Eg hef aldrei samið fyrir skúffuna.
Ég sem þar og þá fyrir þau verkefni
sem ég ræðst í og tek mér svo hvíld
þess á milli og hleð batteríin," segir Gunn-
ar Þórðarson tónskáld. Þetta er sú aðferð
sem hann hefur tamið sér á fimmtíu ára
tónsmíðaferli.
Hann titlar sig tónskáld í símaskránni
þótt margir myndu nota titla eins og
rokkari eða poppari - eða söngvaskáld eins
og gert var í nýlegum leiðara Morgun-
blaðsins eftir frumflutning fyrstu óperu
Gunnars.
En hvað sem titlum líður er ekki hægt
að segja sögu dægurtónlistar á Islandi án
þess að Gunni Þórðar komi þar mjög við
sögu. Þá er bara miðað við síðustu fimmtíu
árin. Hinn 5. október 1963 léku lítt þekktir
piltar í fyrsta sinn undir nafninu Hljómar
á dansleik í Keflavík - það var í Kross-
Alveg ný unglingamenning var komin
til íslands og það gekk mikið á. Þetta var
jafnvel hættulegt. Hártískan ein og sér var
líkleg til að grafa undan menningu þjóðar-
innar.
Fimmtíu árum síðar er æsingurinn
minni þegar tímamótanna er minnst:
FIMMTUGSAFMÆLI BÍTLAÆÐIS
Upp á þessi tímamót verður haldið í
Hörpu á afmælisdeginum í haust. Þarna
nákvæmlega varð til íslenskt afbrigði af
bítlatónlistinni. Hljómar voru hinir
íslensku Bítlar. Þeir voru í auglýsingum
blaðanna kallaðir „bítlahljómsveitin úr
Keflavík“.
Fyrstu Hljómar: Erlingur Björnsson, Rúnar Júlíusson, Karl Hermannsson, Eggert Kristinsson og Gunnar
Þórðarson.
Á ALDREI IMEITT
í SKÚFFUNNI
4. tbl. 2013 SKÝ 13