Ský - 01.08.2013, Blaðsíða 25

Ský - 01.08.2013, Blaðsíða 25
NOKKRAR ÁHUGAVERÐAR FJALLGÖNGUR í NÁGRENNI REYKJAVÍKUR í Ijósi þess að sumar fer í hönd er hér stuttur listi yfir nokkrar áhugaverðar gönguleiðir í nágrenni Reykjavíkur sem allir ættu að ráða við. Farið varlega og komið heil heim. 0 ESJAN Skemmtilegasta leiðin á Esjuna er sú hefðbundna upp að Steini og þaðan áfram á Þverfellshorn eftir atvikum. Litríkt samfélag fjallafólks er á ferð í fjallinu á hvaða tíma árs sem er. 0 HELGAFELLVIÐ HAFNARFJÖRÐ Byrjum við Kaldársel. Stutt og skemmtileg ganga eftir skýrri slóð upp á eitt af sjö Helgafellum landsins. Móbergsfjall af bestu gerð. 0 MOSFELL í MOSFELLSDAL Hæg og auðveld ganga eftir stikaðri leið frá bílastæði við kirkjugarð á Mosfelli. Sagan er á hverju strái. Gott verkefni fyrir alla fjölskylduna. 0 ÚLFARSFELL Gott fjall fyrir byrjendur. Hægt að fara að sunnan eða vestan úr skógræktinni. Hæg og létt ganga. Skemmtilegt útsýni yfirsundin. 0 MÓSKARÐAHNÚKAR Ekið að Hrafnhólum frá Mosfellsheiði og svo meðfram túninu að vegarenda. Nýlega merkt leið með stikum upp á fjallið en skýr stígur þegar kemur upp í skriður. Nokkuð krefjandi ganga á tignarlegt fjall með stórkostlegu útsýni. 0 SKÁLAFELLÁ HELLISHEIÐI Lágt og auðvelt fjall sunnan þjóðvegar yfir Hellisheiði. Þegar veður er bjart og kalt er þetta einn besti útsýnisstaður á suðvesturhorninu. Fjall sem kemur á óvart. 0 AKRAFJALL Bæjarfjall Akurnesinga. Merkt leið áleiðis á fjallið frá bílastæði við vatnsveitu Akurnesinga í mynni Berjadals. Skemmtileg ganga hvort sem farið er upp fjallið að norðan eða sunnan. Metnaðarfullirfjallgöngumenn fara hringinn um fjallið og koma við á báðum tindum. 0 BOTNSSÚLUR Ein hæstu fjöll í nágrenni Reykjavíkur og á suðvesturhorninu yfirleitt. Skýr gata frá Stóra-Botni í Hvalfirði upp á Vestursúlu. Stórkostlegt útsýni í góðu veðri. Fjallganga fyrir lengra komna. kvíða og þegar leið á nóttina var hún farin að kvíða því að svefnleysi myndi hafa áhrif á frammistöðu hennar í fjallgöngunni. I varnaðarskyni tók hún því svefnlyf og hvarf henni þannig veröldin undir morgun. Þessi dæmisaga er dregin fram til að minna okkur á að draumar okkar og þrár geta auðveldlega fengið okkur til að stefna svo fast að settu marki að við leggjum sjálfsagðar öryggisreglur á hilluna og hugsum aðeins um að standast prófið, láta drauminn rætast og vera ekki síðri en hinir. ÓLÍKAR MYNDIR Undanfarin ár hefur áhugi og þátttaka í fjallgöngum og útivist aukist hröðum skrefum og sífellt fleiri skilgreina útivist sem lífsstíl. Eins og algengt er með vinsæl áhugamál stunda menn og konur fjallgöngur af misjafnlega miklum áhuga og ástríðu. Margir ánetjast þessu nýja áhugamáli og stunda það af miklu kappi og vilja helst ganga á fjöll allan ársins hring. Þeir sem skipa sér í þennan hóp efna sér fljótlega í allan nauðsynlegan búnað og fatnað og sækja sér þekkingu í blöð, bækur og námskeið í ýmsu sem lýtur að fjalla- mennsku. Margir aðrir vilja aðeins stunda þetta áhugamál yfir besta tíma ársins, ganga á fjöll þegar sólin skín og velja sér verkefni sem öll fjölskyldan ræður við að leysa. Þannig getur þetta áhugamál átt sér tvær mjög ólíkar birtingarmyndir. A annarri myndinni brýst kappklætt hörkutól á mannbroddum með ísöxi í hönd upp klakabrynjuð klettabelti og veður snjó í hné á leið sinni á tindinn. Hörkutólið er vel tækjum búið, með GPS- tæki, áttavita, kort, snjóflóðaskóflu, snjóflóðaýli og er aldrei eitt síns liðs. Það er með gott nesti og varafatnað í bakpoka og tilbúið til að grafa sig í fönn ef þörf krefiir. Á hinni myndinni rólar hamingjusöm fjölskylda upp eftir greiðfærum göngustíg á fögrum sumardegi. Sólin skín í logninu og allir eru á stuttbuxum og bol. Blómin anga og fuglarnir syngja. Afi og amma leiða barnabörnin en foreldrarnir bera það yngsta í sérstökum burðarpoka. Þeir eldri fræða þá yngri um það sem fyrir augu ber og útskýra leyndardóma náttúrunnar fyrir námfúsum börnunum. Einhvers staðar á leiðinni er sest við gnægtaborð heilnæms nestis í friðsælum bolla eða skógarlaut. Aii les fýrir börnin úr Skólaljóðunum og feg- urð landsins heillar. ÖRYGGIÐ Á ODDINN (EÐA TOPPINN) Þessir tveir ólíku hópar og allir sem fjallgöngur stunda en falla einhvers staðar milli þeirra tveggja eiga það sameiginlegt að þurfa að fara eftir nokkrum grund- vallarreglum sem varða öryggi á fjöllum. Sá sem heldur til fjalla ætti að halda sig á göngustígum og vel merktum leiðum. Sé farið um ótroðnar slóðir kemur til þeirrar góðu reglu að vera ekki einn síns liðs og helst að einhverjir viti um ferðir og áætl- aðan heimkomutíma. 4. tbt. 2013 SKÝ 25

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.