Ský - 01.08.2013, Blaðsíða 40

Ský - 01.08.2013, Blaðsíða 40
Denzel Washington hefur verið á toppnum í Hollywood lengur en flestir aðrir og engin merki eru um að hann hverfi þaðan í bráð. Þetta hefur gerst jafnvel þó að hann þyki oft erfiður í samstarfi, sé ráðríkur á tökustað og fari lítið eftir óskum framleiðenda um að taka þátt í markaðssetningu kvikmynda. En leikhæfileikar hans eru óumdeilanlegir og fáir hafa jafnmikla persónutöfra þegar hann vill beita þeim. TEXTI: HILMAR KARLSSON MYNDiR: ÝMSIR Denzel er ekkert lamb að leika sér við en á móti kemur að hann er frábær leikari," sagði Baltasar Kormákur þegar hann var spurður um samstarfið við Denzel Washington en Baltasar leikstýrði honum í 2 Cuns. Og álit Baltasars samsvarar því sem margir þeirra sem unnið hafa með Denzel Washington segja um þennan frábæra leikara, að hann geti verið erfiður og vilji ráða og sé ekkert að leyna því þegar honum mislíkar eitthvað. En eins og komið hefur margoft í Ijós þá borgar sig að láta þolinmæðina ráða í samskiptum við Washington því hann er óhemju vinsæll leikari og kvikmyndir sem hann hefur leikið í hafa yfirleitt fengið góða aðsókn. Sem dæmi um hvernig Washington getur hagað sér gagnvart meðleikurum sagði einn með- leikari hans í Courage Under Fire (1996) að það hefði verið hræðilegur tími meðan tökur á kvikmyndinni stóðu yfir. „Persónan sem hann lék átti að vera verulega illa við þá persónu sem ég lék og Denzel var ekkert að skipta um skoðun þegar kom að raunveru- leikanum og gerði líf mitt nánast óbærilegt og var ég þeirri stund fegnastur þegar tökum lauk." Þessi ummæli eru harkaleg og ekki margir sammála en þau segja nokkuð um stíl Washingtons sem leikara. Hann lifir sig inn í hlutverkin og sleppir ekki tökum á hlut- verkinu þegar vinnudeginum lýkur. Og til marks um jákvæðari áhrif hans á aðra leikara sagði Tom Hanks eftir að þeir höfðu leikið saman í Philadelphia (1993): „Þegar upp var staðið þá lærði ég meira um leiklist með því að fylgjast með Denzel en af nokkrum öðrum leikara sem ég hef unnið með."

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.