Ský - 01.08.2013, Qupperneq 17

Ský - 01.08.2013, Qupperneq 17
Ég var mjög lélegur á trommurnar, kunni ekki neitt og lærði ekkert, en það sem gilti var að vera í hljómsveit. möguleikum á dreifmgu, óralangt inni í framtíðinni. Það voru ekki margir mögu- leikar til að nálgast það sem var að gerast úti í heimi. FRUMSTÆÐAR UPPTÖKUR „Við tókum tónlist upp úr Kananum á segulbönd og svo voru upptökurnar spil- aðar í partíum," segir Gunnar. Þannig barst þessi nýja og háskalega tónlist milli unglinga í KefLavík og þar sem Kaninn náðist. Upptökur fóru þannig fram að hljóð- nema var haldið við hátalara útvarpsins og svo kveikt á upptöku þegar spennandi lög voru leikin. Þetta þekkja allir sem komnir eru til vits og ára. Þetta voru You-tube og „streaming" eftirstríðsáranna. „Hljómgæðin voru auðvitað ekki merki- leg en það gerði ekkert til. Tónlistin komst til skila,“ segir Gunnar. Gunnar segir líka að ekki sé allt gott sem hann tók upp sjálfur í stúdíói. „Sem betur fer gleymist það lélega en af þessum 650 tónsmíðum sem ég hef sent frá mér er ekki allt merkilegt,“ segir Gunnar. Hann segir að undirbúningur hafi oft ekki verið nægur og lítill tími farið í upptökur. „Þegar við tókum upp í útvarpinu varð stundum allt að vera búið fyrir lestur frétta. Hljómsveitin mætti bara, spilaði lögin „live“ og það var látið gott heita,“ segir Gunnar. HUGURINN HEIMA Á HÓLMAVÍK En þetta er liðin tíð og Gunnar er líka löngu hættur að leika fyrir dansi. Hann hyggst hins vegar halda áfram að semja og spila svo lengi sem nokkurt líf er í honum! Hann segist gjarna fara norður á Hólmavík til að „hlaða batteríin". Þar hefur hann gert upp gamla æskuheimilið, timburhús reist árið 1913 úr innfluttum norskum viði, sem var orðið allhrörlegt þegar hann keypti það. Norskur krónu- peningur frá 1910 valt út þegar klæðningin var tekin af. „Viðirnir voru ófunir nema aðeins undir gluggum," segir Gunnar og hugurinn er greinilega á Hólmavík - ekki bara í húsinu heldur líka til að komast í ber. Það eru góð berjalönd í Steingrímsfirðinum. SKÝ Funky, fresh and full of flavour! WWW.rUD23.iS 6 5 1 2 B RUB , | Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík Phone: +354 553 5323 I reykjavik@rub23.is RUB | Kaupvangsstræti 6 | 600 Akureyri Phone: +354 462 2223 | rub23@rub23.is 4. tbi. 2013 SKÝ 17

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.