Heilbrigt líf - 01.06.1941, Side 6
sóknum, sem þjóðabandalagið og Alþjóða Rauði Krossinn fá unnin
af heimsfræg’um vísindafrömuðum og' vísindastofnunum víðsvegar
um heim, að svo miklu leyti, sem þau snerta eða geta snert og sam-
rýmst íslenskum staðháttum. Ennfremur vonast hann til að geta
birt árangur þeirra rannsókna, sem fram fara á Islandi af íslensk-
um vísindamönnum á svipuðum grundvelli.
I fjórða lagi: I heilsuvernd og heilbrig'ðismálum þjóðarinnar hafa
ekki verið ræktir nema 2 þættir, annarsvegar löggjöfin, sem heil-
hrigðisstjórn og löggjafarvald hafa samið og sent út, og hinsvegar
sú litla almennings fræðsla sem háskóli, læknar, Ijósmæður og hjúkr-
unarkonur hafa miðlað hver frá sjer, og lítilsháttar í útvarpi og
blaðagreinum.
Sá læknir, sem mest og best hefir gengið fyrir skjöldu á ritvellin-
um í þessum málum, og' átt mestum vinsældum að fagna, er dr. med.
Gunnlaugur Claessen. Það var því eðlilegt, að framkvæmdastjórn
Rauða Kross íslands leitaði fyrst til hans til þess að taka að sjer rit-
stjórn þessa tímarits. Er það ósk hennar og von, að honum takist
sökum vinsælda sinna, þekkingar og áhuga á þessum málum, að
koma þessu tímariti inn á sem flest heimili á landinu, svo að
því mætti auðnast að rækja þann hingað til órækta þátt, er nauðsyn-
legur má teljast, en það er markvis almennings fræðsla í tímarits-
formi um heilsuvernd og rjetta heilbrigðishætti á heimilunum sjálf-
um. Tímaritið verður smámsaman vísir að handbók heimilanna í
þessum málum, og bætir þar ófyllt skarð í bókmenntum vorum.
Þessvegna er hverju heimili nauðsyn að fylgjast með frá byrjun.
Rauði Kross Islands hugsar sjer, að tímaritið verði fjölbreytt að
efni og komi víða við. En jafnframt mun hann leggja áherslu á, að
hverju málefni verði gerð góð skil og mega lesendur því ekki vænta
þess, að mörg hugðarefni þeirra komi í sama heftinu. Af sömu á-
stæðu er ekki hæg-t að dæma ritið af einu hefti, jafnvel ekki tveimur.
Að sjálfsögðu mun það ræða fjelagsmál R. Kr. í. líkt og samskonar
blöð gera í öllum löndum, en þar sem það eru aðallega heilbrigðis-
mál, getur það engin hindrun orðið fyrir almenna útbreiðslu.
A móti því ætti að vega, að stjórn Rauða Krossins hefir trygg-t
ritstjóranum aðstoð ýmissa merkra lækna, eftir því sem hann sjálf-
ur kann að óska, og rita nokkrir þeirra strax í fyrsta árgang.
RAUÐI KROSS ÍSLAND3.
Gunnlaugur Einarsson,
formaður.
4
Heilbrigt líf