Heilbrigt líf - 01.06.1941, Blaðsíða 70
En þaðan er opin leið fyrir þær út úr líkamanum — í saur
eða þvagi.
Hættan, sem af þessu fólki stafar, er augljós, einkum ef
það fæst við matreiðslu eða vinnur við matvæli á einn
eða annan hátt, og er óhreinlegt. Mest verður útbreiðsla
taugaveikinnar og skyndilegust, ef smitið berst í mjólk eða
vatn, sem margir neyta (í kaupstöðum) ; eru þess fjöl-
mörg dæmi hjer á landi. í mjólkina berst smitið venju-
lega beint frá smitberanum, er hefir mjólkað eða átt við
mjólkina á annan hátt. Gerilsneyðing er öruggasta ráðið
til þess að afstýra sýkingu frá mjólk, þar sem mjólkur-
sala fer fram í stórum stíl. I vatnsból getur smitið m. a.
borist frá óþjettri safnþró eða skolpleiðslu.
Reynslan hefir sýnt, að það er vel mögulegt án þving-
unarráðstafana, að komast hjá smitun frá þeim smitber-
um, sem vitað er um, ef þeim er það sjálfum umhugað og
gæta fullrar varúðar. Þeir mega þó að sjálfsögðu aldrei
fást við matreiðslu eða sýsla við matvæli, sem öðrum eru
ætluð. En alltaf eru fleiri eða færri smitberar á meðal
okkar, sem ekki er vitað um, og er ekki eins auðvelt að var-
ast þá. Besta vörnin gegn þeim er að krefjast ýtrasta
hreinlætis af öllum, sem fást við matföng, og að fara
þannig með saur og þvag, að aldrei sje hætta á því, að
mengað geti neysluvatn eða matvæli. Er meðal annars
áríðandi, að vel sje gengið frá salernum. Ennfremur ætti
það að vera ljóst, að ekki er hættulaust að nota fjós sem
salerni, en það mun tíðkast alltof víða. Það, sem hjer hefir
verið sagt um taugaveikina, á og við um marga aðra sjúk-
dóma. Taugaveikin hefir rjenað mikið hjer á landi á síð-
ustu árum, og er það gleðilegur vottur vaxandi þrifnaðar
og þess, að gangskör hefir verið gerð að því að leita uppi
smitbera. Betur má þó enn gera í þessu efni, því að tauga-
veikin er enn alltof algeng hjá okkur, talsvert algengari
en í nágrannalöndum okkar. Þykir það og allstaðar álits-
68
Heilbrigt líf