Heilbrigt líf - 01.06.1941, Blaðsíða 93
unina og allar þær auglýsingar og söfnunarlista, sem þau
birtu ókeypis. Voru þau jafnan reiðubúin til allrar hjálp-
ar, að kalla má undantekningarlaust. Loks ber að þakka
þeim fjölmörgu áhugamönnum, sem ótilkvaddir beittu sjer
fyrir söfnun hver í sínu byggðarlagi, oft með mikilli vinnu
og fyrirhöfn. Sumstaðar höfðu prestar forgöngu að því
að ná til sóknarbarna sinna allra til þess að gefa þeim
kost á að leggja fram skerf. Tveir sýslumenn höfðu sams-
konar forgöngu um alla sína sýslubúa, og var áhuginn
mjög lofsamlegur og árangur eftir því.
Finnlandssöfnunin er sú stærsta f jársöfnun, sem nokkru
sinni hefir farið fram á landi voru. Flestar fjársafnanir
eru bundnar við fjölmenni bæjarfjelaganna, en þessi söfn-
un sýnir, að þegar sveitirnar fara af stað, þá gefa þær svo
um munar. Skiljanlegt er, að Siglfirðingar urðu hæstir.
Þeir, einir fslendinga, hafa persónuleg kynni af Finnum.
Sveitirnar þekkja Finnland fyrst og fremst af þýðingum
Matthíasar Jochumssonar á finnskum bókmenntum. Og
daglegar frjettir sanna, að hreysti Finna er í engu minni
í dag en þar var lýst.
Merkilegt við Finnlandssöfnunina var þó ekki stærð
f járupphæðarinnar, heldur sú mikla og hlýja samúðar-
alda, sem færði oss gjafirnar, ekki sem skyldufórn, held-
ur sem aðkallandi fullnægingu á samúðarþörf hvers og
eins einasta manns í þessu landi, sem með rjettu ber Is-
lendingsnafn.
Einkum í þessu liggur sómi þjóðarinnar af söfnuninni.
c. Starfsemin í Sandgerði.
Á þessu starfsári var sjúkraskýlið fullgert, málað allt
og dúklagt, og er það nú hið vistlegasta. Þó vantar tilfinn-
anlega húsgögn í biðstofu, aðgerðastofu og herbergi hjúkr-
unarkonu.
Heilbrigt líf
91