Heilbrigt líf - 01.06.1941, Blaðsíða 75
lægum löndum og hjeruðum. Og útbreiðslan varð svo ör, að
strax 1922 hafði ungliðastarfið fengið á sig alþjóðlegan
blæ, og það ár samþykkti Alþjóðaráð Rauða Krossins meg-
inreglur um starfsemi ungliðanna. Þessi samþykkt er stutt
og laggóð, er í gildi enn og hljóðar þannig:
„Ungliðadeildir Rauða Krossins starfa í þeim tilgangi
að innræta börnum lands síns hugsjón friðarins og veita
þeim æfingu í sjálfboða-þjónustu, einkum í sambandi við
verndun heilsu sinnar og annarra, skilning og tileinkunn
þegnlegrar og mannlegrar ábyrgðar, og ræktun hugarfars
vinsamlegrar hjálpfýsi gagnvart börnum í öllum löndum“.
Megingrundvöllurinn, sem ungliðastarfið hvílir á, er því
hugsjón friðar, fórnaranda og þjónustu. Og í framkvæmd
er lögð áhersla á þrjú höfuðatriði:
1. Að vernda heilsu sína og annarra.
2. Að efla fórnfýsi og fórnarlund.
3. Að efla vináttu og bræðralag meðal barna í ýmsum
löndum.
Heilsuverndin er fyrst og fremst fólgin í því að læra og
halda almennar heilbrigðis- og hreinlætisreglur, t. d. að
fara í bað og skipta nærfötum reglulega, bursta tennur,
þvo andlit og hendur, hreinsa neglur, hafa gát á sjón og
augum, nota vasaklút, varast að hrækja á gólf, götu eða
leikvöll, sofa fyrir opnum glugga o. s. frv. Þetta og því
um líkt er að vísu ekki annað en það, sem kennt er í heilsu-
fræðitímum í hverjum barnaskóla. En munurinn er eink-
um fólginn í viðhorfi barnanna. í Rauða Kross-deildunum
eru þessar reglur ekki aðeins kenndar, heldur leitast við að
láta hvert einasta barn framkvæma þær. Og börnin líta
eftir því sjálf, að svo sje. Þau iðka heilbrigðisreglurnar
sem leik, keppast hvert við annað, og þó einkum við að
gera sjálf betur og betur.
Annar mikilsverður þáttur í heilsuverndarstarfi ung-
Heilbrigt líf 73