Heilbrigt líf - 01.06.1941, Page 28

Heilbrigt líf - 01.06.1941, Page 28
laus og kæfandi, eins og í þvottahúsi, og hefir enginn heyrst halda því fram, að sú gufa væri til heilsubótar. Annað atriði í finnsku baðsiðunum, sem fólgið er í mikl- um hita og kælingu á víxl, miðar að því að opna og loka svitaholunum sem ákafast og örast, til æfinga og þjálfun- ar á húðvöðvum. Hrísflenging miðar m. a. að því sama. Lokakæling miðar að því að loka vel húðinni, svo að hitinn fari ekki út um of. Loks er hvíldin á eftir afar þýðingar- mikil, einkum ef menn fara þreyttir í bað. í Finnlandi hagar víðast svo til, að baðstofan er rétt við íbúðarhúsið, og fara menn þá í rúm sitt á eftir til hvíldar; og sé baðið tekið að kvöldi, ganga menn til svefns strax á eftir bað- inu, og er það bezt. Mikil áreynsla er í því fólgin að svitna mikið, og mikið vökvatap einnig. Ýms sölt, auk annara efna, fara einnig með svitanum í bili, en eru nauðsynleg í vökva- jafnvægi líkamans, eins og t. d. matarsalt. Öll þessi at- riði gera það augljóst, að það eru takmörk fyrir því, hversu oft menn skuli taka svona bað. Auðvitað fer það nokkuð eftir því, hve rækilega menn taka baðið í hvert sinn. Sumum hættir til að keppast við að þola sem mestan hita og kulda, og það sem lengst. -— Það er mesti misskiln- ingur. — Þægilegur meðalvegur er þar bestur, allt offors hefnir sín. Sé miðað við öfgalaust bað, telja Finnar bað 1—2svar í viku hæfilegt, en oftar komi til mála, ef um mikla erfiðisvinnu er að ræða. Á vetrum kæla Finnar sig oft í snjónum eftir baðið, og er það talinn vottur um hina miklu hreysti þeirra. En sje snjór nýfallinn og logn úti, þá mun síst kaldara að velta sjer upp úr snjó, þótt dálítið frost sje, heldur en fara undir kalda steypu. Finnar sækjast eftir að byggja baðstofurnar við stöðuvötn, til þess að geta kælt sig á sundi eftir baðið. Þetta er auðvelt í Þúsundvatnalandinu. Það fer þá að verða skiljanlegt, að Finnar leggja ekki ríka áherzlu á að 26 Heilbrigt líf
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heilbrigt líf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigt líf
https://timarit.is/publication/1835

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.