Heilbrigt líf - 01.06.1941, Page 63
Samkomuhús og kirkjur.
Vönduð samkomuhús voru reist í Dala- og Þingeyrar-
hjeruðum. Um samkomuhúsið í Ólafsfjarðarhjeraði: „í
það var sett salerni, samt ekki nema eitt að sinni, enn-
fremur sæmilegar mottur við báðar inngöngudyr. Var
þetta gert fyrir tilstilli heilbrigðisnefndar, en þó ekki mót-
spyrnulaust, þótt undarlegt megi virðast“. 1 Öxarfjarðar-
hjeraði virðist bágborið viðhald á kirkjum og þær því
varasamar fyrir heilsuna. A. m. k. tekur hjeraðslæknirinn
svo til orða: „Af guðs mildi eru kirkjur lítið notaðar“.
Störf heilbrigðisnefnda.
Árangurinn misjafn. í Svarfdælahjeraði þykir læknin-
um gott að eiga aðgang að nefndinni um lagfæringar,
„þegar úr hófi keyrir óþrifnaðurinn og óreiðan“. — Hjer-
aðslæknirinn á Akureyri hefir gengið röggsamlega fram
í lagfæringu vatnsbóla. í Glerárþorpi voru 17 brunnar
svo úr garði gerðir, að hætta var talin stafa af. Á einum
stað var hlandfor og mykjuhaugur rjett við brunninn.
Krufningar eftir kröfu lögreglunnar.
Á Rannsóknarstofu Háskólans voru framkvæmdar skoð-
unaraðgerðir í 9 skipti á mönnum, sem fundust örendir eða
fórust vofeiflega.
Aftast í heilbrigðisskýrslunum eru ítarlegar töflur um
allskonar sjúkdóma í læknishéruðunum; ennfremur um
fæðingar, bólusetningar, sjúkrahús o. fl.
Heilbrigðisskýrslunum lýkur með vel saminni yfirlits-
grein á ensku um heilsufar og heilbrigðismál á íslandi eft-
ir landlækni Vilm. Jónsson. Þetta mun í upphafi hafa ver-
ið samið til notkunar á íslandsdeildinni á heimssýning-
unni í New York. En yfirlit þetta er prýðilega saman tekið
Heilbrigt líf
61