Heilbrigt líf - 01.06.1941, Side 71

Heilbrigt líf - 01.06.1941, Side 71
hnekkir þjóða á meðal, ef mikið ber á taugaveiki að jafn- aði. Hjer hefir nú verið minnst nokkuð á þýðingu hrein- lætis frá heilsufræðilegu sjónarmiði. Mætti og á svipaðan hátt nefna dæmi um þýðingu mataræðis, klæðnaðar, hús- næðis o. fl., en það yrði of langt mál að fara frekar út í það hjer. Allt er þetta viðfangsefni heilsuverndarstarfseminnar, sem miðar að því, annarsvegar að kenna fólki að lifa þannig að sem minnst hætta sje á sýkingu, og hinsvegar að búa svo um, að sem fyrst verði vart, ef sjúkleg einkenni koma fram, svo að tækifæri gefist til úrbóta, áður en var- anlegt tjón hlýst af. Víða erlendis er öll heilsuverndarstarfsemi komin í fast kerfi með heilsuverndarstöðvum sem starfseiningu. Land- inu er þá skipt í heilsuverndarsvæði, er hvert hefir sína stöð, og starfa þar bæði læknar og heilsuverndarkonur. Þar er fólki, sem leitar ráða, veitt móttaka á vissum tím- um. Á einum tíma er t. d. ungbarnavernd, þar sem mæður koma með ungbörn til að láta fylgjast með framförum þeirra og fá leiðbeiningar um meðferð þeirra. Á öðrum tíma er viðtalstími fyrir barnshafandi konur, þá berkla- varnir o. s. frv. Á stórum heilsuverndarstöðvum eru þessar sjergreinir aðgreindar, hafa hver sitt húsrúm og starfs- fólk. Allar leiðbeiningar eru veittar ókeypis, en lækninga- aðgerðir fara venjulega ekki fram þarna. Fólki, sem þess þarfnast, er vísað til almennra lækna eða sjúkrahúsa. Auk starfs síns á stöðinni í heimsóknartímanum, er heilsu- verndarkonunni ætlað að líta til með heimilunum, eftir því sem tilefni gefst. Er þetta einn þýðingarmesti þáttur starfs hennar og sá, sem mestan árangur ber, ef hún er starfi sínu vaxin, því að þarna er best aðstaða til þess að leiðrjetta ýmsar misfellur, efla hreinlæti, kenna meðferð Heilbrigt líf 69
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Heilbrigt líf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigt líf
https://timarit.is/publication/1835

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.