Úrval - 01.06.1949, Blaðsíða 72
70
■tfRVAL
sé sú að veita viðurkenningu
hinum hagsýna manni, mann-
inum sem stendur föstum fót-
um á jörð samyrkjubúsins.
Hin ástæðan, og hin þýðing-
armeiri, er sú, að Lysenko er
tengiliður milli stjórnarinnar
og bændanna. Við vitum allir,
að ástandið í landbúnaði Sovét-
ríkjanna er ekki sem skyldi;
fyrir aðeins einu ári var fram-
kvæmd ,,hreinsun“ á samyrkju-
búunum. Alvarleg ókyrrð með-
al bænda gæti fljótlega komið
efnahagsmálum þjóðarinnar á
kaldan klaka. Nú er hópur
landbúnaðarráðunauta að störf-
um víðsvegar um Rússland.
Þessir menn hafa mikil áhrif
á bændurna, einkum vegna
þess að þeir eru flytjendur
hinna hagnýtu aðferða Lysenko,
og ljóminn af dýrð hans fell-
ur einnig á þá. Ef Lysenko félli
í áliti, gætu þessi tengsl við
bændurna, sem byggð er á hjá-
trúarvísindum, rofnað. Þess-
vegna verður að halda uppi og
styðja álit Lysenko hvað sem
það kostar; og með áliti Lys-
enko hefur Michurin-líffræðin
flotið upp á yfirborðið.
oo^cvo
A konsert.
Sú saga gengur, að á fyrstu hljómleikum fiðluleikarans Jascha
Heifetz í New York hafi fiðluleikarinn Mischa Elman verið
meðal áheyrenda ásamt píanóleikaranum Josef Hofman. Salurinn
var þéttskipaður hrifnum áheyrendum, sesn létu sumarhitann
engin áhrif hafa á sig.
Það var orðið langt liðið á konsertinn og fólkið sat sem töfra-
bundið af leik Heifetz. Elman varð æ órólegri og gat ekki verið
kyrr með fingurna og öðru hverju þurrkaði hann svitann af
enni sér. 1 hléi milli tveggja sónötukafla hvíslaði hann að Hofman:
„Það er hræðilega heitt hérna, er það ekki?"
„Hofman brosti til hans og hvíslaði:
„Ekki fyrir píanóleikara!"
Verden IDAG.