Úrval - 01.06.1949, Blaðsíða 104
102
ÚRVAL
óhamingju inn í ákafar umræð-
ur. Og það sem verra var —
það voru einmitt þesskonar um-
ræður, sem kröfðust allrar
skarpskyggni, vits og mælsku
Sams Small — og Sam var ekki
þannig gerður, að hann drægi
sig í hlé, þegar svo stóð á.
„Það liggur þannig í málinu,
Sam,“ sagði Rowlie Helliker.
„Hérna stendur, að einhver
læknir álíti, að Hitler hafi —“
Hann leit í talaðið.
,,— nú, það er sama. Orðið
þýðir klofinn persónuleiki, það
stendur hér.“
„Einmitt," sagði Sam, án þess
að láta sér bregða hið minnsta.
,,Schizophrenia.“
„Af hverju ætli það stafi?“
spurði Huckle, veitingamaður-
inn.
„Það er bara fræðilega
nafnið á sjúkdómnum," útskýrði
Sam. „Það þýðir, að einhver
náungi klofni í tvær persónur
— það er það, sem það þýðir!“
„Ég veit, hvað það er,“ sagði
Gaffer Sitherthwick. „Ef þú
ætlar að halda því fram, að
maður geti klofnað í tvennt, þá
er það ekki lengur mannlegt —
það er bara bölvaður áróður.“
„Rólegur, Gaffer,“ sagði Sam.
„Skilur þú ekki, að vísindin
hafa uppgötvað, að við erum öll
í raun og veru tvær persónur?
°g vísindin eru þó alltaf vís-
indi — ekki satt?“
„Vísindin komast í klandur
einn góðan veðurdag, ef þau
halda áfram að uppgötva slíkt
og þvílíkt," muldraði Capper
Wambley áhyggjufullur.
„Já, en maður hefur þó heyrt
nefnda tvíbura?" skaut Rowlie
Helliker nú inn í. „Það getur
verið, að þessi skollans Schizo-
phrenia sé eitthvað svipað —
maður verður bara tvíburi eftir
fæðinguna í staðinn fyrir á und-
an.“
„Bull,“ sagði Capper. „Ég
myndi hafa heyrt um það fyrr.
Ég er sá elzti hérna í sveit-
inni, og ég hef aldrei heyrt
minnst á svona lagað.“
„En það er líka alveg ný upp-
finning" sagði Sam.
„Það fær mig enginn til að
trúa því, að maður geti skipt
sér í tvennt,“ hrópaði Gaffer.
„Og ekki mig heldur,“ sagði
Capper Wambley.
„Hægan, hægan. Alltaf að
berjast drengilega," kallaði
Helliker. „Ekki tveir á móti ein-
um! Nú það sem ég ætlaði að
segja----------“.