Skinfaxi - 01.03.2021, Page 4
4 S K I N FA X I
Á sambandsþingi okkar á Húsavík í
haust var kynnt niðurstaða stefnu-
mótunarvinnu sem hreyfingin hefur
unnið að. Niðurstaða okkar var sú að hlut-
verk UMFÍ væri að styrkja starf sambands-
aðila og aðildarfélaga þeirra ásamt því að
hvetja og styðja við bætta lýðheilsu lands-
manna. Framtíðarsýn okkar er að leggja
áherslu á almenna þátttöku og lýðheilsu og
með stuðningi sambandsins verður starf
sambandsaðila og aðildarfélaga þeirra sterk-
ara og öflugra. Gleði – Traust – Samvinna
eru gildin sem við höfum að leiðarljósi. Verk-
efni okkar nú er að innleiða fyrirliggjandi
aðgerðaáætlun inn í starf nefnda og dag-
leg verkefni UMFÍ til að ná þeim markmið-
um sem við lögðum áherslu á og fram kem-
ur í Stefnu UMFÍ. Stefnuna má nálgast á
heimasíðunni okkar, www.umfi.is.
Verkefni ungmennafélagshreyfingarinn-
ar næstu misseri mun áfram litast af áhrifum
COVID-19. Það er ótrúlegt að hafa upplifað
sveigjanleikann og kraftinn sem starfsfólk
innan vébanda hreyfingarinnar hefur sýnt
við að leysa úr þeim verkefnum sem veiran
hefur skapað í starfinu. Þá er jafnframt vert
að þakka hinu opinbera fyrir mikilsverðan
stuðning við starf hreyfingarinnar á þessum
tímum. Það er ekki sjálfgefið.
Í nóvember sótti ég ásamt starfsfólki UMFÍ
ráðstefnu International Sport and Cultural
Association (ISCA), sem haldin var í Belgíu.
Þetta eru alþjóðleg samtök ýmissa grasrótar-
samtaka á sviði íþrótta, almenningsíþrótta
og menningar og vinnur UMFÍ náið með
þeim. Á ráðstefnunni var áhersla lögð á að
koma starfinu í gang að nýju undir slagorð-
unum: Endurtenging – Endurbygging – Endur-
ræsing (Reconnect – Rebuild – Restart).
Þótt hér á landi séu mörg tækifæri kom ber-
lega í ljós þarna ytra hversu mikilla forrétt-
inda við Íslendingar njótum. Í samtölum mín-
um við aðra þátttakendur á ráðstefnunni
og forystufólk hennar kom fram að innviðir
og skipulag samtaka sem sinna almennings-
íþróttum í öðrum löndum er orðið laskað
eftir veirufaraldurinn, ágreiningur er um
lagalega umgjörð starfsins og sjálf-
boðaliðar eru víða horfnir á braut;
þeir þurfa einfaldlega að nýta tíma
sinn til að vinna að öflun grunn-
þarfa, lágmarks lífsgæða, svo sem
matar og húsaskjóls sem flestum
okkar þykir sjálfsagt.
Við erum öll að glíma
við verkefni samtímans.
En vandamálin eru
misjöfn. Á ráðstefn-
unni var sem dæmi mikil áhersla lögð á við-
brögð við þeim gríðarlega fjölda flótta-
manna sem streymir til Evrópulandanna.
Áhersla var á leiðir til að ná meiri árangri í
baráttunni um nauðsynleg aðföng, þ.m.t.
vinnu sjálfboðaliða og fjármagn, en þá verð-
ur starfsemin að vera áhrifavaldur í þróun
samfélagsins. Bent var á að ein þeirra leiða
væri að nota verkfæri viðskiptalífsins til að
umbreyta starfseminni í samræmi við þarfir
og tíðaranda. Í raun þyrfti íþróttahreyfingin
að vera skrefi á undan samtíðinni, hún þyrfti
að hafa ákveðið leikjaplan sem ynni með
þróuninni. Planið þyrfti að byggja á gagna-
söfnun og greiningu gagnanna. Það eru
stoðirnar fyrir framtíðina.
Auknar kröfur eru settar á UMFÍ að leysa
verkefnis samtímans. Við munum
áfram, í samræmi við stefnuna, styðja
við daglegt starf sambandsaðila
með því að leita nýrra leiða og
bættra úfærslna á núverandi starfi
okkar til að gera starfið sterkara og
öflugra inn í framtíðina.
UMFÍ, okkar hreyfing!
Jóhann Steinar
Ingimundarson
formaður UMFÍ
Efnisyfirlit
16 Formannsskipti, splunkuný stefna og
skemmtilegt sambandsþing
32 Endurreisn Ungmennasambandsins var
byrjunin á þessu öllu – Helgi Gunnarsson
36 ISCA ráðstefna í Brussel í Belgíu 2021
– Fjölga þarf tækifærum til hreyfingar
Leiðari Kæru félagar
26 Allir sem þora velkomnir í hjólaskautaat
6 Nýtt tímabókunarkerfi sparar
2–3 vinnudaga
8 Smábæjaleikarnir sameina iðkendur
fámennra bæja
10 Íþróttafólk kennir réttu tökin í eldhúsinu
12 Námskeið um svefn, lýðheilsu og verk-
efni sem ná til nýrra Íslendinga
14 Sunddeildin leigði Ungmennabúðirnar
15 Á góðar minningar úr Ungmennabúðum
20 Ný stjórn UMFÍ
24 UMFÍ tekur upp siðareglur Æskulýðs-
vettvangsins
28 Mælir með því að nýta sterkan íþrótta-
geira til að bæta heilsu aldraðra í fram-
tíðinni – Ágúst Einarsson
30 Sjáum í augum barna ef þau hafa lent í
einhverju
38 Covid-19: Áhrifin frá miðju ári fram í
desember 2021
41 Gamla myndin – Landsmótið á Akranesi
1975
42 Dásamlegt að deila hlaupagleði með
öðrum á Höfn