Skinfaxi - 01.03.2021, Blaðsíða 14
14 S K I N FA X I
„Þetta var alveg stórskemmtilegt. Við nýttum okkur matsalinn fyrir kvöld-
vöku þar sem hvert herbergi var með sitt atriði,“ segir Snær Jóhanns-
son, þjálfari hjá KR.
Helgina 5.–7. nóvember síðastliðinn fóru hópar B og C hjá sund-
deild KR í æfingaferð á Laugarvatn og leigði félagið Ungmennabúðir
UMFÍ fyrir hópinn. Þetta voru 28 sundiðkendur á aldrinum 9–14 ára.
Snær segir þetta hafa verið frábært og gefandi og hafa þétt hópinn
betur.
„Hvert herbergi var nefnt eftir ákveðnu landi. Það var skemmtileg
pæling, því krakkarnir voru ítrekað að segja frá því hvaða landi þau
voru í,“ bætir hann við.
Hópurinn nýtti allt húsið og léku börnin sér mikið. Sundæfingarnar
fóru fram í gömlu sundlauginni á Laugarvatni og gengu þær vel. Hópur-
inn notaði morgunverðaraðstöðuna á fyrstu hæð Ungmennabúðanna
en snæddi hádegismat og kvöldmat í Héraðsskólanum á Laugarvatni.
„Þetta var heilt yfir mjög skemmtilegt,“ heldur Snær áfram.
Sunddeildin leigði
Ungmennabúðirnar
Helstu upplýsingar:
• Á Laugarvatni er gistipláss fyrir um 75 manns á heimavistinni.
Herbergin eru 4–6 manna.
• Starfsfólk Ungmennabúðanna getur boðið upp á skipulögð
námskeið. Námskeið gætu t.d. verið í gripli (e. juggling),
samskiptum, útivist og leikjum.
• Starfsfólk Ungmennabúðanna hefur mikla reynslu í hópefli
og samvinnu. Tilvalið er að koma með hóp á Laugarvatn og
taka þátt í skemmtilegum verkefnum sem styrkja hópinn og
samvinnu þátttakenda.
• Áhugasamir geta haft samband við forstöðumann til að
fræðast um hvaða möguleikar eru í boði og hvort laust er
fyrir hóp.Vinsamlegast sendið fyrirspurnir á netfangið
ungmennabudir@umfi.is.
• Allar ítarlegri upplýsingar á www.ungmennabudir.is
Snær Jóhannsson hjá KR segir fyrirtak
að leigja húsnæði Ungmennabúða
UMFÍ á Laugarvatni fyrir námskeið
með iðkendum.
Hópefli og
helgarnámskeið
Megin starfsemi Ungmennabúða UMFÍ fer fram á virkum dögum
yfir skólaárið. Utan þess tíma, þegar engir nemendur eru í búðun-
um, er tekið á móti hópum. Ýmsir hópar, þar á meðal sambands-
aðilar, aðildarfélög og deildir, eins og í tilviki KR, hafa leigt
aðstöðuna í skamman tíma. Hægt er að nýta húsnæðið undir
fundi og fræðslu. Sundlaug er svo í göngufæri. Einnig er mögu-
legt að kaupa fæði í Ungmennabúðunum.
Starfsfólk UMFÍ í Ungmennabúðunum getur sérsniðið dag-
skrá og aðstöðuna eftir hverjum hópi. Hópar geta keypt mat í
mötuneyti Ungmennabúðanna, allt frá stakri máltíð upp í fullt
fæði, meðan á dvöl stendur.