Skinfaxi - 01.03.2021, Blaðsíða 15
S K I N FA X I 15
„Ég var eitthvað farin að dútla mér í tónlist. Ég
var ekki mikið að semja lög en þegar minn hóp
vantaði innkomuatriði varð allt mjög metn-
aðarfullt,“ segir tónlistarkonan Bríet Elfar.
Hún kom með skólafélögum sínum í 9. bekk
í Laugalækjarskóla í Ungmennabúðir UMFÍ
árið 2015. Búðirnar voru þá á Laugum í Sæl-
ingsdal. Bríet man vel eftir dvölinni í búðunum.
„Minningin er ótrúlega hlý. Þarna áttu að
vera tveir skólar saman. En af því að Lauga-
lækjarskóli er svo stór vorum við ein og ég
held að það hafi verið blessun. Það dregur all-
an hópinn betur saman. Þegar svona stór hóp-
ur kemur saman verður aldeilis til eitthvað sér-
staklega skemmtilegt. Samheldnin verður líka
öðruvísi en í skólanum og góð. Í ungmenna-
búðunum eignaðist ég alvöru vini. Það er eitt
að eiga vini í skólanum. En þegar við gistum
nokkrar nætur saman úti í sveit, þá verður
stemningin önnur,“ heldur Bríet áfram.
Hópur Bríetar samdi tilkomumikið innkomu-
atriði á svokölluðum Laugaleikum með dansi
og heljarstökkum og man hún vel eftir því.
„Mér þykir afar vænt um að við vorum ekki
í neinum unglingagír á Laugum og allt var þar
svo skemmtilegt. Ég hugsa til ungmennabúð-
anna með hlýjum hug,“ segir hún.
Á góðar minningar úr Ungmennabúðum UMFÍ
• UMFÍ hefur starfrækt ungmennabúðir frá árinu 2005.
Þær voru fyrstu árin að Laugum í Sælingsdal en eru nú í gömlu
íþróttamiðstöðinni á Laugarvatni.
• Ungmennabúðirnar eru fyrir nemendur í 9. bekk.
• Nemendur geta dvalið þar frá mánudegi til föstudags við leik
og störf og óformlegt nám.
• Bríet gaf út plötuna Kveðja, Bríet árið 2020. Platan kom út í kjölfar lagsins Esjan, sem
var eitt af vinsælustu lögum ársins 2019.
• Nær öll níu lögin á plötunni hafa raðað sér á vinsældalista á Rás 2 og Spotify.
• Bríet hlaut þrenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021 og var tilnefnd í sjö
flokkum. Þar á meðal var Kveðja, Bríet valin poppplata ársins og Bríet var valin texta-
höfundur ársins og söngkona ársins.
Tónlistarkonan Bríet er óumdeilanlega meðal vinsælasta tónlistarfólks landsins,
enda hafa lög hennar verið svo til einráð á vinsældalistum á árinu. Bríet man vel
eftir því þegar hún var í Ungmennabúðum UMFÍ í 9. bekk.
• Markmiðið með dvölinni er að styrkja félagsfærni ungmenna
og, efla vitund þeirra fyrir umhverfi sínu og samfélagi, ásamt
mikilvægi þess að hafa heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi.
• Árlega koma rúmlega 2.200 ungmenni í búðirnar.
• Fyrir fyrirspurnir og bókanir, vinsamlegast hafið samband
í gegnum netfangið ungmennabudir@umfi.is.